Eigið fé sjóðs GAMMA þurrkaðist nánast út

Eigið fé GAMMA: Novus, sjóðs í stýr­ingu hjá GAMMA sem á fast­eigna­fé­lagið Upphaf, var metið á 4,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Eftir að eignir sjóðs­ins voru end­ur­metnar er eigið féð 40 millj­ónir króna.

Samkvæmt árs­upp­gjöri árs­ins 2018 var eigið fé fag­fjár­festa­sjóðs­ins GAMMA: Novus metið á 4,4 millj­arða króna. Eftir nýlegt end­ur­mat á eignum sjóðs­ins er eigið fé hans hins vegar áætlað 42 millj­ónir króna. Það var því ofmetið um rúm­lega 4,3 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Um mitt ár í fyrra voru eignir umfram skuldir metnar á rúm­lega 4,8 millj­arða króna.

[links]Þetta kemur fram í ein­blöð­ungum frá GAMMA:Novus, meðal ann­ars einum sem dag­settur er í dag, sem ætl­aður er hlut­deild­ars­kirtein­is­höfum en Kjarninn hefur undir höndum.

Helsta eign sjóðs­ins er Upphaf fast­eigna­fé­lag slhf. og í ein­blöð­ungnum kemur fram að und­an­farið hafi nýtt teymi sér­fræð­inga, auk utan­að­kom­andi ráð­gjafa, unnið að mál­efnum sjóðs­ins. Upphaf stendur fyrir bygg­ingu á nokkur hund­ruð íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Raunveruleg framvinda reyndist ofmetin

Í ein­blöð­ungi sem sendur var út vegna stöðu sjóðs­ins um síð­ustu ára­mót, þegar eigið fé Novus var sagt 4,4 millj­arðar króna, sagði: „Góð ávöxtun sjóðs­ins á rætur að rekja til vel tíma­settra fjár­fest­inga og ágætrar fram­vindu í þróun, fram­kvæmdum og sölu á vegum sjóðs­ins. Helsta ástæða þess að gengi sjóðs­ins hefur gefið eftir á sl. 12 mán­uðum er sú að upp­færsla kostn­að­ar­á­ætl­ana hefur leitt í ljós að bygg­ing­ar­kostn­aður var van­metin í fyrri áætl­unum, en einnig hafa horfur um raun­hækkun fast­eigna­verðs að mati grein­inga­deilda lækkað sem lækkar áætl­aðan hagnað í hverju verk­efni fyrir sig. Verk­efnin eru enn hag­kvæm þótt áætl­aður hagn­aður þeirra sé lægri en gert var ráð fyrir í upp­hafi árs 2018.“

[adspot]Í ein­blöð­ungnum sem sendur var út í dag er hins vegar birt allt önnur og mun verri staða. Eigið fé Novus hefur nán­ast þurrkast út eftir end­ur­mat. Þar kemur fram að breyt­ingar á stöðu sjóðs­ins skýrist af mörgum þáttum. Meðal ann­ars hafi raun­veru­leg fram­vinda til­tek­inna verk­efna verið ofmetin. „Þá hefur fram­kvæmda­kostn­aður verið tals­vert yfir áætl­unum á árinu. Fyrri mats­að­ferðir tóku ekki að fullu til­lit til fjár­magns­kostn­aðar félags­ins auk þess sem hann hækk­aði veru­lega með útgáfu skulda­bréfs (UPPH21 0530) í vor. Vænt­ingar um sölu­verð íbúða og þró­un­ar­eigna hafa einnig verið end­ur­metnar.“

Bitnar ekki á afkomu Kviku

Fyrr í dag sendi Kvika banki, sem keypti GAMMA síð­ast­liðið vor, frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem greint var frá því að tveir fag­fjár­festa­sjóðir, Novus og Anglia, hefðu verið í mun verra ásig­komu­lagi en gert hafði verið ráð fyrir og að skráð gengi þeirra hefði verið lækkað sem því nemur. Í til­kynn­ing­unni var hins vegar ekki greint frá því um hversu mikið sjóð­irnir voru færði niður.

Nið­ur­færslan á sjóð­unum mun ekki hafa nein telj­andi áhrif á afkomu Kviku banka á þessu ári. Enn er áætlað að afkoman verði jákvæð um 2,9 millj­arða króna fyrir skatta líkt og greint var frá í afkomu­spá sem birt var sam­hliða hálfs­árs­upp­gjöri bank­ans. Það þýðir að Kvika banki hafi tryggt sig vel fyrir því að sjóðir í eigu GAMMA gætu verið súrir þegar bank­inn gekk frá kaupum á félag­inu.

Búið að greiða út 850 milljónir

Í ein­blöð­ungnum sem sendur var út í dag, 30. sept­em­ber, er bent á að stofnfé Novus-sjóðs­ins hafi verið 2,5 millj­arðar króna og að 850 millj­ónir króna hafi þegar verið greiddar til baka til eig­enda. Miðað við að eigið fé sjóðs­ins sé ein­ungis 40 millj­ónir króna sam­kvæmt nýju mati er þó ljóst að þeir sem fjár­festu í sjóðnum, sem voru meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, geti að óbreyttu ekki búist við því að fá mikla við­bótar ávöxtun úr sjóðnum.

[adspot]Sjóð­ur­inn var stofn­aður í sept­em­ber 2013 og selja átti eignir úr honum frá sept­em­ber 2016 fram til mars 2021.

Nýráðinn fram­kvæmda­stjóri GAMMA, Máni Atlason, hefur verið skip­aður nýr sjóð­stjóri yfir GAMMA: Novus og nýr fjár­fest­inga­stjóri GAMMA, Ásgeir Baldurs,hefur leitt vinnu við end­ur­mat á eignum sjóðs­ins. Áður var Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri sér­hæfðra fjár­fest­inga hjá GAMMA, sjóðs­stjóri Novus. Hann starfar enn hjá félag­inu en nú sem for­stöðu­maður nýbygg­inga og þró­unar.

Þarf að gefa út forgangsskuldabréf til að klára framkvæmdir

Í ein­blöð­ungnum segir að staða Upphafs fast­eign­ar­fé­lags sé þannig að það glími „nú við lausa­fjár­vanda en nýir stjórn­endur hafa lagt fram áætlun um fram­tíð félags­ins þar sem m.a. er unnið að við­bót­ar­fjár­mögnun til að mæta lausa­fjár­vand­anum. Unnið er að útgáfu nýs for­gangs­skulda­bréfs að fjár­hæð 1 ma.kr. til að klára þær fram­kvæmdir sem félagið hefur með höndum til að hámarka virði eigna. Gert er ráð fyrir að nið­ur­stöður við­ræðna um frek­ari fjár­mögnun liggi fyrir um miðjan októ­ber 2019.“

Hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar verða upp­lýstir um fjár­mögnun félags­ins um leið og nið­ur­staða liggur fyrir, sam­kvæmt því sem fram kemur í skjal­inu. „Nýtt bráða­birgða­gengi sjóðs­ins byggir á því að áform um við­bót­ar­fjár­magn gangi eftir. Samhliða end­ur­mati eigna og vinnu við fjár­mögnun hefur félagið styrkt teymið sem hefur umsjón með fram­kvæmdum með ráðn­ingu bygg­ing­ar­verk­fræð­ings og bygg­ing­ar­tækni­fræð­ings sem sam­tals búa yfir 40 ára reynslu úr bygg­ing­ar­geir­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár