Öskur útlendinga munu hljóma á sjö stöðum á Íslandi

Í nýrri her­ferð Íslands­stofu eru útlend­ingar hvattir til að taka upp öskur sín sem síðan munu glymja í gegnum hátal­ara víðs vegar um Ísland. Streitu­losun og ferða­lög eru mark­miðin.

Herferðin styðst við kenningar um að það að öskra af lífs og sálarkröftum sé streitulosandi.
Her­ferðin styðst við kenn­ingar um að það að öskra af lífs og sál­ar­kröftum sé streitu­los­andi. Mynd: Íslandsstofa

„Inspired by Iceland býður fólki um allan heim að losa um upp­safn­aða streitu vegna Covid-19 með því að láta öskur sitt hljóma á Íslandi.“

Á þessum orðum hefst frétta­til­kynn­ing frá Íslands­stofu sem send var út til fjöl­miðla í morgun. Í henni kemur fram að hátöl­urum hafi verið komið fyrir víðs vegar um landið og að hægt sé að taka öskrin upp með aðstoð tölvu eða síma á vef­síð­unni www.lookslikeyouneediceland.com næstu tvær vikur.

[adspot]

„Það verða sjö hátal­arar sem koma öskr­unum til skila á Íslandi og getur fólk valið um stað­setn­ingu,“ segir enn­fremur í til­kynn­ing­unni. Hátal­ar­arnir eru í Viðey í Reykja­vík, Fest­ar­fjall við Grinda­vík, í nágrenni Skóg­ar­foss, skammt utan við Djúpavog, við rætur Snæ­fells­jök­uls, við Kálfs­ham­ars­vík og við Rauða­sand á Vest­fjörðum. „Notendur fá svo að lokum mynd­bands­upp­töku af því þegar öskrið þeirra „glymur“ á Íslandi. Íslend­ingar þurfa þó ekki að ótt­ast að gremju­öskur útlend­inga skemmi sum­ar­frí þeirra þar sem hljóð­styrknum er stillt í hóf.“

Her­ferðin hefur hlotið nafnið „Let It Out“ eða „Losaðu þig við það“. Í til­kynn­ing­unni segir að hún sæki „inn­blástur til kenn­inga sál­fræð­inga um streitu­los­andi áhrif þess að öskra af öllum lífs og sálar kröftum“. Í könnun sem fram­kvæmd var á erlendum mörk­uðum fyrir Inspired by Iceland í byrjun júní sögð­ust 40 pró­sent aðspurðra finna fyrir streitu­ein­kennum vegna Covid-19, og 37 pró­sent svör­uðu að ástandið hefði haft nei­kvæð áhrif á sál­ar­tetrið. „Langvinn inni­vera, ein­semd, enda­lausir fjar­fundir og röskun á dag­legu lífi, auk tak­mark­ana á ferða­lögum milli landa, hafa aukið streitu fólks. Her­ferð­inni er ætlað að draga fram kosti Íslands sem áfanga­staðar.“

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Sigríði Dögg Guð­munds­dóttur, fag­stjóra ferða­þjón­ustu hjá Íslands­stofu, að með her­ferð­inni sé ætl­unin að vekja athygli til­von­andi ferða­manna á því að það sé „til­tölu­lega öruggt að ferð­ast til Íslands og að hér er hægt að upp­lifa fal­lega nátt­úru í fámenni, en það er eitt­hvað sem við teljum að fólk muni sækj­ast eftir þegar áhugi fólks á að ferð­ast eykst á ný“.

Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að það sé spenn­andi að geta boðið fólki að upp­lifa Ísland með þessum hætti. „Ég held að við þurfum öll að losa um streitu eftir und­an­farna mán­uði, og Ísland hefur allt til að bjóða fyrir fólk sem þarf á end­ur­nær­andi upp­lifun að halda. Hvort sem það er staf­ræn heim­sókn til að losa um streitu eða raun­veru­leg heim­sókn í afslappað frí“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár