Sexmenningarnir áfram í haldi í Namibíu

Dómari í Namibíu komst að þeirri niður­stöðu í dag að sexmenn­ing­arnir, sem eru í haldi vegna Samherja­málsins, verði það áfram. Þeir höfðu farið fram á að hand­taka þeirra yrði felld úr gildi á þeim for­sendum að hún hefði verið ólög­mæt.

Sexmenningarnir í Namibíu
Sex­menn­ing­arnir í Namibíu Mynd: The Namibian

Namib­ísku sex­menn­ing­arn­ir, sem kærðir hafa verið fyr­ir spill­ingu, mútuþægni og pen­inga­þvætti í tengsl­um við Sam­herja­skjöl­in í Namib­íu, munu sitja áfram í gæslu­v­arðhaldi fram til 20. fe­brú­ar þegar fyr­ir­taka verður í máli þeirra. Dómari við hæstarétt í Windhoek í Namibíu komst að þeirra niður­stöðu í dag.

Þetta kemur fram hjá frétta­miðl­in­um, The Namibi­an, í dag.

Sexmenningarnir höfðu farið fram á að handtaka þeirra yrði felld úr gildi á þeim forsendum að hún hefði verið ólögmæt. Dómari komst hins vegar að þeirri niður­stöðu í dag að málið væri ekki það áríðandi að það yrði tekið á dagskrá dómsins. Fyrirtaka í málinu verður því 20. febrúar næst­komandi.

Fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, Bernhard Esau, og fyrr­verandi dómsmála­ráðherrann, Sachy Shanghala eru á meðal fyrr­nefnda sexmenninga. Auk James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­ar­for­maður namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fis­hcor í nóvember, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, Ricardo Gusta­vo, sam­starfs­maður hans og Pius Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­skyldu­bönd­um.

Þeir voru hand­teknir í lok nóvember og dæmdir í gæslu­varðhald. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði 860 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­sóttan kvóta í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár