Doktor í raddfræðum varar eindregið við öskurherferð

„Þetta má ekki gerast,“ segir Valdís Ingibjörg Jóns­dóttir, doktor í radd­fræðum, um nýja auglýsinga­herferð þar sem fólk er hvatt til að öskra til að losa um streitu. Öskur geti valdið raddskaða og því sé verið að leysa einn vanda en búa til annan.

Öskrað við Skógafoss. Mynd úr herferð Íslandsstofu.
Öskrað við Skóga­foss. Mynd úr her­ferð Íslands­stofu. Mynd: Íslandsstofa

„Ég vara eindregið við þessu. Í guðs almáttugs bænum – það verður að stoppa þetta,“ segir Valdís Ingibjörg Jóns­dóttir, doktor í radd­fræðum, um nýja auglýsinga­herferð Íslands­stofu þar sem fólk er hvatt til að öskra til að losa um streitu. Ekki nóg með það heldur á að útvarpa öskrunum úti í íslenskri náttúru en eitt helsta aðdráttarafl hennar til þessa hefur verið kyrrðin. Kyrrðin sem einmitt getur verið streitu­losandi.

Valdísi var brugðið er hún sá fréttir af öskur­herferðinni sem nú hefur verið ýtt úr vör með það að markmiði að hvetja fólk til að ferðast til Íslands. Fréttirnar sá hún bæði í íslenskum fjöl­miðlum og í danska sjón­varpinu. „Þannig að þetta er orðið það sem krakkarnir kalla „hot“ og „in“. Það þarf að stoppa þetta af.“

Doktor Valdís hefur í tæpa hálfa öld verið upptekin af röddinni og barist fyrir vernd hennar. Hún er menntaður grunn­skóla­kennari og heyrnar- og talmeinafræðingur en að auki er hún með meistara­gráðu sem og doktors­gráðu í rödd og radd­umhirðu (e. Voice ergonomics).

Svo þegar Valdís talar ætti fólk að leggja við hlustir. Hún veit meira en flestir um þetta fyrirbæri röddina sem við tökum flest sem sjálfsögðum hlut.

Það skýrir einmitt að mati Valdísar þekkingar­leysið í samfélaginu – hið sama þekkingar­leysi og einkennir svo herferðina. „Röddin myndast fyrirhafnar­laust og án þess að við verðum virkilega vör við það,“ útskýrir hún. „Radd­böndin eru tilfinninga­laus og álagið sem þau verða fyrir veldur því ekki sársauka. Ef ég byði þér að fara úr skónum og sparka í vegg myndir þú auðvitað segja nei. Þá myndi ég spyrja af hverju og þú myndir svara: Af því að ég myndi finna til og jafnvel brjóta eitthvað. Þetta er nákvæmlega sama og það sem gerist með röddina nema það að þú finnur ekki til þegar þú reynir á hana af krafti.“

Það er einmitt þessi kraftur sem beita þarf á radd­böndin til að öskra sem skapar hættuna á skaða, jafnvel til frambúðar. „Það er ábyrgðar­hluti að hvetja fólk til að losa sig við streitu á þennan hátt. Þá er búið að leysa eitt vandamál til þess að fá annað í staðinn. Þetta byggir á þekkingar­leysi. Ef ferðamála­ráðherra vissi af þessu þá myndi hún örugglega ekki vera að hvetja fólk til að öskra.“

En hvers vegna skaðar það röddina að öskra?

Einföld samlíking í boði Valdísar: „Það er best að lýsa þessu með því að ímynda sér fána sem er að berjast um í tíu vind­stigum. Það álag verður að lokum til þess að hann trosnar í endana – það gefur sig eitthvað. Og það er það sem gerist í raun og veru með radd­böndin.“

Og hér er ein til viðbótar: „Ef þú ættir nýtt stofuborð sem þú hefðir keypt fyrir tugi þúsunda þá myndi þér aldrei detta í hug að fara með sand­pappír á það. Af hverju ekki? Af því þú eyði­leggur það.“

Og þetta er það sem öskur gerir. „Það verður of mikill kraftur á radd­böndin svo þau gefa eftir.“

Og nú er augljós­lega brýn þörf á því að hefja vitundar­vakningu um röddina því þótt Valdís hafi árum saman í ræðu og riti fjallað um mikilvægi hennar „finnst mér ég stundum vera hrópandi í eyði­mörkinni.“

Og svo er öskur­herferð kynnt til sögunnar.

Valdís hefur lengi barist fyrir því að dregið verði markvisst úr hávaða í leik- og grunn­skólum. Þar getur hávaðinn orðinn mikill og jafnvel einkennst af öskrum. Það skýrist af því að börn þekkja oft ekki muninn á því að kalla og öskra. „En það er töluverður munur á þessu tvennu. Hann felst í því að það getur verið skaðlegt að öskra.“

Í rann­sóknum sínum hefur Valdís beint sjónum sínum að röddum kennara. Hjá þeim líkt og í mörgum starfs­stéttum er röddin þeirra helsta atvinnu­tæki. En óboðlegar aðstæður geta skapast, m.a. vegna of margra nemenda í hverri kennslu­stund og þar fram eftir götunum, sem verða til þess að kennarar þurfa að hækka róminn. Og að gera það yfir langan tíma býður hættunni heim. Við þessar óboðlegu aðstæður þurfa börnin svo að búa með tilheyrandi einbeitingar­skorti.

„Raddskaði er falinn atvinnu­sjúkdómur hér á landi,“ segir Valdís og að rann­sóknir sínar bendi til að um tíu prósent kennara séu ekki með boðlega rödd til kennslu. Þeir kennarar sem helst eru útsettir fyrir raddskaða eru íþrótta­kennarar og leik­skóla­kennarar. Í viðtali við N4 fyrir nokkru sagði leik­skóla­kennari sögu sína af því að missa röddina og þá innilokunar­kennd sem hann upplifði í kjölfarið.

„En um leið og röddin er orðin fagur­fræðileg, hjá söngvurum og leikurum, þá er farið að hugsa betur um hana, það er passað betur upp á hana og hlúð að henni,“ segir Valdís.

Það eru því til aðferðir til að vernda röddina – en þeim þarf þá að beita.

Líka rannsóknir til um raddskaða af öskrum

En getur eitt öskur skemmt röddina? Eða þarf að öskra oft á löngum tíma svo skaði verði?

Valdís minnir á að líkami hvers og eins sé einstakur. „Það sem einn þolir lítið af getur annar þolað mikið af.“ Öskur sé manninum eiginlegt hljóð. En með það verði að fara sparlega.

Í frétta­tilkynningu Íslands­stofu um öskur­herferðina umtöluðu kom fram að hún sæki „innblástur til kenninga sálfræðinga um streitu­losandi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum“. Valdís segir að það megi vel vera að sálfræðingar hafi margar rann­sóknir að styðjast við sem bendi til þessa. „En það eru líka til jafn virtar rannsókna­greinar um hvernig öskur getur skaðað rödd og jafnvel eyðilagt hana.“

Hún bendir einnig á að það að missa röddina geti valdið ýmiskonar vanlíðan, meðal annars streitu. „Það sem hryggir mig mest er hversu almennt þekkingar­leysið á mikilvægi raddarinnar er. Þarna hefur mennta­kerfið brugðist. Enn taka allir röddinni sem sjálfsögðum hlut, rétt eins og að anda og borða. En röddin er það ekki og það þarf ekki háskóla­gráðu til að skilja það. Allir sem hugsa út í þetta ættu að sjá að það hlýtur að vera líffæra­starfsemi á bak við radd­myndun.“

Þess vegna finnst henni í „raun og veru svakalegt“ að sjá öskur­herferðina verða að veruleika. „Að leggja það til að fólk öskri til að losa um streitu á kostnað einhvers annars. Er ferðamála­ráðherra tilbúinn að leggja blessun sína yfir það?“

Kyrrðin er slakandi fyrirbæri

Hægt væri að finna ýmsar leiðir til að hjálpa fólki að fá útrás. Að hvetja til dans og söngs séu ágæt dæmi. „Fyrir utan það að ég myndi ekki vilja vera úti í íslenskri náttúru, þangað sem ég fer til að reyna að komast úr hávaðanum, til að hlusta á öskur, þó að desibelunum eigi að stilla í hóf. Ég hélt að við værum að auglýsa þessa náttúru okkar einmitt sem stað þar sem hægt er að njóta kyrrðar sem hvergi er hægt að fá annars staðar. Ég hefði haldið að kyrrðin væri einmitt slakandi fyrirbæri.“

Valdís er fylgjandi því að farið verði í átak til að auglýsa landið okkar en að aðferðinni sem sé beitt í þessari herferð – að hvetja til öskra – sé hins vegar byggð á þekkingar­leysi. Og þegar þekkingar­leysi og sársauka­leysi öskra koma saman blasi hættan við. „Við megum ekki vera að bjóða fólki upp á að skemma í sér röddina. En með þessu er verið að gera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár