Gengið á GAMMA: Anglia nánast helmingaðist

Sjóður í stýr­ingu hjá GAMMA sem átti að fjár­festa í Bret­landi fyrir millj­arða var færður veru­lega niður í gær. Gengi hans var þá fært úr 105 í 55.

Sjóðurinn átti að fjárfesta í áhugaverðum verkefnum í London eftir að fjármagnshöftum var lyft á Íslandi.
Sjóð­ur­inn átti að fjár­festa í áhuga­verðum verk­efnum í London eftir að fjár­magns­höftum var lyft á Íslandi. Mynd: EPA

Gengið á GAMMA: Anglia, fimm millj­arða króna sjóði sem stofn­aður var sum­arið 2017 til að fjár­festa í ýmsum verk­efnum í Bret­landi, var í gær fært niður úr 105 í 55, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Það þýðir að sá sem átti í sjóðnum fyrir t.d. 105 millj­ónir króna átti 55 millj­óna króna eign í honum eftir nið­ur­færsl­una.

Einn þeirra sem átti í sjóðnum var Lífsverk líf­eyr­is­sjóður. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá honum hefur eign sjóðs­ins í Anglia-sjóðnum verið færð niður um 43 millj­ónir króna frá upp­haf­legum kaupum sem áttu sér stað í júlí 2017.

GAMMA: Anglia, var stofn­aður sum­arið 2017. Um var að ræða fimm millj­arða króna fast­eigna­sjóð í London sem átti að fjár­festa í hinum ýmsu verk­efn­um. Sjóð­ur­inn var stofn­aður til að gera íslenskum aðilum kleift að fjár­festa erlendis eftir að gjald­eyr­is­höftum var lyft snemma árs 2017. Þeir sem settu fé í í sjóð­inn voru íslenskir ein­stak­lingar, trygg­inga­fé­lag og líf­eyr­is­sjóðir. 

Lífeyrissjóður færir niður um 64 milljónir

GAMMA: Anglia var annar tveggja sjóða í stýr­ingu hjá GAMMA sem var færður veru­lega niður í gær. Hinn heitir GAMMA: Novus. Kjarninn greindi frá því síð­degis í gær að eigið fé Novus-sjóðs­ins hefði verið lækkað úr 4,4 millj­örðum króna um ára­mót í 42 millj­ónir króna eftir end­ur­mat á eignum. GAMMA er í dag í eigu Kviku banka, en bank­inn keypti félagið fyrr á þessu ári. Hann mun þó ekki bera neitt tap vegna sjóð­anna heldur hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar sem keyptu í þeim.

Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja er á meðal þeirra sem átti hlut­deild­ar­skír­teini í GAMMA: Novus. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sjóðnum keypti hann hlut­deild­ar­skír­teini í Novus fyrir 100 millj­ónir króna en hafði selt í honum fyrir 34 millj­ónir króna. Nettó fjár­fest­ing sjóðs­ins er því um 66 millj­ónir króna.

Verðmat eignar líf­eyr­is­sjóðs Vest­manna­eyja var 155,3 millj­ónir króna í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Verð­matið í gær, mán­uði síðar, var 1.694 þús­und krónur. Það hafði því lækkað um vel yfir 150 millj­ónir króna á nokkrum vikum.

Raun­veru­leg nið­ur­færsla á eign sjóðs­ins er því, miðað við núver­andi stöðu, 64,3 millj­ónir króna.

Tvö trygg­inga­fé­lög, TM og Sjóvá, hafa þegar greint frá því að þau hafi fært niður virði fjár­fest­inga­eigna sinna vegna eignar sinnar í Novus. TM sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær­morgun þar sem fram kom að bók­fært tap félags­ins vegna Novus væri um 300 millj­ónir króna.

Sjóvá færði niður virði fjár­fest­inga­eigna sinna um 155 millj­ónir króna vegna eignar í sama sjóði. Bæði félög eru meðal ann­ars í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, sem taka þannig á sig óbeint tap vegna nið­ur­færsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár