Forstjóri TM segir klúður fasteignasjóðs GAMMA „með ólíkindum“

For­stjóri TM segir í við­tali við Við­skipta­blaðið að hann hafi frétt af því með sím­tali í gær, að staða fast­eigna­sjóða á vegum GAMMA hafi verið miklu verri en reiknað hafi verið með.

Bókfært tap TM vegna slæmrar stöðu fast­eigna­sjóðs á vegum GAMMA, Gamma Novus, nemur um 300 millj­ónum króna. Í til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hallar, er getið um tap af fjár­fest­ingum, sem meðal ann­ars á rekja til end­ur­mats á eignum fast­eigna­fé­lags á vegum GAMMA, sem er í eigu Kviku.

„Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi tölum er ljóst að ávöxtun af verð­bréfa­eign félags­ins verður tals­vert verri en spá fyrir 3. árs­fjórð­ung gerir ráð fyrir. Spáin gerir ráð fyrir að fjár­fest­inga­tekjur og aðrar tekjur muni nema 215 m.kr. Miðað við núver­andi raun­stöðu verða fjár­fest­inga­tekjur og aðrar tekjur nei­kvæðar á 3. árs­fjórð­ungi á bil­inu 225-275 m.kr. Lang stærsti hluti frá­viks­ins skýrist af óvæntri og veru­legri nið­ur­færslu á gengi fast­eigna­sjóðs, en einnig er verri afkoma af hluta­bréfum og hluta­bréfa­sjóðum sem skýrist af lækk­unum á mark­aði frá því að spáin var gefin út. Þar sem fjórð­ung­ur­inn er ekki á enda þá er enn nokkur óvissa í fram­an­greindum tölum,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið segir Sigurður Við­ars­son, for­stjóri TM, það vera „með ólík­indum“ hvernig stöð­unni hjá fast­eigna­sjóðnum hafi verið klúðrað. Hann seg­ist hafa frétt af stöðu mála með sím­tali í gær.

„Við erum að afskrifa rúm­lega 300 millj­ónir út af þessum sjóði, sem var í inn­lendum íbúða­fjár­fest­ingum. Það er með ólík­indum að menn hafi klúðrað þessu, en ég fæ bara þessar fréttir í sím­tali í gær. Eins og þetta var kynnt fyrir mér eru þarna margir sam­verk­andi þættir á bak­við bæði kostn­að­ar­hækk­anir þar sem bygg­ing­ar­kostn­að­ur­inn var miklu hærri en menn ætlu sér og svo tekur lengri tíma að selja. Loks eru verk­efnin ekki komin jafn­langt og menn héldu,“ segir Sigurður í við­tali við Við­skipta­blaðið.

Sjóvá hefur þegar bók­fært 155 millj­óna króna tap vegna sama sjóðs, en líf­eyr­is­sjóðir voru meðal stórra fjár­festa í honum.

Sam­kvæmt árs­upp­gjöri árs­ins 2018 var eigið fé fag­fjár­festa­sjóðs­ins GAMMA: Novus metið á 4,4 millj­arða króna. Eftir nýlegt end­ur­mat á eignum sjóðs­ins er eigið fé hans hins vegar áætlað 42 millj­ónir króna, eins og Kjarninn greindi frá í dag.

Það var því ofmetið um rúm­lega 4,3 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Um mitt ár í fyrra voru eignir umfram skuldir metnar á rúm­lega 4,8 millj­arða króna.

Í ein­blöð­ungi sem sendur var út vegna stöðu sjóðs­ins um síð­ustu ára­mót, þegar eigið fé Novus var sagt 4,4 millj­arðar króna, sagði: „Góð ávöxtun sjóðs­ins á rætur að rekja til vel tíma­settra fjár­fest­inga og ágætrar fram­vindu í þró­un, fram­kvæmdum og sölu á vegum sjóðs­ins. Helsta ástæða þess að gengi sjóðs­ins hefur gefið eftir á sl. 12 mán­uðum er sú að upp­færsla kostn­að­ar­á­ætl­ana hefur leitt í ljós að bygg­ing­ar­kostn­aður var van­metin í fyrri áætl­un­um, en einnig hafa horfur um raun­hækkun fast­eigna­verðs að mati grein­inga­deilda lækkað sem lækkar áætl­aðan hagnað í hverju verk­efni fyrir sig. Verk­efnin eru enn hag­kvæm þótt áætl­aður hagn­aður þeirra sé lægri en gert var ráð fyrir í upp­hafi árs 2018.“

Í ein­blöð­ungnum sem sendur var út í dag er hins vegar birt allt önnur og mun verri staða. Eigið fé Novus hefur nán­ast þurrkast út eftir end­ur­mat. Þar kemur fram að breyt­ingar á stöðu sjóðs­ins skýrist af mörgum þátt­um. Meðal ann­ars hafi raun­veru­leg fram­vinda til­tek­inna verk­efna verið ofmet­in. „Þá hefur fram­kvæmda­kostn­aður verið tals­vert yfir áætl­unum á árinu. Fyrri mats­að­ferðir tóku ekki að fullu til­lit til fjár­magns­kostn­aðar félags­ins auk þess sem hann hækk­aði veru­lega með útgáfu skulda­bréfs (UPP­H21 0530) í vor. Vænt­ingar um sölu­verð íbúða og þró­un­ar­eigna hafa einnig verið end­ur­metn­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár