Kínverski boltinn: Episode X

Ég vissi að Star Wars var á leið­inni til Kína. Samt kom það mér í opna skjöldu þegar sjö ára gömul dóttir mín benti á fram­andi veru er virt­ist koma þjót­andi út úr jógúrt­doll­unni hennar og spurði mig hvað þetta væri nú eig­in­lega. Mér sýnd­ist það vera R2-D2 um það bil að lenda á morg­un­verð­ar­borð­inu okkar – en var þó ekki alveg viss. „U-þetta er við­gerð­ar­geim­vera,“ sagði ég loks hik­andi. „Í mynd sem var í bíó einu sinni. Vinur hans er með gull­brynju.“ Mig rak í vörð­urnar en dóttir mín sýndi því skiln­ing að þetta var eitt­hvað sem greini­lega skipti pabba gamla máli og hlust­aði þol­in­móð – jafn­vel svo­lítið undr­andi – á hann tala um þessi býsn, eins og þau væru eðli­legur hluti af til­ver­unni.

Gamli sáttmáli

Síð­ast­liðið ár var að mörgu leyti ágætt fyrir Kína: Risa­á­ætl­unin „Eitt svæði – einn vegur“ er komin á góðan skrið (sam­stillt inn­viða­upp­bygg­ing Kína og aðliggj­andi landa m.a. fjár­möguð af Inn­viða­fjár­fest­inga­banka Asíu sem Ísland er stofn­að­ili að). Tu Youyou varð fyrsti kín­verski rík­is­borg­ar­inn til að hljóta nóbels­verð­laun í vís­indum (fyrir þróun lyfs gegn malaríu). Þá vann Peking rétt­inn til að halda vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana árið 2022. Kvenna­l­ansliðið í knatt­spyrnu komst í áttaliða úrslit á HM í Kanada. Og strák­arnir í Guanzhou Evergrande gerðu sér lítið fyrir og unnu meist­ara­deild Asíu 2015. (Mínir menn Peking-varð­lið­arnir lentu í 4. sæti í kín­versku úrvals­deild­inni. Hef trú á að þeir taki þetta á næsta tíma­bili.)

Xi Jinping for­seti Kína nefndi ýmis­legt af þessu í sjón­varps­ávarpi sínu til þjóð­ar­innar á nýárs­dag. Athygli mín beind­ist samt ekki að því sem heyra mátti heldur fremur að því er við augum blasti í útsend­ing­unni, við og við þegar sjón­ar­horn­inu var breytt: Xi hélt áfram að tala inn í mynda­vél eitt en áhorf­endum var gert kleyft að læðst að honum frá hlið með mynda­vél tvö og gægj­ast aðeins lengra inn í hin helgu vé en þeir hafa átt að venj­ast. „Allar þessar stað­reyndir,“ heyrði ég að for­set­inn klikkti út með í upp­taln­ing­unni á sigrum árs­ins „sýna að draumar okkar munu að lokum ræt­ast ef við bara höldum áfram og gef­umst ekki upp“. Ég horfði rann­sak­andi í kring um mig inni á for­seta­kontórnum: „Svona er þá inni hjá honum. Hvað ætli sé í hill­unum? Skyldi eitt­hvað vera þarna um fót­bolta? Eitthvað sem útskýrir hvers vegna þróun kín­versku knatt­spyrn­unnar er eitt af þeim málum sem hann hefur sett á odd­inn?“

„Enn eru samt mörg vanda­mál og erf­ið­leikar er fólk mætir í dag­lega lífi,“ heldur Xi áfram, án þess þó að vera mjög kon­kret á þessu stigi ræð­unnar. Nefnir ekki meng­un­ina sem er að gera út af við borg­ar­búa, skulda­fen rík­is­fyr­ir­tækj­anna, offjár­fest­ing­arnar, minnk­andi hag­vöxt, vís­bend­ingar um aukin átök á vinnu­mark­aði, o.s.frv. Hvað þá gagn­rýni og við­var­anir utan frá um að núver­andi hag­vaxt­ar­módel sé e.t.v. komið af fótum fram. Þvert á móti vill hann greini­lega fremur peppa lands­menn upp en draga úr þeim kjarkinn: „Horf­urnar eru góðar þó svo að ham­ingjan falli að sjálf­sögðu ekki af himnum ofan ...,“ segir hann. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að sitj­andi vald­hafi geri lítið úr vanda­mál­unum og fegri fram­tíð­ar­mynd­ina. Íslenskir ráða­menn voru ekki bein­línis að mála skratt­ann á vegg­inn í aðdrag­anda Hrunsins. Og jafn­vel þó að sam­fé­lagið okkar væri opið og lýð­ræð­is­legt mátti gagn­rýni á efna­hags­stefn­una sín lít­ils þá. Sem þjóð gengum við nán­ast í einum takti fram af hengiflug­inu. – En stöldrum aðeins við. Reynum að sjá fyrir okkur sam­fé­lags­legar afleið­ingar þeirra efna­hags­erf­ið­leika sem nú steðja að Kína.

Rót vand­ans er skulda­fen fyr­ir­tækj­anna. Byrjað var að dæla lánsfé inn í þau árið 2008 sem lið í mót­væg­is­að­gerðum stjórn­valda vegna minnk­andi eft­ir­spurnar í heim­inum í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar. Rann það m.a. til atvinnu­sköp­unar í bygg­inga­geir­anum en var einnig notað til að halda á floti útflutn­ings­fyr­ir­tækj­unum. Skuld­irnar hafa hrann­ast upp jafnt og þétt og eru nú metnar á um 250% af vergri lands­fram­leiðslu (sam­bæri­legt hlut­fall á Íslandi fór upp í um 500% árið 2008). Margt bendir til að þær vaxi nú hraðar en getan til að borga af þeim. Að lokum verður samt að gera þær upp. Hér koma sam­fé­lags­legu áhrifin inn í: Einhver þarf að taka á sig skell­inn. Ef ekki lána­drottnar þá heim­ilin (í gegnum verð­bólgu) eða verka­menn (í gegn um atvinnu­leysi). Það má vera að mál­frelsið hafi ekki forðað okkur Íslend­ingum frá hrun­inu sjálfu en senni­lega var það okkur fremur til fram­dráttar í end­ur­reisn­inni en hitt. Við höfðum opið póli­tískt kerfi til að takast á um skipt­ingu birgð­anna. Þannig kerfi er hins vegar ekki til í Kína. Í besta falli er hægt að tala um óform­legan frið­ar­sátt­mála milli Flokks og sam­fé­lags, þar sem almenn­ingur afsal­aði sér póli­tískum rétt­indum í skiptum fyrir ört batn­andi kjör. Slíkur sátt­máli er ekki lík­legur til að auð­velda upp­gjörið sem framundan er.

Nýji sáttmáli

Ég er búinn að ná því núna. Auðvitað var það ekki R2-D2 sem verið var að kynna til leiks utan á umbúðum jógúrts­ins frá Yili-sam­steyp­unni á dög­unum. Nei, þetta var ein­hver sem heitir BB-8 og er í nýj­ustu Star Wars mynd­inni Episode VII: The Force Awakens. Það er ann­ars merki­legt að hugsa til þess að þar til nú hefur þessi mikla Hollywood-epík nán­ast alger­lega farið fram hjá Kín­verjum. Þegar fyrsta syrpan var sýnd á Vest­ur­löndum undir lok átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar var Kína rétt að byrja að fikra sig út úr ein­angrun og sárri fátækt. Þá voru ein­fald­lega ekki sam­fé­lags­legar for­sendur fyrir því að almenn­ingur gæti skilið eða haft gaman af tækni­brellu-hlöðnum sci-fi ævin­týrum. Lengi vel var Rambó ein af fáum vest­rænum stór­myndum í umferð eystra. Ég man sjálfur eftir því vet­ur­inn 1988/89 þegar ég fór í fyrsta skipti í bíó í Peking hvað First Blood stakk geisi­lega í stúf við annað efni sem var verið að sýna. Skelltu margir upp úr er Stallone tók að mæla á kín­verska tungu.

Í dag er allt breytt. Ungir Kín­verjar vilja popp. Aðeins í Banda­ríkj­unum er velta kvik­mynda­geirans meiri en í Kína. Þegar fram­leið­endur í Hollywood vilja búa til stór­mynd neyð­ast þeir til að taka þennan nýja risamarkað með í reikn­ing­inn. Ef myndin nær ekki vin­sældum þar mun hún aldrei slá út myndir á borð við Avatar og Titanic (sem báðar nutu mik­illar hylli Kínverja). Eftir að Walt Disney yfir­tók Lucasfilm árið 2012, og öðl­að­ist þar með rétt­inn til að fram­leiða Star Wars, kom því ekki annað til greina hjá fyr­ir­tæk­inu en að taka Kína með áhlaupi. Var hinn elskaði Lu Han (svar aust­urs­ins við Justin Bieber) þegar í stað útnefndur sendi­herra stjörnu­stríð­anna og feng­inn til að leiða kín­verska áhorf­endur inn í sögu­sviðið með söng og dansi. Í aðdrag­anda frum­sýn­ing­ar­innar á Episode VII nú um ára­mótin var síðan efnt til kvik­mynda­há­tíðar þar sem allar fyrri mynd­irnar í bálknum voru sýndar með pompi og pragt. Viti menn: Einn kaldan vetr­ar­morg­unn höfðu hund­ruð stormtrooperar tekið sér stöðu á sjálfum Kína­m­úr­num, hinu helga tákni ósigr­an­leik­ans. „Innrásin“ var hafin.

En það væri mis­skiln­ingur að halda að Kína sé vilja­laust verk­færi er gín við til­búnum réttum vest­rænnar neyslu­menn­ingar. Þvert á móti hefur það verið opin­ber stefna stjórn­valda um nokk­urt skeið að stór­efla menn­ingar- og afþrey­ing­ar­iðn­að­inn og gera hann að einum af und­ir­stöðu­at­vinnu­veg­unum í end­ur­skipu­lögðu hag­kerfi lands­ins (sjá t.d. hér og hér). Auðvitað er lausnin á þeim efna­hags­vanda sem Kína stendur frammi fyrir flókn­ari en svo að hann verði leystur með því einu að fara að fók­usera á afþrey­ing­ar­iðn­að­inn. Nýjar atvinnu­greinar munu ekki vaxa upp ef sparn­aður lands­manna fer að stórum hluta í að greiða niður skuld­irnar sem hrann­ast hafa upp í gömlu atvinnu­veg­unum og vikið var að hér að framan. Að því gefnu hins vegar að stjórn­völdum tak­ist hreinsa upp skulda­fenið og lag­færa þá und­ir­liggj­andi kerf­is­þætti sem upp­haf­lega orsök­uðu það þá er eins víst að afþrey­ing­ar­iðn­aður og þekk­ing­ar­geir­inn almennt getur orðið mik­ill drif­kraftur áfram­hald­andi fram­fara í land­inu. Ef Kína lærir að búa til „bolta og popp“ eins og Bretland og „bíó og NBA“ eins og Ameríka þá er víst að hjólin fara að snú­ast.

En er þetta lík­legt? Skoðum það aðeins. Síðustu mán­uði hefur mátt lesa um það í mál­gögnum Flokks­ins og víðar að mik­il­væg stefnu­breyt­ing sé að eiga sér stað í Peking um þessar mundir. Það hefur nán­ast verið við­ur­kennt opin­ber­lega að efna­hags­stefna síð­ustu ára virki ekki, að minnsta kosti ekki lengur. Í stað þess að örva hag­vöxt með stuðn­ingi við útflutn­ing, fjár­fest­ingar og neyslu þurfi að huga betur að fram­boðs­hlið hag­kerf­is­ins: Loka verk­smiðjum sem brenna upp sparnað. Hreinsa til í efna­hags­reikn­ingum rík­is­fyr­ir­tækja. Skrúfa fyrir póli­tískar lán­veit­ingar. Lækka skatta og álögur á atvinnu­lífið. Huga betur að mannauðnum. Afnema ein­birn­is­stefn­una. Styðja nýsköpun og einka­fram­tak ... Já, það glittir í útlínur nýss sátt­mála sem Flokk­ur­inn otar að lands­mönnum: „Við getum hreinsað til. Við getum lagað kerfið.“ Þetta er, held ég, kjarn­inn í því sem Xi Jinping for­seti er að segja þegar hann á hátíð­ar­stundu talar um „kín­verska draum­inn“ en varar við því um leið að „ham­ingjan falli ekki af himnum ofan“ (lands­menn þurfi að venj­ast „nýja norm­inu“). „Draum­ur­inn“ felur í sér lof­orð um neyslu, lífs­gæði og menn­ingu á hærra stigi en áður hefur þekkst. „Nýja normið“ er hins vegar ákall um skiln­ing og þol­in­mæði því hag­vöxtur mun óhjá­kvæmi­lega minnka meðan fyr­ir­hug­aðar kerf­is­breyt­ingar ganga yfir, atvinnu­leysi aukast tíma­bundið og ýmsir kvillar hrjá sam­fé­lagið.

Mjúka valdið

En Xi Jinping þarf ekki aðeins „skiln­ing og þol­in­mæði“ eigin þjóðar. Kína er ekki sér­lega auð­ugt af nátt­úru­auð­lindum. Til að vaxa verður að afla orku og ann­arra aðfanga um víða ver­öld. Lega lands­ins gerir það hins vegar að verkum að aðdrættir eru síður en svo auð­veldir. Til vest­urs og norð­urs eru efna­hags­lega lítt þróuð og /eða póli­tískt óút­reikn­an­leg lönd Mið-Asíu, Austur-Evrópu og norð­ur­skauts­ins. Til aust­urs og suð­urs haf­svæði og sund sem fjöldi ríkja gerir til­kall um lög­sögu yfir. Það er algert lyk­il­at­riði fyrir leið­toga Kína að geta tryggt hag­vöxt heima fyrir án þess að umsvifin sem því fylgja veki totryggni þess­ara nágranna sinna eða banda­manna þeirra (einkum Banda­ríkj­anna). Skemmst er að minn­ast við­bragð­anna á Íslandi við áhuga Huang Nubo á jarð­næði á Gríms­stöðum og við áhuga Kína almennt á sam­starfi um þróun norð­ur­slóða.

Þá komum við að „mjúka vald­inu“ eða því sem sumir myndu kalla „ímynd­inni út á við“. Stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Joseph S. Nye hefur skil­greint það sem hæfi­leika ríkja til að tryggja hags­muni sína án þess að beita þving­unum eða narra með pen­ingum. Upp­spretta þessa valds sé það aðdrátt­ar­afl sem menn­ing, póli­tísk hug­mynda­fræði og utan­rík­is­stefna við­kom­andi ríkis hefur á íbúa ann­arra landa. Ljóst er að á síð­ustu árum hafa kín­versk stjórn­völd ausið út pen­ingum í mjúkt vald. Þeir reka t.d. 475 Kon­fús­í­us­ar­stofn­anir í 120 löndum til að kynna og breiða út kín­versk gildi og menn­ingu, þ. á m. við Háskóla Íslands. Margt bendir hins vegar til að fjár­út­aust­ur­inn hafi hingað til skilað litlum sem engum árangri. Á nýlegum nýlegum lista Portland Communications þar sem 30 löndum er raðað upp eftir því hve mikið mjúkt vald þau hafa lenti Bretland í fyrsta sæti, Þýska­land í öðru, Banda­ríkin í þriðja – en Kína hafn­aði í neðsta sæt­inu. Almennt séð virð­ast við­horf almenn­ings í N-Ameríku, Evrópu, Japan og á Indlandi fremur nei­kvæð til Kína. Við­horfin eru eitt­hvað jákvæð­ari í Afríku og S-Ameríku.

Nye hefur sagt að það sé einkum tvennt sem útskýrir slaka frammi­stöðu Kína hvað þetta varðar. Annars vegar sé það sá und­ir­tónn þjóð­ern­is­hyggju sem stjórn­völd ali á (í bland við fyr­ir­heit um hag­vöxt) til að tryggja frið inn­an­lands. Remb­ing­ur­inn ýti undir óþarfa yfir­gang á S-Kínahafi og kalli fram beina andúð almenn­ings í löndum eins og Japan, Fil­ipps­eyjum og Víetnam. Hitt atriðið, sem dregur úr mjúku valdi Kína, er hve mjög hefur verið þrengt að borg­ara­legu sam­fé­lagi í land­inu. Flokk­ur­inn er upp­haf og endir alls. Frjáls félaga­sam­tök eiga afar erfitt upp­dráttar. Mál­frelsi er stór­lega heft. Ímynd lands­ins út á við hefur þann­nig til­hn­eyg­ingu til að vera ein­tóna og óáhuga­verð. Það sem fleytir Bret­landi í efsta sæti á lista Portland er einmitt hin seið­magn­aða mósaík iðandi mann­lífs sem stórt, opið og frjáls­lynt sam­fé­lag getur af sér. Er ann­ars ekki eitt­hvað öfug­snúið við það að á meðan „heims­veldið sem var“ getur boðið okkur upp á BBC, Oxford, LSE, Amnesty International, Oxfam, Save the Children, British Airways, Rolls Royce, Richard Branson, Jamie Oliver, Bítlana, Adele, enska boltan ... þá hefur það sem sumir kalla „heims­veldi 21. ald­ar­innar“ ekki upp á mikið meira að bjóða en Frétta­stofu Nýja-Kína, CCTV og Kon­fús­íus gamla?

Þetta er hitt sviðið þar sem afþreyj­ing­ar­iðn­aður getur aug­ljós­lega ráðið miklu um fram­tíð Kína. Hann er ekki bara iðn­aður sem er fær um að knýja hag­vöxt og leggja grund­völl að nýjum sátt­mála milli ríkis og almenn­ings. Hann er ein meg­in­upp­spretta mjúks valds á alþjóða­vísu sem rísandi stór­veldi hefur ekki efni á að van­rækja. Þeirri spurn­ingu er hins vegar ósvarað hvort borg­ara­legt sam­fé­lag í Kína muni fá nógu mikið svig­rúm til að þessi iðn­aður nái flugi og vinni sigra í öðrum löndum. Væri það yfir höfuð mögu­legt án þess að hrófla um leið við valda­stöðu Flokks­ins? Verður næsti áfangi í ferða­lagi Kína inn í nútím­ann um leið svana­söngur Flokks­ins? Eða markar hann end­ur­nýjun hans og end­an­legan sigur bylt­ing­ar­innar 1949? Verður Episode X í boði Komm­ún­ista­flokks Kína?

Cogito ergo sum

Ég er staddur inni á skrif­stofu Xi Jinping for­seta Kína. Kloss­aðar við­ar­inn­rétt­ingar hverf­ast um olíu­mál­verk af Kína­m­úr­num. Undir því veg­legt skrif­borð sem for­set­inn hallar sér fram á til að leggja áherslu á orð sín. Ég veit ekki til þess að Xi veiti inn­lendu press­unni nokkurn tíma við­töl. Hef bara séð hann flytja ávörp. Kannski er þetta „stúdíó“ sem hann situr inni í til­raun til að setja fram með mynd­rænum hætti eitt og annað sem ekki rúm­ast innan þess forms tján­ingar: Mannlega þátt­inn, áhuga­málin, lífsmottóin. Ég verð því að við­ur­kenna að ég varð fyrir nokkru áfalli að koma ekki auga á neitt fót­bolta­dót þarna. Ekki einu sinni hina skemmti­legu „sel­fie“ er Sergio Aguero tók af sér David Cameron og Xi saman á Etihad nú í haust. Hef ég verið að ofmeta bolt­ann sem umbreyt­ing­ar­afl í Kína? Boðbera frjáls­lyndis og fjöl­breyti­leika? Síðar las ég um það í blöð­unum að nokkrum Xi-aðdá­endum, er legið höfðu yfir upp­tök­unni af nýársávarpi hans, tókst að greina merkan grip í einni bóka­hill­unni inni í stúd­íó­inu: Rúmfræði Rene Descartes frá 1637. Þó þetta verk flokk­ist kannski ekki undir hvers­dags­bók­menntir eða popp-kúltúr þá er mér þó huggun að vita að einn af frum­kvöðlum nútíma­hugs­unar á Vest­ur­löndum eigi pláss í hug­ar­fylgsnum leið­tog­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár