Segir áhrifamátt óbyggðanna ekki síst felast í þögninni

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gefur lítið fyrir nýja her­ferð sem ætlað er að kynna landið. „Í guð­anna bænum, kæra Íslands­stofa, ekki gera þetta,“ segir hann.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Hug­myndin um Ísland sem urð­un­ar­stað öskra er soldið góð í tvær sek­úndur en verður svo strax eig­in­lega ansi vond. Þetta ger­ist þegar fengin er til verka aug­lýs­inga­stofa með lítil eða mjög laus­bundin tengsl við Ísland – landið er þar en ekki hér í vit­und fólks­ins sem þetta vinnur. Útkoman er næstum því eins og afurð heims­valda­stefn­unnar.“

Þetta skrifar Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Tilefnið er ný her­ferð Íslands­stofu þar sem útlend­ingar eru hvattir til að taka upp öskur sín sem síðan munu glymja í gegnum hátal­ara víðs vegar um Ísland. Streitu­losun og ferða­lög eru mark­miðin.

Þing­mað­ur­inn segir að hug­myndin snú­ist um „að hægt sé að dömpa hér öllu erg­elsi, eins og heims­veldin urða kjarn­orku­úr­gang­inn sinn á eyjum þar sem býr varn­ar­laust fólk. Þú öskrar heima hjá þér og það kemur svo út um gulan – gulan! – risa­há­tal­ara ein­hvers staðar í óbyggð­unum hér.“

„Í guðanna bænum, kæra Íslandsstofa, ekki gera þetta“

[links]Hann bætir því við að sá sem hefur snefil af til­finn­ingu fyrir íslenskri nátt­úru, óbyggð­unum, viti að áhrifa­máttur þeirra felist ekki síst í þögn­inni, þess­ari vold­ugu kyrrð.

„Hver sá sem vinnur með það að selja ferðir til Íslands hlýtur að byrja á því að vinna með þetta: þögn öræf­anna – hina heilögu þögn öræf­anna sem umlykur stór­borg­ar­bú­ann og afvopnar hann, strýkur honum ásamt gol­unni á vanga og knýr hann til að leita inn á við og horfast í augu við innri mann og allt sitt bauk í líf­inu fram að því. Í þessu felst vitr­unin sem býður allra þeirra sem halda á íslenska hálendið, og ganga á vit ein­mana­legrar tignar þess. Svo getur verið kikk að öskra á Detti­foss eða brimið, en þá verður maður að vera þar.

Maður er kannski á gangi á Lauga­veg­inum. Maður er einn með sjálfum sér og öllu því sem maður hefur iðjað. Maður horfir á strá. Maður sér fugl. Maður finnur fyrir lík­am­anum, hverjum vöðva, hverri taug, og maður er í þann veg­inn að kom­ast að mik­il­væg­ustu ákvörðun lífs­ins eftir langa og djúpa umþenk­ingu þegar skyndi­lega berst garg úr risa­stórum gulum hátal­ara frá örviln­uðum ung­lingi í Maine í Banda­ríkj­unum sem er að verða vit­laus á mömmu sinni. Í guð­anna bænum, kæra Íslands­stofa, ekki gera þetta. Segiði svo aug­lýs­inga­stof­unni að spyrja næst ein­hvern Íslend­ing hvort þetta sé góð hug­mynd,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár