Hvað gerðist eiginlega hjá GAMMA?

Tveir sjóðir í stýr­ingu GAMMA færðu niður virði eigna sinna um millj­arða króna. Fleiri sjóðir á vegum félags­ins hafa verið í vand­ræðum. Kaup­endur af skulda­bréfum sem gefin voru út í byrjun sum­ars eru fok­illir með upp­lýs­ing­arnar sem þeim voru gefnar.

GAMMA Capital Mana­gement hefur farið mik­inn í íslensku fjár­mála­lífi und­an­far­inn ára­tug. Þar hefur helst vakið athygli fjár­fest­ingar í nafni félags­ins í fast­eignum sem leiddu meðal ann­ars til þess að Almenna leigu­fé­lagið, eitt stærsta einka­rekna leigu­fé­lag lands­ins, var sett á fót. Vöxt­ur­inn var mik­ill, félagið var komið með 137 millj­arða króna í stýr­ingu í lok árs 2017 og upp­gef­inn rekstr­ar­hagn­aður umtals­verður. GAMMA var orðið aðal styrkt­ar­að­ili Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, styrkti skák­mót og lét að sér kveða víða ann­ars staðar í menn­ing­ar­líf­inu með því t.d. að sýna dýr mynd­list­ar­verk í höf­uð­stöðvum sínum.

Í fyrra var orðið ljóst að eitt­hvað var ekki eins og það átti að vera. GAMMA tap­aði 268 millj­ónum króna, dregið hafði verið úr útrás félags­ins og annar stofn­enda þess hafði horfið frá. Verið var að reyna að finna kaup­anda að GAMMA og eftir nokkrar erf­iðar til­raunar náð­ist sam­komu­lag við Kviku banka um slíkt.

Síðan að þau kaup gengu form­lega í gegn, snemma á þessu ári, hefur staðið yfir til­tekt. Hún náði ákveðnu hámarki í gær þegar til­kynnt var um nið­ur­færslu á eigin fé tveggja sjóða upp á marga millj­arða króna.

Verðið lækkaði

Í hálfs­árs­upp­gjöri Kviku banka fyrir árið 2019 er fjallað um kaupin á GAMMA. Í þeim texta sem þar er birtur kemur skýrt fram að áhyggjur voru af stöðu sjóða í stýr­ingu hjá GAMMA. Upp­haf­lega átti kaup­verðið á GAMMA að vera 3,8 millj­arðar króna, en það lækk­aði hratt og þegar greint var frá því að skrifað hefði verið undir kaup­samn­ing með fyr­ir­vara, í nóv­em­ber 2018, var kaup­verðið sagt 2,9 millj­arðar króna.

Miðað við bók­fært virði árang­urstengdra þókn­ana í lok júní 2018 átti það að fara niður í 2,4 millj­arða króna. Það átti að greið­ast með reiðufé upp á 839 millj­ónir króna, hlut­deild­ar­skír­teinum í sjóðum GAMMA að verð­mæti 535 millj­ónir króna og árang­urstengdum greiðslum upp á 1.032 millj­ónir króna. Kaupin gengi svo form­lega í gegn í mars 2019.

Fyrir lá að staða sjóða GAMMA var ekki góð á þessum tíma. Í Frétta­­blað­inu í sumar var greint frá því að fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hefði lánað GAMMA einn millj­­arð króna haustið 2018, þegar kaup Kviku voru yfir­vof­andi. Lánið var veitt til að bæta lausa­­fjár­­­stöðu GAMMA, sem var þá mjög döp­­ur. Stoðir fengu 150 millj­­ónir króna í þóknun fyrir að veita lánið sem var að fullu greitt upp í byrjun mars 2019, eða strax eftir að Kvika banki hafði gengið form­lega frá kaup­unum á GAMMA.

Um mitt þetta ár hafði Kvika ein­ungis greitt tæp­lega 1,4 millj­arð króna af kaup­verð­inu. Auk þess er greint frá því í hálfs­árs­upp­gjöri Kviku að 200 millj­ónir króna af kaup­verð­inu myndu verða lagðar inn á svo­kall­aðan escrow-reikn­ing til að mæta mögu­legum kröfum sem Kvika banki gæti gert vegna kaupanna næstu þrjú árin eftir að kaupin voru frá­gengin. Ef slíkar kröfur mynd­ast ekki á tíma­bil­inu verður fjár­hæðin greidd út til fyrr­ver­andi eig­enda GAMMA.

Vegna þess að stór hluti kaup­verðs Kviku banka á GAMMA er bund­inn í árang­urstengdum þókn­unum þá liggur áhættan á því að eignir GAMMA súrni hjá fyrr­ver­andi eig­endum félags­ins, ekki bank­anum.

Í gær var greint frá því að slík súrnun hefði átt sér stað.

Eigið fé þurrkaðist út

Snemma í gær­morgun birt­ist til­kynn­ing í Kauphöll Íslands um að tveir fag­fjár­festa­sjóðir í rekstri GAMMA, Novus og Anglia, væru í mun verra ásig­komu­lagi en gert hafði verið ráð fyrir. Skráð gengi þeirra hefði verið lækkað sem því nemur. Áhrifin af þessu á afkomu Kviku banka yrðu engin. Það saman verður ekki sagt um þá sem áttu hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum.

Kjarninn greindi frá því síð­degis í gær að sam­kvæmt hálfs­árs­upp­gjör Novus-sjóðs­ins í fyrra hafi eigið fé hans verið 4,8 millj­arðar króna. Um síð­ustu ára­mót var það sagt 4,4 millj­arðar króna.

Í ein­blöð­ungi sem sendur var út til hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa í gær kom fram að eigið fé hans væri 42 millj­ónir króna. Eigið féð hafði gufað upp og fyrir lá að virði eigna hafði verið stór­lega ofmetið. Helsta eign sjóðs­ins er Upp­haf fast­eigna­fé­lag slhf. sem hefur byggt nokkur hund­ruð íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá því að sjóð­ur­inn var settur á lagg­irnar 2013.

Í ein­blöð­ungnum var nið­ur­færslan á eignum Novus útskýrð með því að raun­veru­leg fram­vinda til­tek­inna verk­efna hefði verið ofmetin. „Þá hefur fram­kvæmda­kostn­aður verið tals­vert yfir áætl­unum á árinu. Fyrri mats­að­ferðir tóku ekki að fullu til­lit til fjár­magns­kostn­aðar félags­ins auk þess sem hann hækk­aði veru­lega með útgáfu skulda­bréfs (UPPH21 0530) í vor. Vænt­ingar um sölu­verð íbúða og þró­un­ar­eigna hafa einnig verið end­ur­metn­ar.“

Skuldabréfaútboð fyrir örfáum mánuðum

Þetta skulda­bréfa­út­boð, upp á 2,7 millj­arða króna að nafn­verði, sem gefið var út í vor á eftir að reyn­ast mikið þrætu­epli næstu miss­erin. Við­mæl­endur Kjarnans sem tengj­ast aðilum sem keyptu í því útboði telja að það hafi farið fram á blekk­ing­ar­grund­velli. Reyndar gekk alls ekki vel að selja útgáf­una til að byrja með. Við­mæl­endur Kjarnans úr fjár­mála­geir­anum segja að það hafi þurft að hækka vext­ina veru­lega til að því. Á end­anum urðu þeir 15 pró­sent og áttu að greið­ast í einni greiðslu með höf­uð­stólnum þann 30. maí 2021.

Útgáfu­dagur skulda­bréfa­flokks­ins er 5. júní 2019.

Sigurður Við­ars­son, for­stjóri trygg­inga­fé­lags­ins TM, sagði við Morg­un­blaðið í dag að þegar þessi sjóður hafi verið að selja skulda­bréf í maí á þessu ári hafi stöð­unni verið lýst sem allt annarri. Þ.e. að eigið fé sjóðs­ins væri yfir fimm millj­arðar króna. „Þetta er nátt­úr­lega grafal­var­legt mál að menn sem eru að selja sig út sem sér­fræð­ingar á þessu sviði halda ekki betur á spöð­unum en þetta. Ég myndi halda að skulda­bréfa­eig­endur myndu alla­vega vilja skoða málið vel.“

Skulda­bréfin voru seld með veði í fjöl­mörgum eignum, meðal ann­ars öllu hlutafé í Upphafi fast­eigna­fé­lagi, Upphafi fast­eignum og fjórum öðrum félögum. Auk þess voru ýmsar fjár­kröfum settar að veði og hlut­deild­ar­skír­teini í eigu Upphafs í Almenna leigu­fé­lag­inu eign­ar­halds­sjóði.

Óánægja Sigurðar og TM er skilj­an­leg. Félagið þurfti að senda frá sér afkomu­við­vörun í gær vegna nið­ur­færslu sjóð­anna. Bók­fært tap TM vegna GAMMA: Novus nemur um 300 millj­ónum króna. Trygg­inga­fé­lagið Sjóvá þurfti einnig að bók­færa tap upp á 155 millj­ónir króna vegna sjóð­ins.

Á meðal stærstu eig­enda beggja trygg­inga­fé­lag­anna eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, sem tapa þar af leið­andi óbeint á mál­inu.

Fleiri sjóðir sem voru súrir

Þetta eru ekki einu sjóð­irnir í stýr­ingu GAMMA sem verið hafa til vand­ræða. Snemma á þessu ári var greint frá því að tveir sjóð­ir í stýr­ing­u GAMMA keyptu sam­an­lagt skulda­bréf fyrir tvær millj­­ónir evra í frægu skulda­bréfa­út­boði WOW air í sept­em­ber í fyrra.

Í lok júní var greint frá því að tveimur fjár­fest­inga­sjóðum félags­ins, GAMMA: Total Return Fund og GAMMA: Global, hefði verið lokað og sjóðs­fé­lögum til­kynnt að við slit þeirra yrðu þeim fjár­munum sem myndu fást við sölu eigna ráð­stafað til hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafa.

GAMMA: Total Return Fund mat um tíma eignir sínar á yfir fimm millj­arða króna, á árinu 2017. Þegar ákveðið var að loka sjóðnum voru eignir í stýr­ingu hjá honum um 1,5 millj­arðar króna. Hluti þeirra var í óskráðum félögum.

Skömmu áður en að ofan­greindum tveimur sjóðum var lokað þá var fjórum sjóðum GAMMA rent saman við sjóði Júpíters, sem er líka í eigu Kviku banka

Þótt Kvika banki hafi keypt GAMMA, og þegar greint frá því opin­ber­lega í byrjun sept­em­ber að stjórn bank­ans hefði ákveðið að sam­eina alla eigna- og sjóða­­stýr­ing­­ar­­starf­­semi sam­­stæð­unn­­ar í eitt dótt­ur­fé­lag þá er enn starf­semi í gömlu höf­uð­stöðvum GAMMA.

Samhliða þeirri til­kynn­ingu var greint frá því að Valdimar Ármann myndi hætta sem for­stjóri GAMMA. Í gær var greint frá því að Máni Atlason yrði nýr fram­kvæmda­stjóri og tæki um leið yfir stýr­ingu á Novus-sjóðnum. Áður var Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sér­hæfðra fjár­fest­inga hjá GAMMA, sjóðs­stjóri Novus.

Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja til eru á einu máli um að það verði frek­ari afleið­ingar af mál­inu í nán­ustu fram­tíð.

Stofnaður til að fjárfesta eftir haftalosun

Hinn sjóð­ur­inn sem færður var niður, GAMMA: Anglia, var stofn­aður sum­arið 2017. Um var að ræða fimm millj­arða króna fast­eigna­sjóð í London sem átti að fjár­festa í hinum ýmsu verk­efn­um. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins frá þeim tíma var haft eftir Gísla Hauks­syni, þáver­andi stjórn­ar­for­manni og for­stjóra GAMMA, að frá­bær tíma­punktur væri fyrir Íslend­inga til að fjár­festa erlend­is. Ákveðið hefði verið að setja sjóð­inn á lagg­irnar í kjöl­far frétta um aflétt­ingu hafta á Íslandi og að umfang hans væri fimm millj­arðar króna. Þeir sem settu fé í sjóð­inn voru íslenskir ein­stak­lingar, trygg­inga­fé­lag og líf­eyr­is­sjóðir.

Í frétt­inni sagði Gísli að sjóð­ur­inn hefði getað orðið enn stærri, slíkur hefði áhug­inn á honum verið.

Enn hefur ekki verið greint frá því opin­ber­lega um hversu mikið Anglia-sjóð­ur­inn var færður niður, í hvaða fjár­fest­ingar hann réðst né hverjir það voru sem sett fjár­muni inn í hann.

Gísli, sem var annar stofn­enda GAMMA ásamt Agnari Tómasi Möller, lét af störfum hjá félag­inu í mars í fyrra eftir að end­ur­skoðun hafði átt sér stað á erlendri starf­semi þess. Í henni fólst meðal ann­ars að loka skrif­stofu GAMMA í Zürich í Sviss, innan við ári eftir að hún var opnuð. Auk þess hafði GAMMA verið með starf­semi í London og New York og haustið 2017 greindi Frétta­blaðið frá því að rekstr­ar­kostn­aður GAMMA hefði auk­ist um 65 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017 miðað við sama tíma­bil árið áður, þrátt fyrir að hagn­aður hefði dreg­ist saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár