Bjarni bað um „reglulegt samband“ við bankastjóra Glitnis í aðdraganda hrunsins

Bjarni Benediktsson bað um regluleg samskipti við Lárus Welding, banka­stjóra Glitnis, í aðdrag­anda banka­hrunsins á Íslandi. Meðal annars voru þeir saman fyrir „austan“ í ágúst 2008. Bjarni er ósáttur við full­yrðingar Stundarinnar um veru hans á fundum um stöðu Glitnis í aðdrag­anda banka­hrunsins.

Fundaði ítrekað með Lárusi
Fundaði ítrekað með Lárusi Bjarni fund­aði með Lárusi Welding, banka­stjóra Glitnis, í ágúst 2008 og vildi halda reglu­legu sam­bandi við hann til að ræða efna­hags­mál. Mynd: Pressphotos

Bjarni Benediktsson, þingmaður og núverandi forsætis­ráðherra, fundaði ítrekað með forsvars­mönnum Glitnis í aðdrag­anda banka­hrunsins á Íslandi í október árið 2008. Stundin hefur áður greint frá fundi hans með banka­stjóra Glitnis, Lárusi Welding, þann 19. febrúar 2008, tveimur dögum áður en hann hóf sölu á hluta­bréfum sínum í bankanum, og frá fundinum sem hann sat í höfuð­stöðvum Stoða aðfara­nótt 29. september, daginn áður en ríkið lofaði að taka yfir 75 prósent í Glitni til að bjarga bankanum frá falli. 

Bjarni var þátt­takandi í báðum þessum fundum sem stjórn­málamaður en hann var líka fjár­festir á þessum tíma og átti mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta í Glitni, meðal annars í Sjóði 9, eins og greint hefur verið frá í Stundinni.  

Vildi „reglulegt“ samband við Lárus

Bjarni var einnig með Lárusi Welding í lok ágúst 2008, rúmum mánuði fyrir banka­hrunið, og sendi hann honum tölvupóst um það þann 23. ágúst þar sem hann þakkaði fyrir „samveruna fyrir austan“ og sagði meðal annars: „Við skulum endilega halda sambandi. Gott að fara yfir stöðuna reglulega, m.a. í efnahags­málum.“ 

„Gott að fara yfir stöðuna reglulega“

Bjarni sendi þennan tölvupóst til Lárusar af netfangi sínu hjá Alþingi Íslands, líkt og hann gerði nær alltaf þegar hann átti í samskiptum við stjórn­endur og starfs­menn Glitnis á þessum tíma. Þá skipti ekki máli hvort hann ræddi við þá sem stjórn­málamaður eða fjár­festir, hvort sem hann ræddi um eigin fjár­festingar í hluta­bréfum og skulda­bréfum eða sem stjórnar­formaður olíu­félagsins N1 og móður­félags þess BNT. 

Þessi tölvu­póstur til Lárusar Weldings er bara einn af mörgum sem sýnir náin samskipti hans við Glitni og starfs­menn bankans á árunum fyrir banka­hrunið 2008. Eins og Stundin greindi frá í gær þá ræddi Bjarni við Lárus um „lausn“ á „vanda bankanna“ í febrúar 2008. Tveimur dögum síðar seldi Bjarni hlutabréf í Glitni fyrir 119 milljónir króna.  

Tölvu­póstur þing­manns til banka­stjóraBjarni Bene­dikts­son notar tölvu­póst­fang Alþingis í sam­skiptum við Lárus Welding, for­stjóra Glitnis, og fer fram á reglu­legt sam­band við hann.

Bjarni ósáttur við orðalagið „fundi“

Athuga­semdir BjarnaBjarni hefur gert athuga­semd við orða­lagið „fundir“ í setn­ingu í frétt Stund­ar­innar, áður en fjallað er um neyð­ar­fund vegna Glitnis í höf­uð­stöðvum Stoða.

Bjarni Benediktsson er ekki sáttur við frétta­flutning Stundarinnar af viðskiptum hans með hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 í aðdrag­anda hrunsins 2008 og hefur gagnrýnt sérstak­lega það orðalag á Facebook-síðu sinni að hann hafi setið „fundi“ um stöðu Glitnis í aðdrag­anda banka­hrunsins 2008. Í grein Stundarinnar var orðið fundur notað í fleirtölu og svo var rætt ítarlega um fundinn í höfuð­stöðvum Stoða aðfara­nótt 29. september. Í greininni er einnig líka rætt ítarlega um fund hans með Lárusi Welding í febrúar.

Í gagnrýni sinni lætur Bjarni að því liggja að fram hafi komið í Stundinni að hann hefði fundað með efnahags- og skatta­nefnd Alþingis vegna Glitnis. Ekki kemur fram í neinni umfjöllun Stundarinnar að fundað hafi verið í efnahags- og skatta­nefnd dagana fyrir hrun, eða að fjallað hafi verið um „gríðar­lega alvarlega“ stöðu Glitnis í nefndinni, en það var gert í þeim fundi sem Stundin vísaði til í höfuð­stöðvum Stoða.

Miðað við upplýsingarnar sem fyrir liggja voru samskipti Bjarna og Lárusar talsverð á þessum mánuðum fyrir hrunið enda vildi Bjarni halda „reglulegu sambandi“ við hann. Hvað þeir voru að gera saman „fyrir austan“ í lok ágúst 2008 kemur ekki fram í tölvu­póstinum, eða hvort þar hafi verið um að ræða formleg eða óformleg samskipti.

Þannig átti Bjarni reglulega samskipti við forsvars­menn Glitnis sem kjörinn fulltrúi, að eigin frumkvæði, samhliða því og í aðdrag­anda þess að hann átti í persónu­legum viðskiptum með hlutabréf í bankanum og svo bréf í Sjóði 9 á vegum bankans. Þá áttu nánir ættingjar hans, faðir hans og föður­bróðir, í verulegum viðskiptum tengdum bankanum á sama tímabili og Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár