Stjórnarformaður Bankasýslunnar: Ráðamenn vilja beina óánægju yfir á okkur

Viðbrögð ráða­manna gætu að mati stjórn­ar­for­manns Banka­sýsl­unnar borið þess merki að verið sé að bregð­ast við óánægj­unni á banka­söl­unni í sam­fé­lag­inu. „Við­brögðin ein­kenn­ast af því að það eigi að beina þeirri óánægju yfir á okkur,“ segir hann.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslunnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar. Mynd: Skjáskot/Dagmál

Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar, er undr­andi á þeim orðum Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um að hann treysti ekki Banka­sýsl­unni eftir síð­asta útboðið á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór fyrir um mán­uði síðan. Orðin lét Sigurður Ingi falla á Alþingi í gær. Sagði hann sér­fræð­inga hafa brugð­ist.

Lárus seg­ist í sam­tali við Frétta­blaðið í dag ekki hafa orðið var við neina gagn­rýni frá rík­is­stjórn­inni varð­andi fram­kvæmd­ina sem slíka og „ég er enn sann­færður um að fram­kvæmdin hafi verið í sam­ræmi við það sem kynnt var í upp­hafi“.

[adspot]

Banka­sýslan hafi við­ur­kennt að kynn­ing á útboð­inu gagn­vart almenn­ingi hafi ekki tek­ist sem skyldi. Að öðru leyti ótt­ist hann ekki boð­aðar úttektir Rík­is­end­ur­skoð­unar og Fjár­mála­eft­ir­lits. „Ég raunar fagna því að allir angar þessa máls verði skoð­aðir ofan í kjöl­inn. Sér­stak­lega sá þáttur sem snýr að sölu­að­il­unum. Þar komu fram atriði sem komu okkur í Banka­sýsl­unni á óvart,“ segir Lárus.

Viðbrögð ráða­manna gætu borið þess merki að verið sé að bregð­ast við óánægj­unni í sam­fé­lag­inu. „Við­brögðin ein­kenn­ast af því að það eigi að beina þeirri óánægju yfir á okkur,“ segir Lárus við Frétta­blaðið.

[links]Hann ótt­ast að frek­ari sala rík­is­eigna muni frest­ast en for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hafa boðað að Banka­sýslan verði lögð niður. „Það er, að mínu mati, sorg­legt því það bitnar fyrst og fremst á fjár­málum rík­is­ins, skulda­stöðu þjóð­ar­bús­ins og getu til að standa að nauð­syn­legri inn­viða­upp­bygg­ingu á vegum hins opin­bera.“

Meðal þess sem gagn­rýnt hefur verið við banka­söl­una er hvernig þátt­tak­endur í útboð­inu voru valdir, hverjir voru valdir, upp­hæð­irnar sem þeir keyptu fyrir, að faðir fjár­mála­ráð­herra hafi m.a. tekið þátt og að sölu­ráð­gjaf­arnir sem ráðnir voru til verks­ins hafi átt að fá mjög væna þóknun. Og margt fleira hefur einnig verið gagn­rýnt.

Stjórn­ar­and­staðan hefur farið fram á að skipuð verði sér­stök rann­sókn­ar­nefnd til að fara yfir allt ferlið en rík­is­stjórnin segir það vera óþarft, að minnsta kosti að sinni, þar sem bæði Rík­is­end­ur­skoðun og Fjár­mála­eft­ir­litið séu með málið til skoð­unar.

Skiptar skoð­anir eru hins vegar innan stjórn­ar­innar hvað varðar traust til Banka­sýsl­unnar. Líkt og að framan er rakið er það ekki upp á marga fiska hjá Sigurði Inga inn­við­a­ráð­herra en fjár­mála­ráð­herr­ann, Bjarni Bene­dikts­son, er á annarri skoðun. Í síð­ustu viku sagði hann við frétta­stofu Stöðvar 2 og Vísis, um til­kynn­ingu sína og for­manna hinna tveggja stjórn­ar­flokk­anna um að leggja ætti Banka­sýsl­una niður: „Ef að málið sner­ist um algert van­traust á Banka­sýsl­una þá hefðum við ein­fald­lega sagt það. Þá hefðum við óskað eftir því að stjórnin myndi víkja og stjórn­endur. En það er ekki það sem við erum að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankasýsla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár