Tveir sjóðir GAMMA í mun verra standi en gert var ráð fyrir

Skráð gengi tveggja sjóða sem settir voru á fót af GAMMA hefur verið lækkað. Þeir voru í mun verra ásig­komu­lagi en gert hafði verið ráð fyrir. Kvika banki keypti GAMMA í lok síð­asta árs.

Kvika Banki var skráður á aðalmarkað Kauphallar Íslands í lok mars síðastliðins.
Kvika Banki var skráður á aðal­markað Kaup­hallar Íslands í lok mars síð­ast­lið­ins. Mynd: Nasdaq Iceland

Tveir fag­fjár­festa­sjóðir í rekstri GAMMA, Novus og Anglia, eru í umtals­vert verra ásig­komu­lagi en gert hafði verið ráð fyrir. Skráð gengi þeirra hefur verið lækkað sem því nemur.

Í til­kynn­ingu frá Kviku banka, sem eign­að­ist GAMMA í mars á þessu ári, kemur fram að lækkun á gengi sjóð­anna muni ekki hafa áhrif á áætl­aða afkomu Kviku á árinu 2019. Enn er áætlað að afkoman verði jákvæð um 2,9 millj­arða króna fyrir skatta líkt og greint var frá í afkomu­spá sem birt var sam­hliða hálfs­árs­upp­gjöri bank­ans.

Anglia-sjóð­ur­inn var stofn­aður sum­arið 2017. Um var að ræða fimm millj­arða króna fast­eigna­sjóð í London sem átti að fjár­festa í hinum ýmsu verk­efnum. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins frá þeim tíma var haft eftir Gísla Hauks­syni, þáver­andi stjórn­ar­for­manni og for­stjóra GAMMA, að frá­bær tíma­punktur væri fyrir Íslend­inga til að fjár­festa erlendis. Ákveðið hefði verið að setja sjóð­inn á lagg­irnar í kjöl­far frétta um aflétt­ingu hafta á Íslandi. Þeir sem settu fé í sjóð­inn voru íslenskir fjár­festar.

Novus er fast­eigna­sjóður sem á meðal ann­ars Upphaf fast­eigna­fé­lag. Helstu fjár­festar í honum eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og aðrir fag­fjár­festar.

Fengu lán hjá Stoðum

Kvika banki keypti allt hlutafé í GAMMA Capital Mana­gement seint á síð­asta ári. Kaupin höfðu verið í deigl­unni í tölu­verðan tíma en erf­ið­lega gekk að klára þau, meðal ann­ars vegna þess að virði GAMMA var á reiki. Upp­haf­lega var greint frá því, í júní í fyrra, að kaup­verðið ætti að vera tæp­lega 3,8 millj­arðar króna. Þegar gengið var frá kaup­unum hafði það lækkað niður í 2,4 millj­arða króna.

Fyrir lá að staða sjóða GAMMA var ekki góð á þessum tíma. Í Frétta­blað­inu í sumar var greint frá því að fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hefði lánað GAMMA einn millj­arð króna haustið 2018, þegar kaup Kviku voru yfir­vof­andi. Lánið var veitt til að bæta lausa­fjár­stöðu GAMMA, sem var þá mjög döp­ur. Stoðir fengu 150 millj­ónir króna í þóknun fyrir að veita lánið sem var að fullu greitt upp í byrjun mars 2019.

Sameina eigna- og sjóðsstýringu

Í byrjun sept­em­ber var greint frá því að stjórn Kviku hefði ákveðið að sam­eina alla eigna- og sjóða­stýr­ing­ar­starf­semi sam­stæð­unn­ar. Auk eigna­stýr­ingar Kviku var þar um að ræða rekstr­ar­fé­lögin GAMMA Capital Mana­gement hf. og Júpíter rekstr­ar­fé­lag hf.

Með sam­ein­ing­unni verður sam­einað dótt­ur­fé­lag Kviku stærsta eigna-og sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki lands­ins með 45 starfs­menn og heild­ar­eignir yfir 440 millj­arða króna í stýr­ing­u. Í þeirri vinnu þurfti að fara vel yfir sjóð­ina og það hefur skilað því að áður­nefndir tveir sjóðir GAMMA hafa verið lækk­aðir í virði þar sem þeir reynd­ust súr­ari en búist hafði verið við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár