Þrjú tryggingafélög tapa 610 milljónum á GAMMA – Verið að kanna refsiverða háttsemi

Félag fyrr­ver­andi aðal­eig­anda og ann­ars stofn­enda GAMMA hagn­að­ist um millj­arð króna í fyrra. VÍS, Sjóvá og TM, sem eru meðal ann­ars í eigu líf­eyr­is­sjóða, hafa tapað hund­ruð millj­óna vegna nið­ur­færslu á GAMMA-sjóði.

Trygg­inga­fé­lagið VÍS sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær­kvöldi þar sem gert var grein fyrir því að afkoma félags­ins til árs­loka verði óhag­stæð­ari en spá hafði gert ráð fyrir. Samkvæmt drögum að árs­hluta­upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung verður afkoman nei­kvæð um 370 til 420 millj­óna króna en áður hafði verið gert ráð fyrir því að hagn­aður upp á 138 millj­ónir króna yrði af starf­semi VÍS á árs­fjórð­ungnum.

Í til­kynn­ing­unni segir að marg­þættar ástæður séu fyrir þess en að mest vigti verri afkoma af skráðum hluta­bréfum í eigu félags­ins. Einnig skiptir máli að VÍS átti hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum GAMMA: Novus, sem var færður niður í fyrra­dag um millj­arða króna. Nið­ur­færsla VÍS vegna þessa nemur 155 millj­ónum króna.

Þar með hafa öll þrjú skráðu trygg­inga­fé­lög lands­ins fært niður eignir vegna GAMMA: Novus. Bókfært tap TM vegna fjár­fest­inga í sjóðnum nemur um 300 millj­ónum króna og Sjóvá bók­færði tap upp á 155 millj­ónir króna.

Sam­an­lagt nemur bók­fært tap trygg­inga­fé­lag­anna þriggja vegna GAMMA: Novus því 610 millj­ónum króna. Á meðal helstu eig­enda allra þriggja eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem bera því óbeint umrætt tap. Á meðal ann­arra fjár­festa í sjóðnum voru Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, aðal­eig­andi Ísfélags Vest­manna­eyja og útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, og fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir.

Í Frétta­blað­inu í dag er greint frá því að hópur hlut­deild­ars­kirtein­is­hafa kanni nú rétt­ar­stöðu sína um hvort refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað í tengslum við starf­semi sjóðs­ins.

Búið að skipta um sjóðstjóra

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjör Novus-sjóðs­ins í fyrra hafi eigið fé hans verið 4,8 millj­arðar króna. Um síð­ustu ára­mót var það sagt 4,4 millj­arðar króna.

Í ein­blöð­ungi sem sendur var út til hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í gær kom fram að eigið fé hans væri 42 millj­ónir króna. Eigið féð hafði gufað upp og fyrir lá að virði eigna hafði verið stór­lega ofmetið. Helsta eign sjóðs­ins er Upp­haf fast­eigna­fé­lag slhf. sem hefur byggt nokkur hund­ruð íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá því að sjóð­ur­inn var settur á lagg­irnar 2013.

Auk þess réðst sjóð­ur­inn í skulda­bréfa­út­gáfu í byrjun júní sem seld var á þeim for­sendum að eigið fé GAMMA: Novus væri mun hærra en það reynd­ist eftir end­ur­mat á eignum.

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, sem var sjóðs­stjóri GAMMA: Novus, mun vera að hætta störfum hjá GAMMA. Máni Atlason, nýr fram­kvæmd­stjóri GAMMA, hefur tekið við stýr­ingu á sjóðnum.

Félag fyrrverandi forstjóra hagnaðist um milljarð

Kvika keypti GAMMA form­lega fyrr á þessu ári þó að kaupin hafi verið að mestu frá­gengin í nóv­em­ber í fyrra, með fyr­ir­vara um sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Kaup­verðið átti að sam­an­standa af 839 milljón króna greiðslu í reiðufé, hlut­deild­ars­kirteinum í sjóðum GAMMA og árang­urstengdum greiðslum. Mikil til­tekt hefur staðið yfir í sjóðum síð­ar­nefnda félags­ins síðan þá. Sjóðum hefur verið lokað, aðrir sam­ein­aðir öðrum sjóðum innan Kviku­sam­stæð­unnar og tveir sjóðir, áður­nefndur Novus og útrás­ar­sjóð­ur­inn GAMMA: Anglia, verið færðir veru­lega niður. Kjarninn greindi frá því að gengi Anglia-sjóðs­ins hafi verið lækkað um næstum helm­ing 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, úr 105 í 55. Á meðal fjár­festa í honum voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Helstu stjórn­endur GAMMA, sem var stofnað fyrir rúmum ára­tug, hafa verið látnir fara á und­an­förnum miss­erum. Í fyrra­vor lét Gísli Hauksson, annar stofn­enda og fyrr­ver­andi for­stjóri og stjórn­ar­for­maður GAMMA, af störfum og um síð­ustu mán­aða­mót var greint frá því að Valdimar Ármann, sem tók við sem for­stjóri, væri líka hættur.

Kvika átti, sam­kvæmt til­kynn­ingu að greiða um 2,4 millj­arða króna fyrir GAMMA og hafði verð­mið­inn þá lækkað úr 3,8 millj­örðum króna á nokkrum mán­uðum. Bankinn er ekki búinn að greiða nema hluta þess kaup­verðs en sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjöri hans nemur sú greiðsla um 1,4 millj­örðum króna. Það sem eftir stendur er að uppi­stöðu árang­urstengdar greiðslur og því óvíst hvert loka­verðið verður.

Frétta­blaðið greinir frá því í morgun að fjár­fest­inga­fé­lags Gísla Hauks­sonar hafi hagn­ast um tæp­lega 1,1 millj­arð króna á árinu 2018 og að hagn­að­ur­inn hafi auk­ist um einn millj­arð króna milli ára. Félagið, Ægir Invest, hélt á um 30 pró­sent hlut Gísla í GAMMA. Í Frétta­blað­inu segir að hinn mikli hagn­aður skýrist af verð­breyt­ingu á eign­ar­hlutum í inn­lendum félögum í eigu fjár­fest­inga­fé­lags Gísla. Í félag­inu eru eignir sem metnar eru á rúm­lega 1,5 millj­arð króna en skuldir þess námu 189 millj­ónum króna. Á meðal eigna eru list­munir sem metnir voru á 123 millj­ónir króna.

Þar er einnig sagt frá því að verið sé að taka saman greiðslur sem runnu frá fast­eigna­fé­lag­inu Upphafi, í eigu GAMMA: Novus, til félaga sem tengj­ast Pétri Hann­essyni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Upphafs, til starfs­manna­leig­unnar Elju, sem er stýrt og að hluta í eigu Arnars Hauks­sonar, bróð­urs Gísla Hauks­sonar og til verk­fræði­stof­unnar Erils sem var eft­ir­lits­að­ili með fast­eigna­verk­efnum Upphafs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár