Leggja fram vantrauststillögu á þrjá ráðherra

Formenn stjórnar­andstöðunnar í Svíþjóð hafa lýst yfir vantrausti á þrjá ráðherra vegna alvarlegs upplýsingar­leka.

Fulltrúar Alliansen, stjórnarandstöðublokkarinnar í Svíþjóð.
Full­trúar Alli­an­sen, stjórn­ar­and­stöðu­blokk­ar­innar í Svíþjóð. Mynd: EPA

Stjórnar­andstöðu­blokkin Alliansen á sænska þinginu lögðu í dag fram vantraust­tillögu á þrjá ráðherra í ríkis­stjórninni. Þetta kom fyrst fram á vef RÚV.

Tillagan er lögð fram vegna misferlis Samgöngu­stofu Svíþjóðar á persónu­upplýsingum og aðgerðar­leysi ráðherra gagnvart því misferli. Kjarninn fjallaði ítarlega um málið í gær, en atburðarrás þess spannar yfir tvö ár. 

Kröfðust leiðtogar innan Alliansen afsagnar Peter Hultqvist varnarmála­ráðherra, Anders Ygemann innan­ríkis­ráðherra og Anna Johansson innviða­ráðherra, á blaðamanna­fundi í dag.

Málið snýst um útboð Samgöngu­stofu Svíþjóðar á umsjón á tölvu­kerfi þess. Með útboðinu fengu erlendir verktakar aðgang að persónu­greinanlegum upplýsingum, eins og öll sænsk útgefin ökuskírteini og skráningar­númer farar­tækja innan sænska hersins.

Öryggis­deild ríkis­lögreglu Svíþjóðar, Säpo, mat það svo að upplýsinga­lekinn sé það alvarlegur að hann varði þjóðar­öryggi.

Jimmie Åkesson, formaður popúlista­flokksins Svíþjóðar­demó­kratarnir, hafði áður hótað að leggja fram vantraust­tillögu vegna málsins. Eftir að fulltrúar hinna stjórn­mála­flokkanna fagnaði hann ákvörðun þeirra á Twitter í morgun:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár