Valdatafl í lögreglunni

Þeir sem rann­sök­uðu leka­málið hafa orðið undir. Nýi lög­reglu­stjór­inn fór í bága við lög í aðkomu sinni að því.

Hrókerað við lekamálið
Hrókerað við leka­málið Hörður Jóhann­es­son og Jón H.B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjórar, Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, nýr aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri, Sigríður Björk Guð­jóns­son, nýr lög­reglu­stjóri, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra og Þórey Vil­hjálms­dóttir, einnig aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra.

Eftir að Stefán Eiríks­son vék úr emb­ætti lög­reglu­stjóra í kjöl­far rann­sóknar leka­máls­ins og Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við emb­ætt­inu hafa umtals­verðar hróker­ingar átt sér stað innan lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á meðal breyt­inga er að tveir helstu sam­starfs­menn Stefáns hafa verið settir til hliðar. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa svipt­ingar und­an­far­inna mán­aða, ekki síst hin umfangs­miklu starfs­manna­skipti milli lög­reglu­emb­ætta, valdið ólgu og óánægju innan lög­regl­unnar. Sjálf er Sigríður Björk undir smá­sjá Per­sónu­verndar vegna aðkomu sinnar að leka­mál­inu.

Grein þessi birt­ist í febr­ú­ar­út­gáfu Stund­ar­innar og er aðgengi­leg áskrif­endum í heild hér að neðan.

Jón H. B. Snorra­son, sak­sókn­ari lög­reglu, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri, og stað­geng­ill Stefáns, hefur verið fluttur úr aðal­stöðvum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við Hverf­is­götu og yfir á Rauð­ar­ár­stíg þar sem starfs­menn ákæru­sviðs eru til húsa. Þá var Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri fluttur til emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra í tíma­bundin sér­verk­efni þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn en Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, fyrrum aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, skip­aður aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár