Dagleið á fjöllum

Kínverski landsliðsmaðurinn Wu Lei fagnar marki gegn Katar 29. mars síðastliðinn.
Kín­verski lands­liðs­mað­ur­inn Wu Lei fagnar marki gegn Katar 29. mars síð­ast­lið­inn. Mynd: EPA

Fáir hafa senni­lega búist við því að Kína yrði með á HM í Rúss­landi 2018. Vonir bjart­sýn­ustu manna brustu end­an­lega eftir tvö marka­laus og alger­lega and­laus jafn­tefli gegn Hong Kong í und­ankeppn­inni í fyrra­haust.

En síðan gerð­ist eitt­hvað alveg magnað ...

Hrakningar

Und­ankeppnin í Asíu fyrir HM 2018 stendur nú sem hæst. Velja þarf 4-5 lið úr hópi tæp­lega 50 lands­liða sem er að finna hér í aust­ur­álfu. Leiknar eru fjórar umferðir ýmist með útslátt­ar­fyr­ir­komu­lagi, riðla­keppnum eða umspils­leikjum. Meg­in­nið­ur­skurð­ur­inn fer fram í annarri umferð keppn­innar. Gæða­munur lið­anna er mik­ill. Bestu liðin eru á par við lands­lið Norð­ur­landa (t.d. Íran, Japan, S-Kórea og Sádí-Arabía). Þau verstu eru hins vegar á botni styrk­leika­lista FIFA (lið eins og Sri Lanka, Bhutan, Macau og Mongólía). Þetta þýðir að þó að um 90% lið­anna helt­ist úr lest­inni áður en yfir lýkur þá á það ekki vera ofraun fyrir land eins og Kína að kom­ast alla leið.

Kín­verjar voru reyndar stál­heppnir er dregið var í riðla í annarri umferð keppn­innar á síð­asta ári. Fengu þeir Katar, Hong Kong, Maldive-eyjar og Bútan sem and­stæð­inga. Aðeins Katar er af svip­aðri getu og Kína. Öll hin liðin eiga sam­kvæmt bók­inni að vera miklu verri. Flestir gáfu sér því að það yrði auð­velt fyrir þá að kom­ast áfram í þriðju umferð. Þar með myndu þeir ekki aðeins halda lífi í draumnum um HM 2018 heldur einnig ávinna sér rétt til þátt­töku á Asíu­mót­inu 2019. Skemmst er frá því að segja að kín­verska lands­liðið gerði sér mjög erfitt fyrir strax frá upp­hafi. Tapaði fyrri leiknum gegn Katar og gerði svo tvö marka­laus og alger­lega and­laus jafn­tefli gegn Hong Kong. Liðið var komið í þriðja sæti síns rið­ils og flestir búnir að afskrifa þátt­töku á öllum stór­mótum í næstu fram­tíð.

Hillingar

Í kring um kín­versku ára­mótin (8. febr­úar sl.) fór af stað mögnuð atburða­rás sem óhætt er að segja að hafi ger­breytt þeirri stöðu sem lands­lið Kína var komið í.

Fyrst var hinum franska þjálf­ara liðs­ins Alain Perrin vikið frá og heima­mað­ur­inn Gao Hongbo kall­aður til. Sá hafði áður tekið við lands­lið­inu í sárum og komið því á gott skrið. Hann þurfti hins vegar að gjalda fyrir það að kín­verska knatt­spyrnu­sam­bandið treysti á þeim tíma ekki öðrum fyrir lið­inu en frægum erlendum þjálf­urum og var látin víkja fyrir gömlu Real Madrid kemp­unni José Antonio Camacho, for­vera Perrins. Hvað um það, síðan Gao tók aftur við stjórn­taumunum hefur Kína verið á sig­ur­braut. Ekki nóg með það heldur hafa úrslit í öðrum leikjum í und­ankeppn­inni verið afar hag­stæð. Allt í einu opn­að­ist Kína „fjalla­baks­leið“ inn í 3. umferð keppn­innar – sem eitt af fjórum bestu lið­unum í öðru sæti síns rið­ils.

Þriðju­dag­inn 29. mars. sl. rann svo upp síð­asti leik­dagur ann­arar umferðar keppn­innar. Staðan var enn mjög snúin. Til að kom­ast áfram þurftu Kín­verjar að stóla á að Ástralía legði Jórdaníu, Íran Óman og Fil­ipps­eyjar N-Kóreu. Og að sjálf­sögðu var algert frum­skil­yrði að Kína bæri sigur úr bítum í seinni viður­eign sinni við fanta­sterkt liði Katar. Það kom ekki á óvart að Ástralir og Íranir skyldu vinna sína leiki. Mun tví­sýnna var hins vegar hvort Fil­ipps­eyj­ingar gætu staðið uppi í hár­inu á N-Kóreu­mönnum í Manila. Sjö mín­útum fyrir leiks­lok voru N-Kóremenn yfir 1-2 og allt benti til að þeir færu áfram inn í þriðju umferð á kostnað Kínverja. Var þá skyndi­lega eins og rynni af þeim allur víga­móður. Hleyptu þeir Fil­ipps­eyj­ingum inn í leik­inn sem þökk­uðu pent fyrir sig með tveimur mörkum er tryggði þeim sigur í leiknum.

Þegar fréttir bár­ust af þess­ari kúvend­ingu í Manila voru Kín­verjar yfir í sínum leik 1-0. Sú for­ysta var samt ekki nægj­an­leg til að róa taugar þeirra 50 þús­und áhorf­enda er troð­fylltu Zhuque-leik­völl­inn í Xian, hinni forn­frægu höf­uð­borg Kína. Spennan var gíf­ur­leg. Eina mark leiks­ins til þessa hafði komið skömmu eftir hálf­leik. Gao var þá nýbú­inn að gera örlitla breyt­ingu á lið­inu. Setti hann Yu Dabao inn á til að stýra fram­lín­unni. Við það losn­aði um hinn efni­lega Wu Lei er til þessa hafði verið í öruggri gæslu and­stæð­ing­anna. Færði hann sig nú yfir á vinstri kant­inn og fór að valda miklum ursla í sókn­inni. Það var hann sem átti stoðsend­ing­una sem markið varð til úr.

Á 88. mín­útu sýndi Wu Lei aftur snilld­ar­takta. Stakk hann varn­ar­menn Katar af og elti uppi stór­feng­lega gegn­um­send­ingu félaga síns Hao Junmin. Eftir það var nóg fyrir hann að stjaka aðeins við knett­inum svo hann breytti um stefnu á síð­ustu stundu. Mark­mað­ur­inn átti ekki mögu­leika.
2-0 var staðan orðin og ljóst að Kína kæm­ist áfram.

Fagra veröld

Dregið verður í riðla í þriðju umferð und­ankeppn­innar hinn 12. apríl. Vissu­lega verður á brattan að sækja fyrir Kína. Öll liðin sem komust áfram eru erf­iðir and­stæð­ingar (nema kannski Tæland og Sýrland): Sádar, Sam­ein­uða arab­íska fursta­dæmið, Ástralía, Katar, Íran, Japan, Írak, S-Kórea og Úzbekistan. Það má hins vegar halda því fram að það hafi verið lífs­nauð­syn­legt fyrir Kína að halda sér inni í helstu stór­mótum næstu ára. Án þess væri áætlun stjórn­valda um að gera landið að fót­bolta­stór­veldi í náinni fram­tíð næsta fjar­stæðu­kennd. Frasi for­set­ans, Xi Jinpings, um að Kína taki þátt í HM, haldi HM og vinni HM alger­lega hljóm­laus. Hugs­an­lega hefði umfjöll­unin heima fyrir um liðið og allt palnið snú­ist upp í ein­tómt háð og spott. Framundan í sumar og haust eru nú fullt af spenn­andi lands­leikjum. Leikmenn eins og Yu Dabao og Wu Lei öðl­ast ný og verðug mark­mið til að stefna að. Það er áríð­andi að þeir noti tæki­færið sem þeir hafa hjá kín­versku félags­lið­unum sínum til að læra af öllum þeim erlendu stór­stjörnum sem þar eru nú inn­an­borðs. Millj­ónir stráka og stelpna eign­ast nýjar fyr­ir­myndir til að herma eftir á flottu sparkvöll­unum sem verið er að reisa um allt landið. Kald­hæðni mun örugg­lega víkja úr umræð­unni um kín­verska bolt­ann um sinn. Upp­byggi­leg gagn­rýni fær séns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár