Vill að Katrín mæti fyrir fjárlaganefnd og geri grein fyrir næstu skrefum í bankasölu

Þingmaður Viðreisnar segir fjárlaga­vinnu í uppnámi enda gert ráð fyrir að sala á Íslands­banka skili ríkis­sjóði 75 milljörðum á næsta ári. Engin skýr svör hafi þó fengist frá forystu­mönnum ríkis­stjórnarinnar um hvort og þá hvernig bankinn verði seldur.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Eyþór Árnason

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir, þingmaður Viðreisnar, fór fram á það á fundi fjár­laganefndar í morgun að Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra mæti fyrir nefndina og geri grein fyrir a stöðu mála um næstu skref við söluna á Íslands­banka, en íslenska ríkið á enn 42,5 prósent hlut í bankanum. Gert er ráð fyrir því í fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar að hlutir verði seldir í bankanum fyrir 75 milljarða króna á næsta ári. Verði ekki af þeirri sölu mun ríkis­sjóður þurfa að brúa það gat, annaðhvort með niður­skurði eða lántöku, og tilheyrandi vaxta­gjöldum.

Þorbjörg segir fjárlaga­vinnu næsta árs vera í uppnámi vegna þessa og því sé nauðsynlegt að forsætis­ráðherra komi fyrir nefndina og svari því með skýrum hætti hvort staðan hafi breyst með einhverjum hætti eftir skýrslu Ríkis­endur­skoðunar eða hvort áfram sé einhugur innan ríkis­stjórnar­flokkanna um að halda áfram sölu á Íslands­banka á næsta ári undir forystu og á ábyrgð Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra.

Þorbjörg segir að yfir­lýsingar forystu­manna ríkis­stjórnar­flokkanna um áframhald sölu hafa verið óljósar um framhald sölu eftir skýrslu Ríkis­endur­skoðunar og yfir­lýsingar þeirra ekki verið á einn veg. Í tilkynningu frá henni er vísað til tilkynningar formanna ríkis­stjórnar­flokkanna frá því í apríl, þar sem sagt var að ekki yrði ráðist í frekari sölu að sinni, en þegar ný löggjöf um fyrir­komulag liggur fyrir muni ákvörðun um mögulega sölu verða tekin. „Engin slík löggjöf hefur verið samþykkt né hefur verið lagt fram frumvarp um hvernig á að standa ætti að mögulegri sölu. Eftir stendur yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar um að Banka­sýslan, sem hefur verið umsjónar­aðila ríkis­stjórnarinnar um sölu, verði lögð niður og að möguleg sala verði ekki ákveðin fyrr en nýtt fyrir­komulag liggur fyrir. Ljóst er þess vegna að fullkomin óvissa ríkir um það hvernig standa ætti að sölunni og þá hefur forsætis­ráðherra í kjölfar skýrslu Ríkis­endur­skoðunar ekki verið afdráttar­laus um það hvort yfirleitt verður af sölunni á næsta ári.“

Ekkert hafði breyst í byrjun nóvember

Í fjár­­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­­em­ber var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­­sent hlutur rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka yrði seldur fyrir 75,8 millj­­­arða króna á næsta ári. Það var gert þrátt fyrir yfir­­lýs­ingu for­­­­­manna stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­­­ari hlutum í Íslands­­­­­­­­­banka að sinni og að sú ákvörðun verði ekki end­ur­skoðuð á meðan að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun og FME rann­­­sök­uðu það sem átti sér stað í mars.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­­­ar­hluta rík­­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­­­banka og að yfir­lýs­ingin stæði þar af leið­andi áfram. Katrín stað­festir að ekk­ert hafi breyst í þeim efnum í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun nóvember. Þar sagði hún einnig að engin áform væru uppi um að selja hlut í Lands­bank­anum en heim­ild er til þess að selja allt að 30 pró­sent hlut í honum í fjár­laga­frum­varp­inu. Bjarni sagði í við­tali við Dag­mál á mbl.is í ágúst að hann vildi ekki bara vilja losa ríkið úr eign­­ar­hluta í Íslands­­­banka heldur líka selja hlut í Lands­­bank­­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut.

Þriðji ráð­herr­ann sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins er Lilja D. Alfreðs­dótt­ir. Í svari hennar við fyr­ir­spurn á Alþingi í síð­asta mán­uði sagði að stefna Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins væri að Lands­­bank­inn verði áfram í eigu rík­­is­ins og að flokk­­ur­inn sé til í að skoða hug­­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­­fé­lags­­banki.

Áfelli Ríkisendurskoðunar

Síðan þá hefur skýrsla Ríkis­endur­skoðunar um sölu­ferlið í mars verið birt. Að mati stofnunarinnar voru annmarkar sölu­ferlisins fjölmargir sem lúta bæði að und­ir­­bún­­ingi og fram­­kvæmd söl­unn­­ar. Þar segir meðal ann­ars að ljóst megi vera að „orð­­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­­metin fyrir sölu­­ferlið 22. mars af Banka­­sýslu rík­­is­ins, fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyti og þing­­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­­ar.“ Hægt hefði, að mati Ríkis­endur­skoðunar, verið hægt að fá hærra verð fyrir eignar­hlut ríkisins en ákveðið var að selja á lægra verði til að ná fram öðrum markmiðum en lögbundnum. Þá hafi huglægt mat ráðið því hvernig fjár­festar voru flokkaðir, en útboðið var lokað með tilboðs­fyrir­komulagi og einungis 207 fengu að kaupa hlut í því, samtals fyrir 52,65 milljarða króna.

Banka­sýslan hefur hafnað nánast allri gagnrýni sem sett hefur verið fram á hana og sagt að skýrslan afhjúpi takmarkaða þekkingu Ríkis­endur­skoðunar á viðfangs­efninu.

Talið er að Fjármála­eftirlitið muni opinbera niður­stöður rann­sóknar sinnar á sölu­ferlinu í janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár