Gerir eitthvað með Grænland „hvort sem þeim líkar betur eða verr“

Donald Trump Bandaríkja­forseti segist þurfa að taka Grænland hvort sem Græn­lend­ingum líkar betur eða verr.

Donald Trump
Donald Trump Stefna stjórnar hans er að taka Grænland og inn­lima í Banda­ríkin. Mynd: AFP

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna – sem hefur ekki farið leynt með þá ósk sína að ná yfirráðum yfir Grænlandi, sem er sjálf­stjórnar­svæði innan danska konungdæmisins – sagði í dag að hann myndi taka á málinu af fullum þunga.

„Ég myndi vilja gera samning, þú veist, á auðveldan hátt. En ef við gerum það ekki á auðveldan hátt, þá munum við gera það á erfiðan hátt,“ sagði Trump á fundi í Hvíta húsinu með stjórn­endum olíu­fyrirtækja.

Hann sagði að hann ætlaði „að gera eitthvað varðandi Grænland, hvort sem þeim líkar betur eða verr.“

Trump heldur því ranglega fram að Grænland sé umkringt kínverskum og rússneskum skipum. „Ef við gerum það ekki munu Rússland eða Kína taka yfir Grænland,“ segir hann.

Með afstöðu sinni vísaði Bandaríkja­forseti á bug grundvallar­reglu NATO um að árás á eitt land jafngildi árás á þau öll og gaf í skyn að hann myndi aðeins verja Grænland ef Banda­ríkin stjórnuðu svæðinu beint.

„Þegar við eigum það, verjum við það,“ sagði Trump. „Þú verð leigu­samninga ekki á sama hátt. Þú verður að eiga það.“

Trump segir að yfirráð yfir Grænandi, sem er auðugt af náttúru­auðlindum, séu mikilvæg fyrir þjóðar­öryggi Banda­ríkjanna í ljósi aukinnar hernaðar­umsvifa Rússlands og Kína á norðurslóðum. Hins vegar hafa Banda­ríkin dregið mjög úr umsvifum sínum á Grænlandi, þrátt fyrir að hafa varnar­samning sem heimilar meiri viðveru.

Forsetinn sagði að Danmörk gerði aðeins tilkall til Grænlands vegna „þess að bátur frá þeim lenti þar fyrir 500 árum,“ og virtist þar með afskrifa bæði megin­regluna um landhelgis­rétt og vilja grænlensku þjóðarinnar.

Banda­ríkin viðurkenndu formlega yfirráð Dana yfir Grænlandi í sáttmála frá 1916 þar sem Jómfrúreyjar í Karíbahafi voru afhentar Banda­ríkjunum.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Jæja, fiflið veit alla vega að norrænn bátur lenti á Grænlandi fyrir 500 árum. Reyndar var það fyrir 1000 árum. Reyndar var það haffært skip. Og reyndar frá Íslandi. Og reyndar upphafið að norrænni byggð sem stóð í nokkur hundruð ár.
    Hvernig það svo atvikaðist að bæði Grænland og Ísland fóru undir yfirráð Dana er þó of flókið fyrir þennan litla heila.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár