Breyti engu hvort einhver hafi viðrað áhyggjur – það sé niðurstaðan sem gildi

Innviða­ráðherra segir að „menn hafi viðrað vanga­veltur“ og „rætt efasemdir“ um aðferða­fræðina í útboði Banka­sýslunnar á hlut ríkisins í Íslands­banka áður en hún átti sér stað en það breyti auðvitað engu því niður­staðan varð sú sem hún varð.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Það breytir þá auðvitað engu hvort menn hafi verið með vanga­veltur um annað eða viðrað áhyggjur ef þetta var niður­staðan.“

Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins í samtali við Kjarnann þegar hann er spurður út í þá gagnrýni sem vara­formaður flokksins og viðskipta­ráðherra, Lilja Alfreðs­dóttir, viðhafði um þá aðferða­fræði sem beitt var við sölu á 22,5 prósent hlut í Íslands­banka í mars síðastliðnum. Hann svarar því þó ekki hvort hann hafi rætt áhyggjur Lilju við hana persónu­lega.

Hann segir að menn hafi oft rætt „einhverjar efasemdir“ fyrir útboðið en að niður­staða bæði ráðherra­nefndar og ríkis­stjórnar, sem og í Alþingi – bæði í nefndum og þing­flokkum – hafi verið sú að heimila þessa sölu með þessari aðferð og án frekari annmörkum en settir voru.

Bjarni kannast ekki við miklar efasemdir hjá sjálfum sér

Sigurður Ingi útskýrir þetta nánar og segir að menn hafi „viðrað vanga­veltur“ fyrir útboðið. Lilja situr í ráðherra­nefnd um efnahagsmál en hún sagði í viðtali við Morgun­blaðið þann 11. apríl að hún hefði viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­­­festa. Hún sagðist jafnframt hafa komið þeim sjón­­­ar­miðum sínum skýrt á fram­­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­­sam­­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­­tíð­­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“

Katrín brást við þessum orðum viðskipta­ráðherrans með því að segja að hvorki Lilja né nokkur annar ráð­herra hefði óskað að færa neitt til bókar um sölu­ferli á hlut Íslands­banka þegar málið var rætt í rík­is­stjórn og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Lilja sagði á þingi í síðustu viku að bæði Katrín og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra hefðu deilt þeim áhyggjum sem hún hafði.

Bjarni sagði þó á fundi fjár­laganefndar í síðustu viku að hann kannaðist ekki við að hafa verið með mikl­ar efa­­semd­ir í ráðherra­nefnd­inni og telur hann ekki að það sé lýs­andi fyr­ir um­ræðu í ráð­herra­­nefnd að þar hafi ráð­herr­ar verið með mikla efa­­semd um að fram­­kvæma út­boðið. „Þvert á móti þá er ég þeirr­ar skoðunar um að þar hafi farið fram gagn­­leg um­ræða um kosti og galla þeirra val­­kosta sem við stóðum frammi fyr­ir.“

„Getum ekki treyst fjármálaheiminum“

Sigurður Ingi segist í samtali við Kjarnann ekki geta tjáð sig um hvað fram fer í ráðherra­nefndinni, enda sitji hann ekki þá fundi og allt sé í trúnaði sem gerist þar nema það sé bókað. Sama gildi um ríkis­stjórnar­fundi.

„Almennt get ég sagt að menn viðra skoðanir sínar og hafa áhyggjur af ólíkum hlutum,“ segir hann og vísar í orð sín á Alþingi í síðustu viku þar sem hann sagði að í öllu þessu ferli, innan ráðherra­nefndar, í ríkis­stjórn, á Alþingi og í samráði við sérfræðinga, hafi „því miður aldrei komið upp sú tillaga að setja lágmark sem allir sjá í dag að hefði verið gott – eða önnur viðmið sem hefðu þrengt túlkun eða mögulega söluaðila. Ég held að lærdómurinn af þessu sé að við getum ekki treyst fjármála­heiminum til þess að hafa svigrúm til túlkunar. Reglurnar verða að minnsta kosti að vera alveg skýrar.“

Hann telur að það þurfi að vera stífara regluverk til þess að búa til öryggi á fjármála­mörkuðum. „Mér finnst þetta ferli sýna það að við séum ekki komin lengra og að það þurfi halda áfram með það.“

Fylgjandi því að sett verði á laggirnar rannsóknarnefnd Alþingis – ef þörf krefur

Ráðherrann bendir á að ríkis­stjórnin hafi ákveðið að stöðva frekari sölu og bíða eftir niður­stöðum rannsókna Ríkis­endur­skoðunar og Fjármála­eftirlits Seðla­bankans. Ef eitthvað birtist í þeim rann­sóknum sem krefst frekari rannsókna þá þurfi að leitast eftir því við Alþingi að setja á laggirnar sérstaka rann­sóknarnefnd.

Þannig að þú ert fylgjandi því að skipa rann­sóknarnefnd Alþingis síðar?

„Algjör­lega ef það þarf. Mér finnst að trúverðug­leiki verði að vera hafinn yfir allan vafa þegar verið er að selja ríkis­eignir eða almennings­eignir. Þá eigi að vera fullkomið gegnsæi í því. Við hljótum öll að vera svekkt að hafa ekki sett skýrari reglur svo að túlkun sölu­aðilanna hafi ekki verið fyrir hendi og þess vegna finnst mér að þessir sérfræðingar sem ráðlögðu okkur hefðu átt að ráðleggja okkur betur. Þess vegna er ég svekktur út í Banka­sýsluna og treysti henni ekki til að halda áfram að óbreyttu. Ég er þó mest svekktur út í sjálfan mig og okkur öll.“

Sigurður Ingi segir að Ríkis­endurskoðun sé stofnun Alþingis og hljóti því að vera yfir allt vanhæfi hafin. Fjármála­eftirlit Seðla­bankans hefði gríðar­lega miklar heimildir til rannsókna – og hafi þegar komið í ljós að eftir­litið sé að rannsaka hvort sölu­aðilarnir hafi farið út fyrir sínar heimildir í þeirri túlkun sem þeir höfðu.

„Ef niður­stöður þessara rannsókna benda til að einhverjum spurningum sé ósvarað eða þeir telji í gegnum niður­stöðuna að það þurfi að skoða þetta betur og að þeim hafi skort heimildir þá finnst mér það einboðið, já,“ segir hann.

„Við viljum og viðurkennum að þarna hefði mátt gera betur“

Mikið hefur verið rætt um traust í garð stjórn­málamann eftir söluna og varðandi það þá segir Sigurður Ingi að hann vilji gera betur.

Ráðherrann segir að þrátt fyrir að megin­markmiðin í þessum tveimur útboðum hafi náðst með dreifðri eignar­aðild, 100 milljarða hærra verðmæti almennings í Íslands­banka, fjöl­breyttara eignar­haldi þá sé rýrnun trausts augljós afleiðing síðasta útboðs.

„Þess vegna stöðvuðum við frekari sölu þangað til fyrir liggja rann­sóknir og einhvers konar ný útgáfa af því fyrir­komulagi sem Banka­sýslan var með. Það er auðvitað gert vegna þess að við viljum og viðurkennum að þarna hefði mátt gera betur – og við viljum gera betur. Það er nokkuð augljóst eins og kemur fram í skoðana­könnunum að auðvitað verður traust á slíku fyrir hnekki og það er mjög mikilvægt að það sé fyrir hendi. Þess vegna stöðvum við og lýsum því yfir að það verði ekki frekari sala fyrr en annars vegar liggi fyrir niður­staða rannsókna og hins vegar að einhvers konar nýtt fyrir­komulag liggi fyrir þar sem aðkoma Alþingis og aukið gagnsæi sé skýrara,“ segir hann.

Ráðherrar bera að lokum ábyrgðina

En ábyrgð ráðamanna? Hvað með hana?

Sigurður Ingi segir að það liggi í augum uppi að þeir sem starfa hjá framkvæmda­valdinu beri að lokum ábyrgð. „Við berum líka þá ábyrgð að það sé farið eftir þeim leið­beiningum sem liggja fyrir.“

Hann rifjar upp að hann hafi setið í rann­sóknarnefnd þingmanna eftir hrunið 2008 og þar hafi ein helsta athugasemdin, meðal annars við einka­væðingu bankanna, verðið að menn hafi ekki fylgt ráðum sérfræðinganna. „Það var gert í þessu tilviki,“ áréttar hann.

Þarf enginn að taka pólitíska ábyrgð í þessu tilfelli, að þínu mati?

„Eigum við ekki að kanna niður­stöðu rann­sóknanna og gagnanna fyrst,“ segir hann og bætir því við að öllum steinum verði velt áður en hægt verði að svara frekari vanga­veltum um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár