Framsóknarflokkurinn „mjög opinn“ fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki

Samkvæmt umræðum á Alþingi í dag eru tveir af þremur stjórnar­flokkum alveg sammála um að Lands­bankinn eigi áfram að verða í eigu íslenska ríkisins. Bæði Vinstri græn og Framsókn vilja skoða að bankinn verði samfélags­banki.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðs­dóttir er menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra segir að stefna Framsóknar­flokksins sé að Lands­bankinn verði áfram í eigu ríkisins og að flokkurinn sé til í að skoða hugmyndir þess efnis að bankinn verði samfélags­banki, sem jafnvel beindi fjár­festingu sérstak­lega inn á „köld svæði“ utan höfuð­borgar­svæðisins.

Þetta kom fram í svari Lilju við fyrir­spurn Stein­unnar Þóru Árna­dóttur þingmanns Vinstri grænna, í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í dag. Steinunn Þóra sagði að Vinstri græn leggðu áherslu á að ríkið yrði áfram eigandi Lands­bankans og að flokkurinn hefði talað um að „skapa umgjörð um starfsemi samfélags­banka sem starfar samkvæmt umhverfis- og samfélags­sjónarmiðum“.

Sagði Steinunn Þóra að hún teldi að slíkar áherslur yrðu sífellt mikil­vægari í þeim breytingum sem heimurinn stæði frammi fyrir, á komandi misserum. Spurði hún ráðherra í kjölfarið út í afstöðu hennar, og Framsóknar­flokksins, til eignar­halds eða hugsanlegrar sölu á Lands­bankanum.

„Þjóðarbankinn“ Landsbankinn

„Það er alveg ljóst að við viljum að Lands­banki Íslands verði áfram í eigu þjóðarinnar og við teljum að það sé mjög mikilvægt. Varðandi þær hugmyndir [...] að þróa Lands­banka Íslands frekar í átt að samfélags­banka, þá er alveg ljóst að Framsóknar­flokkurinn er mjög opinn gagnvart því og líka að skoða svokölluð köld svæði á Íslandi, þar sem fjár­festingar hafa verið jafnvel verið minni en hér á hbsv og hvernig þjóðar­banki, Lands­banki Íslands, getur komið betur að þeim málum,“ sagði Lilja í svari sínu við fyrir­spurn Stein­unnar Þóru.

Í stefnu Framsóknar­flokksins í atvinnu- og efnahags­málum sem samþykkt var á flokks­þingi fyrr á þessu ári segir ekkert ákveðið um hvernig eignar­haldi í banka­kerfinu skuli háttað, en þó kemur fram að Framsókn leggi „áherslu á hagsmuni neytenda og skatt­greiðenda við skipulagningu fjármála­kerfisins og að stjórn­völd veiti fjármála­kerfinu aðhald og eftirlit“.

Hugmyndir um samfélags­banka hafa þó verið á sveimi innan Framsóknar­flokksins um lengri tíma, en sá sem talaði hvað mest fyrir þeim var fyrr­verandi þingmaður flokksins Frosti Sigurjónsson, sem var formaður efnahags- og viðskipta­nefndar Alþingis í ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, þáverandi formanns Fram­sóknar.

Telur kominn tíma á að uppfæra hvítbók um fjármálakerfið

Steinunn Þóra steig aftur í pontu eftir að Lilja hafði svarað og sagðist vona að frekara samtal myndi eiga sér stað um þessi efni. Hún beindi annarri spurningu að Lilju, þess efnis að ef til vill væri rétt að hverfa frá því að í fjárlögum væri kveðið á um heimildir til þess að selja hluti ríkisins í Lands­bankanum, en þær hafa verið til staðar í fjárlögum undan­farin ár.

Lilja sagði að á síðasta kjör­tímabili hefði verið ráðist í mikla vinnu við svokallaða hvítbók um fjármála­kerfið. Þar hefðu línur verið lagðar um hvernig farsælt væri að endur­skipuleggja fjármála­kerfið eftir fjármála­hrunið árið 2008. Í hvít­bókinni, sem kynnt var 2019, var lagt til að ríkis­sjóður myndi minnka hlut sinn í Lands­bankanum með skráningu hans á markað.

Lilja sagði að kominn væri tími á að „uppfæra þessa hvítbók“, þar sem miklar breytingar hefðu orðið á öllu umhverfi fjármála­stofnana og þá um leið að uppfæra þessa heimild um sölu á Lands­bankanum, sem mætti vera skýrari.

„Það er alveg á hreinu í mínum huga að Lands­bankinn verði áfram þjóðar­banki og við þurfum að huga að því í sameiningu hverjar áherslur hans verða,“ sagði Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár