Ríkisstjórn Svíþjóðar er mögulega fallin

Mögulegt er að ríkis­stjórn Svíþjóðar muni stíga til hliðar og boða til nýrra kosninga í fyrra­málið samkvæmt SVT.

Ríkisstjórn Stefan Löfven.
Rík­is­stjórn Stefan Löfven. Mynd: EPA

Sænska ríkis­útvarpið, SVT, segir mögulegt að Stefan Löfven, forsætis­ráðherra Svíþjóðar, muni segja af sér með ríkis­stjórn sinni í dag í kjölfar vantrausts­tillögu stjórnar­andstöðunnar gegn þremur ráðherrum hennar. Ríkis­stjórnin hefur nú fundað fyrir luktum dyrum í rúma tvo tíma.

Uppfært: Ríkis­stjórnin mun halda blaðamanna­fund í fyrra­málið, fimmtudag klukkan 10 að staðar­tíma í Svíþjóð. Engar yfir­lýsingar verða gefnar fyrr en þá.

Fyrr í dag komu ráðherrar sænsku ríkis­stjórnarinnar saman til fundar í Rosenbad-húsinu í Stokk­hólmi, en búist er við því að framtíð hennar verði ákveðin á næstu andar­tökum. SVT segir forsætis­ráðherrann eiga fáa kosti í stöðunni, annað hvort verði hann að boða til nýrra kosninga eða víkja ráðherrum sínum úr embætti.

Stjórnmála­fræðingurinn Jonas Hinnfors segir fall ríkis­stjórnarinnar mögulega vera vænsti kostur forsætis­ráðherrans, í ljósi þess að hún sé rúin trausti: „Það er tiltölu­lega líklegt ef hann (Löfven) vill forðast að leiða mjög veika ríkis­stjórn sem stjórnar­andstöðu­blokkin getur stöðugt hótað með vantrausts­yfirlýsingu,“ segir Hinnfors í svartíma á SVT.

Í yfir­lýsingu stjórnar­andstöðu Svíþjóðar (Alliansen) fyrr í dag var lýst yfir vantrausti á Peter Hultqvist varnarmála­ráðherra, Anders Ygemann innan­ríkis­ráðherra og Anna Johansson innviða­ráðherra. Tillagan var lögð fram eftir að komið hafði í ljós að Samgöngu­stofa Svíþjóðar, sem er undir innviða­ráðuneytinu, hafði lekið persónu­upplýsingum og hernaðar­leyndar­málum til erlendra verktaka. Viðbrögð ríkis­stjórnarinnar við lekanum hafa verið harðlega gagnrýnd, en fjöldi ráðherra vissi af honum án þess að viðhafast neitt.

Mikil spenna ríkir um um fram­haldið, en málið er á forsíðu ríkis­fjöl­miðlanna í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Kjarninn hefur fjallað ítarlega um atburðarrás málsins í fréttum í gær og í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár