Finnst sérfræðingarnir hafa brugðist

Inn­við­a­ráð­herra seg­ist vera svekktur út í sjálfan sig eftir Íslands­banka­söl­una. Hann segir að lær­dómur þeirra sem eru í póli­tík sé ein­fald­lega sá „að fjár­mála­mark­aðnum virð­ist því miður ekki vera treystandi“.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er eitt að viðra vanga­veltur, athuga­semdir, hafa áhyggjur. Það er eðli máls okkar í stjórn­málum. Það er hins vegar líka þannig að við eigum að hlusta á sér­fræð­ing­ana.“

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun. Hann sagð­ist jafn­framt svekktur út í sjálfan sig, aðra þing­menn og sér­fræð­ing­ana í Banka­sýsl­unni.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar spurði hann meðal ann­ars af hverju hann hefði ekk­ert gert með við­var­anir Lilju Alfreðs­dóttur vara­for­manns flokks­ins og við­skipta­ráð­herra.

Allir ráðherrar höfðu sínar áhyggjur

Þor­gerður Katrín hóf mál sitt á því að segja að banka­sölu­málið tæki sífellt á sig skrýtn­ari myndir. „Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, upp­lýsti á þingi í gær að hún hefði ekki verið eini ráð­herr­ann sem hafði áhyggjur af sölu­ferl­inu. Aðrir ráð­herrar í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, það er þau Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son, hafi líka verið með sínar áhyggjur. Það voru fyrir okkur hér í þing­inu nýjar upp­lýs­ingar. Sem sagt: Allir ráð­herr­arnir höfðu sínar efa­semdir og sínar áhyggjur en gerðu ekk­ert til þess að upp­lýsa um þær áhyggjur sínar. Þeir upp­lýstu ekki þingið, ekki þing­flokka sína, ekki fjöl­miðla eða almenn­ing.

Við heyrðum síðan í morgun að fjár­mála­ráð­herra sló aðeins á efa­semd­irnar innan ráð­herra­hóps­ins en und­ir­liggj­andi er að efa­semdir og áhyggjur voru til staðar. Við heyrðum líka í gær að sam­starf og sam­vinna for­manns og vara­for­manns Fram­sóknar sé fram­úr­skar­andi. Það er náið og gott eins og mátti skilja á ræðu vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það er auð­vitað afskap­lega ánægju­legt. Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur því eðli­lega vitað af áhyggjum við­skipta­ráð­herr­ans í ráð­herra­hópi um efna­hags­mál,“ sagði hún.

Þor­gerður Katrín spurði Sigurð Inga af hverju for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði ekk­ert gert með við­var­anir vara­for­manns­ins. Af hverju hefði inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins frekar tekið afstöðu með fjár­mála­ráð­herra og til­lögum hans en sínum eigin ráð­herra, sínum eigin vara­for­manni og auð­vitað nána og góða sam­starfs­manni?

Sérfræðingarnir brugðust

Sigurður Ingi kom í pontu og sagði að það væri eitt að viðra vanga­veltur og athuga­semdir – og hafa áhyggjur. Það væri eðli máls­ins í stjórn­málum. Það væri hins vegar líka þannig að þau ættu að hlusta á sér­fræð­ing­ana.

„Sér­fræð­ing­arnir komu með ákveðna til­lögu. Við sem stjórn­mála­menn hljótum að spyrja hvort þær séu réttar og viðrum þá athuga­semdir okkar, áhyggjur, eftir atvikum spurn­ingar, setjum skil­yrði. Staðan er hins vegar að þrátt fyrir tals­vert mikla umræðu þá var því miður eng­inn, hvorki í ráð­herra­nefnd né rík­is­stjórn né hér í þing­inu, né heldur þegar sam­ráð var haft við allan almenn­ing í land­inu, alla sér­fræð­ing­ana, því miður eng­inn, og ég er svekktur út í sjálfan mig, ekki heldur í þessum sal, ekki heldur þeir þing­menn sem hæst hafa galað á síð­ustu dögum ...“ sagði Sigurður Ingi en þurfti að gera hlé á máli sínu þegar ein­hver þing­maður greip fram í.

„Talað, afsakið,“ sagði hann. „Enginn benti á að það hefði verið skyn­sam­legt að setja lág­mark um það hversu hátt eða lágt þessir svoköll­uðu fag­fjár­festar ættu að geta keypt fyrir. Það setti eng­inn hug­myndir um slík skil­yrði, að það þyrftu að vera ein­hvers konar sið­ferði­leg við­mið. Lærdómur okkar sem erum í póli­tík er ein­fald­lega sá að fjár­mála­mark­aðnum virð­ist því miður ekki vera treystandi. Við verðum að setja skil­yrði þannig að það sé ekk­ert svig­rúm til túlk­ana þegar kemur að því að selja,“ sagði hann og lauk máli sínu á að segja að honum fynd­ist sér­fræð­ing­arnir sem þau treystu hafa brugð­ist.

Ráðherrar firra sig ábyrgð

Þor­gerður Katrín spurði í annað sinn og sagð­ist vera að reyna að rýna í svör ráð­herra. „Þetta er sem sagt Alþingi að kenna. Þetta er sem sagt sér­fræð­ing­unum að kenna. Það er þjóð­inni að kenna að rík­is­stjórnin klúðr­aði banka­sölu, þessu risa­hags­muna­máli fyrir alla þjóð­ina. Það var ekki rík­is­stjórnin. Það var þjóðin. Það voruð þið hérna, þing­heimur. Þið spurðuð ekki réttu spurn­ing­anna. Það voru sér­fræð­ing­arnir og það hefði átt að setja skil­yrði fyrir sið­ferð­is­leg við­mið.

Það vill svo til að í stjórn­sýslu­reglum, sem ráð­herrar í rík­is­stjórn eiga að fara eftir, eru einmitt sið­ferð­is­leg við­mið. Það heitir hæf­is­reglur. Það heitir það að fylgja eftir rann­sókn­ar­skyldu sinni um það hvernig sölu­ferlið eigi að fara fram. Það er aumk­un­ar­vert að vera hér í þing­sal og heyra hvern ráð­herr­ann á fætur öðrum koma hingað upp og firra sig ábyrgð af öllu heila klabb­inu. Þið eruð í rík­is­stjórn. Þið eruð ekki sér­fræð­ingar úti í bæ,“ sagði hún.

Framkvæmdin mistókst

Sigurður Ingi hóf seinna svar sitt á því að segja að hann hefði misst út úr sér orðið „galað“ þegar hann meinti „talað“.

„Svo kem ég núna og þarf að fara að svara fyrir það sem ég sagði áðan. Ég sagði: „Ég er svekktur á því að hafa ekki brugð­ist við,“ en ég benti á að það hefði eng­inn annar gert það heldur fyrr en eftir þetta,“ sagði hann og bætti því við að hann væri eftir á til­bú­inn að skrifa nákvæm­lega hvaða skil­yrði hefðu þurft að vera þarna til þess að þessir hlutir gengju eðli­lega fyrir sig.

„Ég er sann­færður um að þjóðin, sem er ósátt við þessa fram­kvæmd, og það er ég líka, ósáttur, væri glöð yfir því ef við hefðum sett þau skil­yrði þar sem þetta væri skyn­sam­leg, flott aðgerð, meira virði fyrir þessa eign rík­is­ins. Við vorum að selja 22 pró­sent, það voru þarna ein­hver 1, 2, 3 pró­sent sem fengu þennan hlut og ég er ósáttur við það þó að hann sé svona lít­ill af því að mér finnst fram­kvæmdin hafa mis­tek­ist á þessu verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár