Réttað yfir 355 manns í gömlu símaveri

Nokkuð óvenju­leg rétt­ar­höld hófust á Ítalíu síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, en í þeim er stór hluti 'Ndrang­heta-mafí­unnar, valda­mestu glæpa­sam­taka lands­ins. Sökum mik­ils fjölda ákærðra og nýrra sótt­varn­ar­reglna þurfti að sér­út­búa dóm­sal í gömlu síma­veri.

Frá dómsalnum á miðvikudaginn
Frá dóm­salnum á mið­viku­dag­inn Mynd: EPA

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag hófust stærstu rétt­ar­höld á Ítalíu í 30 ár þar sem réttað verður yfir 355 manns sem tengj­ast ‘Ndrang­heta glæpa­sam­tök­unum þar í landi. Í rétt­ar­höld­unum, sem eiga sér fimm ára aðdrag­anda, verða meira en 900 vitni kölluð til og um 24 þús­und hljóð­upp­tökur lagðar fram sem sönn­un­ar­gögn. Sak­sókn­ar­inn að baki ákær­unum vonar að málið laski starf­semi sam­tak­anna veru­lega og marki nýtt upp­haf hjá þeim sem hafa þurft að lifa í skugga þeirra.

Rinascita-Scott aðgerðin

Meiri­hluti þeirra sem réttað er yfir var hand­tek­inn í lok árs 2019, í kjöl­far viða­mik­illar rann­sóknar ítölsku lög­regl­unnar. Rann­sóknin, sem staðið hafði yfir síðan árið 2016, teygði anga sína víðs vegar um Ítalíu og til nær­liggj­andi landa.

Hún bar heitið Rinascita-Scott, eftir manni að nafni Scott, sem var starfs­maður banda­rísku fíkni­efna­lög­regl­unnar (DEA) og hjálp­aði ítölsku lög­regl­unni um ára­bil en lést nýlega. Orðið rinascita þýðir svo end­ur­fæð­ing á ítölsku sem táknar vonir þeirra sem að baki rann­sókn­inni standa um að hún marki nýtt upp­haf.

Um þrjú þús­und lög­reglu­menn tóku þátt í hand­tök­unum á sínum tíma á Ítalíu, í Sviss, Þýska­landi og Búlgaríu. Þeirra á meðal voru sér­sveit­ar­menn ítölsku lög­regl­unnar, sem kall­aðir eru „veiði­menn­irnir,“ en þeir leit­uðu uppi hátt setta með­limi glæpa­sam­tak­anna í leyni­byrgjum í ítölsku sveit­inni.

Á meðal þeirra hand­teknu var fyrrum þing­maður flokks Silvio Berlusconi, sem var for­sæt­is­ráð­herra lands­ins um ára­bil, ásamt lög­reglu­stjóra og fjöl­mörgum emb­ætt­is­mönnum og athafna­mönnum í við­skipta­líf­inu. Allir voru þeir ásak­aðir um að eiga sam­starf við sam­tökin með einum eða öðrum hætti.

Að baki hand­tök­unum var Nicola Gratteri, sak­sókn­ari bæj­ar­ins Catanzaro á Suður-Ítalíu, en hann er einn þekkt­asti sak­sókn­ari lands­ins sem sér­hæfir sig í skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Samkvæmt frétta­miðl­inum Vice hefur ítalska maf­ían kallað eftir dauða hans, en Gratteri hefur búið við lög­reglu­vernd á síð­ustu árum.

Dómsalur í símaveri

Gratteri hefur látið safna 24 þús­und hljóð­upp­tökum fyrir rétt­ar­höldin, sem eru þau stærstu í marga ára­tugi á Ítalíu. Til við­bótar við þá 355 ein­stak­linga sem réttað verður yfir hafa yfir 900 vitni verið kölluð til í mál­inu.

Sökum stærðar máls­ins og strangra sótt­varn­ar­að­gerða hafa ítölsk yfir­völd búið til dóm­sal í hús­næði sem var áður gríð­ar­stórt síma­ver í bænum Lamezia Terme. Stór hluti hinna ákærðu mun aðeins vera við­stödd rétt­ar­höldin í gegnum fjar­fund­ar­búnað, en þeir sem geta munu mæta í gamla síma­verið. Þar munu sumir hinna ákærðu standa í búrum sem smíðuð hafa verið sér­stak­lega fyrir til­efnið.

Verðmætari en Deutsche Bank og McDonalds til samans

Glæpa­sam­tökin, sem eru frá Calabria-hér­aði á Suður- Ítalíu, hafa aukið ítök sín á síð­ustu ára­tugum og tekið topp­sætið af siki­leysku mafí­unni, Cosa Nostra, sem valda­mestu glæpa­sam­tök Ítalíu. Samkvæmt Europol stjórnar hún stórum hluta af kóka­ín­sölu í allri Evrópu, en hún er einnig talin stunda pen­inga­fölsun, mútu­greiðslur og ólög­lega förgun spilli­efna. Rann­sókn­ar­stofn­unin Demoskopita taldi virði mafí­unnar vera meira en virði Deutsche Bank og McDonalds til sam­ans árið 2013.

Hins vegar, þrátt fyrir viða­mikla starf­semi sem teygir sig langt út fyrir Ítalíu, fara leið­togar sam­tak­anna sjaldan út fyrir heima­þorpin sín. Þar hafa þeir náð að fara huldu höfði, meðal ann­ars vegna fjölda neð­an­jarð­ar­gangna sem þeir hafa útbúið milli húsa, auk leyni­byrgja sem þeir geta dvalið í í afskekktum sveitum hér­aðs­ins.

Mancuso fjölskyldan

‘Ndrang­heta maf­ían skipt­ist í tugi smærri ein­inga sem kall­aðar eru ‘ndrinur. Ein af stærstu ‘ndrin­unum er kennd við Mancuso-fjöl­skyld­una. Einn með­limur fjöl­skyld­unnar, Emanuele Mancuso, hefur upp­ljóstrað um ýmis leynd­ar­mál hennar gegn því að fá lög­reglu­vernd. Hann mun bera vitni gegn leið­toga hennar og einu af valda­mestum með­limum sam­tak­anna sem voru hand­teknir í Rinascita-Scott-aðgerð­inni, frænda sínum Luigi Mancuso, í rétt­ar­höld­unum.

„Þessi rétt­ar­höld eru fyrir allt heið­ar­lega við­skipta­fólkið og borg­ar­ana sem hafa þurft að þola árásir og áreitni frá þessum glæpa­mönnum,“ sagði Gratteri í við­tali við Guardian. „Ég vona að þessi við­burður merki nýtt upp­haf fyrir íbúa Calabria sem eru þreyttir á að lifa í skugga ‘Ndrang­heta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár