Jóhannes Stefánsson í hóp með Kofi Annan og Al Gore

Uppljóstr­arinn Jóhannes Stef­ánsson fær tæpar 15 milljónir króna í verðlaunafé fyrir að vinna sænsku sjálfbærni­verðlaunin WIN WIN Gothenburg. Heims­þekkt fólk hefur hlotið þessi verðlaun á fyrri árum.

Jóhannes Stefánsson er handhafi sænsku sjálfbærniverðlaunanna WIN WIN árið 2021.
Jóhannes Stef­áns­son er hand­hafi sænsku sjálf­bærni­verð­laun­anna WIN WIN árið 2021. Mynd: Skjáskot/RÚV

Jóhannes Stef­ánsson, fyrr­verandi starfs­maður Samherja í Namibíu sem gerðist síðan uppljóstrari, hefur hlotið sænsku sjálfbærni­verðlaunin WIN WIN Gothenburg Sustainability Award fyrir árið 2021.

Jóhannes fer með þessu í flokk með fólki á borð við Gro Harlem Brundtland fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunarinnar WHO, Kofi Annan fyrr­verandi leiðtoga Sameinuðu þjóðanna og Al Gore fyrr­verandi vara­forseta Banda­ríkjanna, sem öll hafa hlotið þessi sömu verðlaun. Sjá má lista yfir alla fyrri vinnings­hafa hér.

Fær tæpar 15 milljónir króna í verðlaun

Fram kemur á vef verð­launanna að Jóhannes fái 1 milljón sænskra króna, tæpar 15 milljónir íslenskra króna, í sinn hlut og að verð­launin verði afhent við hátíðlega athöfn í Gautaborg í Svíþjóð í október.

Þema verð­launanna er breytilegt á milli ára. Í ár er það spilling. Aðrir sem voru tilnefndir voru Alþjóða­samtök rannsóknar­blaðamanna (ICIJ), nígeríski aktivistinn Hamzat Lawal, samtökin IWA sem berjast gegn spillingu í Afganistan og Nicola Gratteri, saksóknari á Ítalíu sem hefur leitt mála­rekstur gegn yfir 350 manns sem tengjast Ndrangheta, alræmdum mafíu­samtökum á Suður-Ítalíu. Kjarninn fjallaði um þau réttarhöld í janúar.

Sagður hafa sýnt fádæma hugrekki

Í umsögn dómnefndar segir að Jóhannes hafi, frá því að hann gerðist uppljóstrari þurft að þola hótanir og jafnvel bana­tilræði, en Jóhannes telur að reynt hafi verið að eitra fyrir sér. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja kærði Jóhannes til lögreglu snemma í mars­mánuði fyrir að hafa látið að því liggja að fyrr­verandi vinnu­veitendur hans hjá Samherja hafi á einhvern hátt tengst meintri eitrun.

Framganga Jóhannesar er sögð til merkis um mikilvægi gjörða einstaklinga, ekki síst innan heims iðnaðar og viðskipta. „Jóhannes Stef­ánsson hefur sýnt mikið hugrekki og ósérhlífni í baráttu sinni gegn misbeitingu valds og spillingu,“ segir dómnefndin.

WIN WIN-verð­launin eru veitt í samstarfi við Gautaborg, sænska lénið Vestur-Gautland, Gauta­borgar­háskóla og fjölmargar fleiri stofnanir og sænsk stór­fyrirtæki, til dæmis SEB-bankann.

Sérstakur samstarfs­aðili verð­launanna þetta árið, sökum þess að þemað var spilling, er Svíþjóðar­deild samtak­anna Transparency International.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár