Nefndu breiðstræti eftir Trump

Nafn Donalds Trump Banda­ríkja­forsta prýðir sífellt fleiri hluti.

Vígsla
Vígsla Meg Weinberger (t.v.), full­trúa­deild­ar­þing­maður í Flórída, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, afhjúpa skilti með áletr­un­inni „Pres­ident Donald J. Trump Boulevard“ við vígslu­at­höfn á Mar-a-Lago á föstu­dag. Mynd: AFP

Þingmenn í Flórída samþykktu á dögunum að endur­nefna hluta af Southern Boulevard, strætinu sem tengir flug­völlinn í Palm Beach við aðsetur Donalds Trump Bandaríkja­forseta í Mar-a-Lago. Vegurinn fær heitið President Donald Trump Boulevard.

Trump sagði nafngiftina „gríðar­legan heiður“ og sagðist myndu „muna þennan ótrúlega gjörning það sem eftir er lífs míns.“

Nafn Trumps skreytir nú sífellt fleiri hluti, bæði byggingar í Washington-borg, nýrrar útgáfu herskipa sjóhersins, landvistar­leyfi fyrir ríka útlendinga, vefsíðu bandaríska alríkisins fyrir lyfseðils­skyld lyf og sparnaðar­reikninga fyrir börn, á vegum ríkisins, fyrir utan menningar­miðstöðina Trump Kennedy Center.

Venjan fram að þessu hefur verið að nefna byggingar og minnis­merki eftir forsetum eftir brott­hvarf þeirra úr forseta­stóli og þá eftir ákvörðun bandaríska þingsins.

Nafna­veislan yfir breið­strætinu í Flórída var haldin degi eftir að Trump náði þeim langþráða áfanga að fá afhend friðar­verðlaun Nóbels, eða að minnsta kosti verðlauna­peninginn, úr hendi friðar­verðlauna­hafans, Maríu Corinu Machado, sem Trump hefur sagt að njóti ekki nægrar virðingar í Venesúela til að taka við stjórn landsins eftir að Trump fyrir­skipaði mannrán á forsetanum Niculás Maduro. Við tók vara­forseti Maduros.

Gjörn­ingurinn leiddi til þess að norska nóbels­nefndin lýsti því yfir að „verð­launin sjálf - heiðurinn og viðurkenninguna - væri óaðskiljanlega tengd persónunni eða samtökunum sem norska nóbels­nefndin útnefnir.“

Nóbels­nefndin listaði síðan upp þá verðlauna­hafa sem hefðu framselt eða gefið nóbels­verðlaunin, þar á meðal að norski rithöfundurinn Knut Hamsun sem valdi að afhenda áróðurs­mála­ráðherra Þriðja ríkisins, Jósef Göbbels, verðlaun sín í bókmenntum árið 1943, eftir fund þeirra í Þýska­landi nasismans á meðan hernámi þeirra á Noregi stóð. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er enginn endir á undirlægjuhættinum við Trump. Og hann gengst upp í þessu eins og krakkakjáni.
    2
    • Jón Baldur Þorbjörnsson skrifaði
      Ég held ég verði bara að fara leiða þetta algjörlega hjá mér til þess að verða ekki sjálfur vitlaus af þessum skrípaleik.
      0
  • Guðlaugur Jóhannsson skrifaði
    já hann er vístt . orðinn Einræðishera .? og þeir barra Ánægðir '' með það_??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár