Ritstjóri segir að Bjarni hafi útilokað sig varanlega fyrir að gefa like

Bjarni Benediktsson sagðist ætla að sniðganga fjölmiðla­manninn Sigurjón M. Egilsson varanlega, vegna þess að Sigurjón lækaði Facebook-færslu um að ættingjar Bjarna hafi fengið tækifæri til að forða fjármunum sínum fyrir banka­hrunið. Sigurjón varar við áhrifum þess að stjórn­málamenn útiloki og eingangri fjölmiðla­menn. Bjarni kom einungis í selt viðtal á Hringbraut, sem reyndist vera brot á lögum um fjölmiðla og lýðræðis­legum grundvallar­reglum.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son For­sæt­is­ráð­herra til­kynnti þátt­ar­stjórn­anda og rit­stjóra að hann hefði ákveðið að snið­ganga hann, sam­kvæmt frá­sögn af sam­tali í vitna við­ur­vist. Mynd: Pressphotos

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, tók þá ákvörðun að sniðganga fjölmiðla­manninn Sigurjón M. Egilsson vegna þess að sá síðarnefndi hafði „lækað“ færslu með gagnrýni á viðskipti ættingja hans, samkvæmt frásögn Sigurjóns. 

Sigurjón hefur nú greint opinber­lega frá samtali hans og Bjarna, sem átti sér stað í vitna viðurvist í húsnæði sjónvarps­stöðvarinnar Hringbrautar. Samtalið átti sér stað skömmu fyrir alþingis­kosningar í október í fyrra, þegar Bjarni var á leið í förðun fyrir upptökur á keyptri umfjöllun um Sjálfstæðis­flokkinn.

Sigurjón M. EgilssonEr einn reynd­asti fjöl­miðla­maður lands­ins, fyrr­ver­andi frétta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og rit­stjóri Hring­brautar, DV, Mannlífs og Blaðsins, og þátt­ar­stjórn­andi á þjóð­mála­þátt­unum Sprengisandi og Þjóð­braut, svo eitt­hvað sé nefnt.

Sigurjón lýsti samtalinu í pistli á vefsíðunni Miðjunni.is, sem hann ritstýrir: „Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, tilkynnti í heyrandi hljóði að hann ætlaði aldrei að tala við mig framar. En hvers vegna? Jú, hann sagði mig hafa borið út óhróður um sig og fjöl­skyldu sína. Það er rangt, hjá þér, svaraði ég. Hann gaf sig ekki, hækkaði róminn og gaf sig ekki. Ég bar enn af mér sakir. Hann sá af sér, dró aðeins í land og sagði mig hafa lækað færslu á Facebook sem hann væri ekki sáttur við. Ég spurði hvort ákvörðun hans um að tala aldrei framar við mig breyttist við þetta. Nei. Hann lagði áherslu á neiið.“

Misjafnt aðgengi að upplýsingum

Færslan sem Sigurjón lækaði er birt hér fyrir neðan. Færslan var skrifuð af Gunnari Smára Egilssyni, þá ritstjóra Frétta­tímans, sem er bróðir Sigurjóns. Í henni er rætt um umfjöllun Kast­ljóssins, sem leiddi í ljós að frænka Bjarna hefði fengið upplýsingar úr Seðla­bankanum um að neyðarlög á bankana væri yfir­vofandi. Þannig hafi ætttingjar Bjarna fengið tækifæri til að forða fjármunum frá efnahags­hruninu. Áður hefur verið greint frá því að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna, náði að selja fyrir hálfan milljarð króna í peninga­markaðs­sjóði Glitnis dagana fyrir yfirtöku ríkisins á bankanum og senda úr landi. Bjarni sjálfur var á meðal  örfárra stjórn­mála- eða athafna­manna sem funduðu í höfuð­stöðvum Stoða nóttina fyrir yfirtöku ríkisins á bankanum. Þá hefur einnig verið fjallað um að Bjarni sjálfur seldi hlutabréf sín í Glitni í febrúar 2008, á sama tíma og rætt var um gríðar­lega erfið­leika íslenska banka­kerfisins í innsta hring stjórn­mála- og embættis­manna.

Færsla Gunnars Smára var eftir­farandi: „Engey er víða. Áður en neyðar­lögin voru sett hringdi Sturla Pálsson, hagfræðingur í Seðla­bankanum, í konu sína, Helgu Jóns­dóttir, eins og fram kom í Kastljósi, og upplýsti um yfir­vofandi aðgerðir bankans. Helga er dóttir Guðrúnar Sveins­dóttur, systur þeirra Einars og Benedikts Sveins­sonar, stórtækra fjárfesta. Benedikt er faðir Bjarna, sem nú er fjármála­ráðherra. Hann og Helga eru systkina­börn. Áður en neyðar­lögin voru sett fengu Engeyingar því viðvörun og svigrúm til að bjarga sínu. Algjörir snillingar.“

Sem fyrr segir var það ákvörðun Sigurjóns að gefa færslunni „læk“ sem olli því að núverandi forsætis­ráðherra ætlaði aldrei að ræða aftur við hann.

Þöggun gagnvart fjölmiðlum

Sigurjón segist ekki hafa áhyggjur af eigin stöðu, heldur fjölmiðla almennt, vegna tilhneigingar sem þessarar að jarðar­setja eða útiloka ákveðna fjölmiðla­menn vegna gagnrýni. 

„Hversu margir blaðamenn, frétta­menn eða aðrir hafa þurft að þola ámóta og ég hef lýst hér? Ég er viss um að þeir eru margir.“

Í samtali við Stundina lýsir Sigurjón atburða­rásinni með þeim hætti að hann hafi reynt að fá Bjarna í umræðu­þátt á Hringbraut fyrir kosningar, þegar Bjarni kom inn á Hringbraut í öðrum erinda­gjörðum. „Þetta var þannig að ég var að reyna að ná sambandi við Bjarna til að fá hann í viðtal í þáttinn hjá mér fyrir kosningar. Ég náði engu sambandi við hann, og ekki við Svanhildi Hólm heldur. Á meðan ég er í þessu þá gengur hann inn í fyrir­tækið,“ segir Sigurjón. „Þá var hann að fara í þátt sem Sjálfstæðis­flokkurinn hafði keypt, kynningar­þátt fyrir kosningarnar.“

Samkvæmt Sigurjóni hafnaði Bjarni því að koma í umræðu­þátt Sigurjóns og svaraði því til að hann skyldi senda einhvern annan úr Sjálfstæðis­flokknum sér í stað. Svo fór að Sigríður Andersen, sem síðar átti eftir að verða dómsmála­ráðherra, mætti í þáttinn í stað formannsins. Sigríður var í þriðja sæti fyrir Sjálfstæðis­flokkinn í Reykja­víkur­kjördæmi suður. 

Stundin hefur ekki náð tali af starfs­mönnum Hringbrautar sem áttu að hafa orðið vitni að samtalinu. Stundin sendi Bjarna Benedikts­syni skilaboð og bauð honum að tjá sig um samtalið og viðmið sín í viðskiptum við fjölmiðla eða fjölmiðla­menn. 

Þess ber að geta að Bjarni neitaði, einn flokks­formanna, að svara spurningum Stundarinnar fyrir sérstakt kosninga­blað fyrir alþingis­kosningarnar í fyrra.

Seld viðtöl voru lögbrot

Svo fór því að Bjarni Benediktsson kom einungis í viðtal á Hringbraut í umfjöllun sem keypt var af Sjálfstæðis­flokknum. Þáttar­stjórnandi var ekki hinn óflokks­bundni Sigurjón M. Egilsson, heldur Rósa Guðbjarts­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í Hafnar­firði.

Fjölmiðla­nefnd komst hins vegar að þeirri niður­stöðu í júní að birting seldra umræðu­þátta um stjórn­málaflokka væri lögbrot. Þannig hafi Hringbraut brotið lög um fjölmiðla og lýðræðislegar grundvallar­reglur þegar birt var seld umfjöllun um Sjálfstæðis­flokkinn og tvo aðra stjórn­málaflokka, Framsóknar­flokkinn og Viðreisn. 

„Þættirnir eiga það allir sameiginlegt að vera stýrt af fram­bjóðendum flokkanna eða flokks­bundnum einstaklingum innan þess stjórnmála­afls sem um er fjallað hverju sinni og virðist vera sem ritstjórn þáttanna hafi að öllu leyti verið í höndum stjórn­mála­flokkanna sjálfra,“ segir í umfjöllun Fjölmiðla­nefndar.

„Að mati fjölmiðla­nefndar er fagleg og vönduð umræða fjölmiðla fólgin í því að þeir leitist við að varpa ljósi á mismun­andi hliðar mála. Á það ekki síst við í aðdrag­anda kosninga þegar fjallað er um stefnu og áherslumál þeirra stjórnmála­afla sem bjóða fram hverju sinni. Fjöl­miðlar eru vettvangur umræðu og upplýsinga og hafa skoðana­myndandi áhrif. Því er mikilvægt að umfjöllun þeirra einkennist af hlutlægni og jafnræðis sé gætt milli sjónar­miða, flokka og fram­bjóðenda. Fjölmiðla­nefnd getur ekki fallist á þau sjónarmið forsvars­manna Hringbrautar að ekkert samhengi sé á milli bréfsins sem Hringbraut sendi a.m.k sjö stjórn­málaflokkum sem buðu fram í Alþingis­kosningunum þann 29. október 2016 og kosninga­þátta sem fjölmiðla­veitan miðlaði í aðdrag­anda kosninganna. Þá hafa engar skýringar borist fjölmiðla­nefnd á því hvers vegna einungis var fjallað um þrjú af þeim tólf stjórnmála­öflum sem buðu fram í umræddum kosningum. Þó er upplýst að framboðin keyptu auglýsingar eða greiddu fyrir kosninga­þættina sérstak­lega,“ sagði í úrskurði nefndarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár