Það er einn staður sem ég veit um í samfélaginu sem ætlast til einskis af mér og biður ekki um neitt í staðinn fyrir það sem hann færir mér. Það er bókasafnið í hverfinu mínu. Ég held ég hafi þó aldrei tekið bók að láni og farið með heim. Bókasafnið hefur enda miklu meira gildi en það að lána mér bók. Það hefur jafnvel gildi fyrir þá sem fara þangað aldrei, og muna kannski ekki einu sinni hvar sitt hverfissafn er.
Safnið mitt – Sólheimasafnið – er einna minnst bókasafnanna í borginni, í hálfgerðum skúr á milli hárra blokka. Það stendur líklega ekki undir sér í neinum rekstrarlegum skilningi og væri fljótt skráð sem aflögð starfsemi í samstæðureikningi einkafyrirtækis. En það er eitthvað öfugsnúið við að líta inn á bókasafn og sjá fyrst og fremst fólk sem kostar samfélagið peninga.
Það hugarfar birtist þó í áherslu tillögu meirihlutans í borginni sem ætlar að láta reikna hvað hver gestur kostar, hvert útlán, hver stund sem dyrnar standa opnar.
„Alltof mörg börn glíma við læsisvanda – en það virðist fullorðna fólkið gera líka,“ skrifaði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á Facebook um viðbrögð við tillögunni. Í færslu sem hún virðist svo hafa fjarlægt. En hvort sem það er skortur á lesskilningi eða ekki, gefur tillagan okkur tilefni til að staldra við og tala saman um hvað skiptir okkur máli. Hvað við viljum standa vörð um.
„Það eina sem þú þarft nauðsynlega að vita er hvar bókasafnið er,“ eru orð sem hafa verið eignuð Albert Einstein. Manninum sem vissi fleira en við flest. En auk þekkingarinnar sem bókasöfn varðveita, geta þau verið eins konar öryggisnet.
„Það er eitthvað öfugsnúið við að líta inn á bókasafn og sjá fyrst og fremst fólk sem kostar samfélagið peninga“
„Ef við viljum byggja upp gott samfélag þar sem við hjálpum fólki að verða ekki einmana og félagslega einangrað, þar sem við hjálpum fólki að stofna til og viðhalda samböndum, þurfum við að hanna félagslega innviði, fjármagna þá, byggja þá og viðhalda þeim. Ef við gerum það ekki byggjum við upp arkitektúr einangrunar, arkitektúr aftengingar,“ sagði bandaríski félagsfræðingurinn Eric Klinenberg í viðtali við Heimildina árið 2024.
Klinenberg hefur rannsakað hvernig félagslegir innviðir geta dregið úr ójöfnuði og skautun og styrkt borgaralegt samfélag. Með félagslegum innviðum á hann við opinbera staði og stofnanir sem stuðla að samskiptum fólks og móta þannig hvernig félagsleg tengsl verða til og þróast. „Alveg eins og það eru innviðir til staðar fyrir vatn eða rafmagn, samskipti eða samgöngur eru að sama skapi innviðir að félagslífi og við þurfum staði sem gera okkur kleift að koma saman og verja tíma saman,“ útskýrði hann í viðtalinu.
Hann talar um bókasöfn sem hallir fólksins og bendir á að mannleg tengsl þurfi aðstæður til að verða til.
Niðurskurður
„Það stendur ekki til að loka bókasöfnum,“ hefur borgarstjóri Reykjavíkur nú áréttað. Það á hins vegar að rýna í reksturinn. Fimm prósenta hagræðingarkrafa hefur þegar verið lögð á Borgarbókasafnið. Það þýðir niðurskurð upp á 85 milljónir króna, sem er í raun fækkun um fimm stöðugildi. Enda lítið að skera niður annað en fjölda starfsmanna.
Það er auðvelt að horfa fram hjá bókasöfnum sem innviðum. Þess vegna er mikilvægt að nota tækifærið núna og staldra við og hugsa um raunverulegt mikilvægi þeirra. Að muna að bókasöfn eru ekki eitthvert slys á útgjaldahlið borgarinnar sem krefst tafarlausra viðbragða, heldur fjárfesting í upplýstu samfélagi.
Tillaga borgarmeirihlutans er líka tækifæri til að minna á að bókasöfnin eru meira en bara bækurnar sem þar eru. Þau eru meira en þekkingin sem þau geyma. Þau bjóða upp á verkfæri fyrir daglegt líf. Í Árbæ má setjast við saumavélar. Í Grófinni er hægt að taka upp hlaðvarp, vinna tónlist og klippa myndbönd. Í Spönginni er aðstaða til vinnu og náms og í Gerðubergi getur fólk bæði fengið hluti að láni og gefið öðrum það sem það þarf ekki lengur á að halda.
Þar er hægt að eyða heilum degi við eitthvað sem skiptir raunverulegu máli án þess að það birtist í útreikningum borgarinnar. Heimsóknin getur verið talin, en talningin segir okkur lítið um hvað gerðist eða hvaða gildi hún hafði.
Það er líka varasamt að horfa á rekstrarreikning safnanna og ætla að hann gefi nákvæma mynd af því sem fæst með öflugum bókasöfnum.
Í bandarískri rannsókn sem birtist árið 2024 komust hagfræðingar að því að fjárfestingar í almenningsbókasöfnum juku aðsókn, útlán barnabóka og þátttöku barna í viðburðum. Bæting barna í lestrarprófum í nálægum skólahverfum var mælanleg. Útgjöldin voru færð hjá bókasöfnunum, en ávinningurinn ekki nema að hluta.
Ábyrgðin
Það er góður eiginleiki að sýna ábyrgð. Það er líka mjög gagnlegt að kunna að telja, mæla og geta byggt ákvarðanir sínar á gögnum. Upplýsingar eru lykillinn að svo mörgu. Mælikvarðarnir sem lagðir eru til að verði notaðir til að ákvarða framtíð bókasafna borgarinnar, eins og þeir hafa birst okkur, ná hins vegar ekki yfir virði þeirra.
Meira að segja einlægustu talsmenn þess að fara vel með fé skattborgaranna, sem litu á ríkið sjálft sem vandamál, skildu þetta. Breski forsætisráðherrann Margaret Thatcher, sem sagði að það væri „ekkert til sem heitir opinbert fé; það er aðeins fé skattgreiðenda“, og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti, sem sagði að níu skelfilegustu orð enskrar tungu væru: „Ég er frá ríkinu og er hér til að hjálpa“.
Þetta sama fólk skildi mikilvægið sem fælist í því að búa til almannarými til að móta eigin skoðanir og bæta við sig þekkingu. „Við verðum að hafa bókasafn, almenningsbókasafn, svo að hver sem er geti farið þangað, lesið bækurnar og lært af þeim,“ sagði Thatcher, og rifjaði upp vikulegar heimsóknir á bókasafnið sitt, þar sem hún las bækur um stjórnmál, sem mótuðu sýn hennar á samfélagið.
„Mælikvarðarnir sem lagðir eru til að verði notaðir til að ákvarða framtíð bókasafna borgarinnar, eins og þeir hafa birst okkur, ná hins vegar ekki yfir virði þeirra“
„Að efla lestraráhuga barna skiptir sköpum fyrir þroska þeirra og velferð og fyrir áframhaldandi heilbrigði og þrótt samfélaga okkar og lands,“ sagði svo hugmyndafræðilegur bandamaður hennar í Bandaríkjunum, Reagan, þegar hann tilkynnti um ákvörðun sína að gera árið 1989 að ári ungra lesenda.
Reagan hvatti svo fjölskyldur og skóla til að hvetja börn til reglulegra bókasafnsheimsókna.
Læsi
Það er ekki síður mikilvægt að vita hvað maður er að telja og hvenær það hjálpar til að skilja umhverfið í kringum sig. Þegar einblínt er um of á krónur og aura, á rekstrarreikninginn, er hætt við að óafvitandi verði stjórnmálin arkitektar einangrunarinnar. En kannski er það bara einhvers konar skortur á lesskilningi á samfélagið.





















































Athugasemdir