Ákærur liggja fyrir í Namibíu

Fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra landsins og þrír aðrir hafa verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 milljónir namibískra dollara í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Samherja eftir­sóttan kvóta í landinu.

Sexmenningarnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi.
Sex­menn­ing­arnir leiddir fyrir rétt fyrir helgi. Mynd: Skjáskot

Bernhard Esau, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, Sacky Shanghala, fyrr­verandi dómsmála­ráðherra Namibíu, og þrír aðrir hafa verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 milljónir namibískra dollara, jafnvirði 860 milljóna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Samherja eftir­sóttan kvóta í landinu. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í fréttinni kemur jafnframt fram að þeir sem komu fyrir dómara í dag hafi auk Shanghala og Eseu verið James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórnar­formaður namibísku ríkis­útgerðarinnar Fishcor í síðustu viku, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, Ricardo Gustavo, samstarfs­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig tengist Hatuikulipi fjöl­skyldu­böndum.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að þeir hefðu dregið til baka beiðni sína um lausn úr haldi gegn trygg­ingu og verða þeir því áfram í gæslu­varð­haldi til 20. febr­úar næst­kom­andi.

Í frétt RÚV um málið segir að Esau sé ákærður fyrir að hafa misbeitt valdi sínu sem sjávar­útvegs­ráðherra á árunum 2014 til 2019. Shangala, James Hatuikulipi, Fitty Hatuikulipi og Gustavo sé gert að hafa aðstoðað Esau við að misbeita valdi sínu og hagnast persónu­lega.

„Esau, Shanghala, Hatuikulipi-frændurnir og Gustavo eru ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 milljónir namibískra dollara, jafnvirði 860 milljóna íslenskra króna, í greiðslur frá Mermaria Seafood Namibia og Esja Seafood á árunum 2014 til 2019. Þeir eru einnig ákærðir fyrir skattsvik og að hafa blekkt namibísku ríkis­stjórnina,“ segir í frétt RÚV. Þá séu sexmenningarnir ákærðir fyrir peninga­þvætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár