Tveir ráðherrar hætta í ríkisstjórn Svíþjóðar

Stefan Löfven hefur ákveðið að stokka upp í ríkis­stjórn sinni, en tveir ráðherraar hætta á meðan fjórir nýir koma í þeirra stað.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, boðaði til blaðamannafundar í morgun.
Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, boð­aði til blaða­manna­fundar í morgun. Mynd: EPA

Stefan Löfven, forsætis­ráðherra Svíþjóðar, segir að tveir ráðherrar munu víkja úr embætti á meðan fjórir nýir koma í staðinn.Þetta kemur fram á blaðamanna­fundi ríkis­stjórnarinnar fyrr í dag í Rosenbad-húsinu í Stokk­hólmi.

Fráfar­andi ráðherrar eru þeir Anders Ygemann innan­ríkis­ráðherra og Anna Johansson innviða­ráðherra.

Í stað þeirra verður Heléne Fritzon innflytjenda­ráðherra, Morgan Johansson innan­ríkis­ráðherra og Tomas Eneroth innviða­ráðherra. Einnig bætist Annika Strandhäll við sem félagsmála­ráðherra.

Búist var við því að ríkis­stjórnin myndi segja af sér á blaðamanna­fundi í dag, en Löfven sagðist frekar velja þennan kost þar sem hann vildi ekki senda Svíþjóð í stjórnar­kreppu.

Kjarninn hefur fjallað ítarlega um stjórnar­kreppuna í Svíþjóð undan­farna daga, en hún stafar af meintu aðgerðar­leysi Peter Hultqvist varnarmála­ráðherra, Anders Ygemann innan­ríkis­ráðherra og Anna Johansson innviða­ráðherra þegar þau komust að því að Samgöngu­stofa Svíþjóðar hafði lekið persónu­upplýsingum og hernaðar­leyndar­málum til verktaka sinna í stórum stíl.

Á blaðamanna­fundi á mánudaginn sagði Stefan Löfven að skaði vegna málsins hafi verið lágmarkaður og hann bæri enn fullt traust til allra í sinni ríkis­stjórn. Í gær lögðu leiðtogar innan stjórnar­andstöðu­blokkarinnar Alliansen svo fram vantrausts­tillögu á alla þrjá ráðherrana sem töldust tengjast þessu á blaðamanna­fundi, en í kjölfarið fundaði ríkis­stjórnin saman í þrjá tíma fyrir luktum dyrum. Að fundinum loknum boðaði hún til blaðamanna­fundar í dag, en heimildar­menn SVT töldu þá sennilegt að hún myndi segja af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár