Fleiri möguleikar fyrir Trump á Grænlandi

Ef Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, er alvara með að styrkja stöðu Banda­ríkjanna á Grænlandi, hefur hann ýmsa valkosti – en hann gæti kosið þann sem ögrar mest.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að Banda­ríkin þurfi á Grænlandi að halda, sökum hernaðar­legs mikil­vægis vegna þess að Rússland og Kína hafi aukið hernaðar­umsvif sín í nágrenninu, auk þess sem ís á norðurslóðum er að bráðna vegna loftslags­breytinga.

Aftur og aftur hefur hann neitað að útiloka beitingu valds til að ná Grænlandi á sitt vald, sem hefur vakið mikla reiði í Danmörku, traustum banda­manni Banda­ríkjanna og stofn­aðila NATO, sem fer með yfirráð yfir sjálf­stjórnar­svæðinu á Grænlandi.

Nú þegar hafa Banda­ríkin hernaðar­lega viðveru á Grænlandi. Þar er Pituffik-herstöðin, sem á rætur sínar að rekja til síðari heims­styrjaldarinnar þegar Banda­ríkin sendu herlið til að verja Grænland eftir að Danmörk féll í hendur nasista.

Um 150 hermenn eru varanlega stað­settir á þessari ísköldu stöð, en á tímum kalda stríðsins voru Banda­ríkin með allt að 6.000 hermenn sem voru vítt og breitt um Grænland, aðallega af ótta …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár