Sænska ríkisstjórnin í kröppum dansi

Ráð­herrar innan sænsku rík­is­stjórn­ar­innar hafa sætt harðri gagn­rýni vegna aðgerð­ar­leysi þrátt fyrir vit­neskju um alvar­leg brot á per­sónu­vernd­ar­lögum.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Sam­göngu­stofa Sví­þjóðar hefur gerst sek um alvar­legt mis­ferli á per­sónu­upp­lýs­ingum og sænska rík­is­stjórnin sætir gagn­rýni fyrir aðgerð­ar­leysi þegar upp komst um brotin. Í frétt SVT í gær er atburð­ar­rás hneyksl­is­máls­ins rakin, en ljóst er að ráð­herrar innan rík­is­stjórn­ar­innar hafi vitað af brot­inu í rúmt ár án þess að við­haf­ast neitt.

Ökuskírteini og farartæki hersins

Samkvæmt frétt­inni byrj­aði Sam­göngu­stofa Sví­þjóðar að bjóða út tölvu­þjón­ustu til banda­ríska tölvuris­ans IBM í byrjun árs 2015 undir stjórn þáver­andi fram­kvæmda­stjóra, Maria Ågren. Með útboð­inu komust verk­takar IBM yfir ýmsar per­sónu­rekj­an­legar upp­lýs­ingar, meðal ann­ars allar sænskar öku­skír­tein­is­myndir sem og upp­lýs­ingar um far­ar­tæki sænska hers­ins.

Enn fremur segir sænska frétta­stofan að Ågren hafi þannig vís­vit­andi brotið fern lög (per­sónu­vernd­ar­lög, þjóðar­ör­ygg­is­lög, lög um opin­bera stjórn­sýslu og kröfur rík­is­stjórn­ar­innar um upp­lýs­inga­vernd) með ákvörðun sinni árið 2015, þrátt fyrir athuga­semdir innri end­ur­skoð­enda um lög­mæti hennar.

Aðgerðarleysi eða þöggun?

Seinna árið 2015 ráð­lagði sænsku örygg­is­lög­regl­unnar (Säpo) að útboð Sam­göngu­stof­unnar yrði hætt, en ferlið hélt áfram óhindrað. Í kjöl­farið hóf lög­reglan rann­sókn á útboð­inu snemma árs 2016.

Ári seinna, í jan­úar 2017, sagði Maria Ågren upp hjá Sam­göngu­stofu, en að hennar sögn var það vegna ágrein­ings milli hennar og rík­is­stjórn­ar­innar. Fyrir þremur vikum síðan kom það hins vegar í ljós að Ågren hefur verið dæmd fyrir van­rækslu í starfi, en örygg­is­ráð Sví­þjóðar taldi brot hennar varða við þjóðar­ör­yggi. Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, við­ur­kennir sama dag að ljóst hefði verið um brot Ågren síðan í jan­úar.

[adspot]

Á síð­ustu dögum hafa svo komið fram ásak­anir um þöggun af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar, en ráð­herrar innan hennar sem vissu af mis­ferl­inu til­kynntu það ekki til utan­rík­is­nefndar. Einnig hefur starfs­maður Sam­göngu­stof­unnar stigið fram og sagst hafa grunað að lög væru brotin með útboð­inu, en honum hefði verið skipað að „halda kjafti,“ sam­kvæmt SVT.

Ríkisstjórnin í kröppum dansi

Í gær hélt Löfven svo blaða­manna­fund með yfir­manni örygg­is­lög­regl­unnar, yfir­manni sænska hers­ins og nýjum fram­kvæmda­stjóra Sam­göngu­stof­unnar, en þar sagði hann að hann bæri fullt traust til allra í sinni rík­is­stjórn, þrátt fyrir vit­neskju margra þeirra um meint brot í langan tíma. Það sem skipti mestu máli væri að skað­inn hefði verið lág­mark­aður og upp­lýs­inga­brest­ur­inn leið­réttur.

Óvíst er hvaða afleið­ingar þetta mál mun hafa fyrir sænsku rík­is­stjórn­ina, en Jimmie Åkerson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata, hefur lagt fram van­traust­s­til­lögu sem mun fara fyrir þing­nefnd á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár