Samfylkingin mun ekki selja ESB sem töfralausn undir forystu Kristrúnar

Samfylkingin mun ekki kynna Evrópu­sambandið sem töfra­lausn undir forystu nýkjörins formanns. Kristrún Frosta­dóttir vill breyta pólitíkinni og virkja jafnaðar­taugina í landinu. Annar áratugur undir stjórnar­fari íhalds­afla er ekki í boði.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar – jafn­að­ar­flokks Íslands, segir flokkinn ætla að breyta pólitíkinni og stunda skýra og heiðarlega pólitík.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar – jafn­að­ar­flokks Íslands, segir flokk­inn ætla að breyta póli­tík­inni og stunda skýra og heið­ar­lega póli­tík. Mynd: Samfylkingin

Samfylkingin mun ekki setja aðild að Evrópu­sambandinu fram sem forgangsmál nema að undan­gengnu víðtæku samtali og uppfærðri rannsókn á kostum og göllum aðildar. Forgangsmál flokksins er að endur­reisa velferðar­kerfið og sameina fólk með jafnaðar­taug.

Þetta er meðal þess sem fram kom í stefnu­ræðu Kristrúnar Frosta­dóttur, nýkjörins formanns Samfylkingarinnar, á lands­fundi flokksins sem fram fer um helgina.

Tími breytinga er hafinn hjá Samfylkingunni. Kristrún Frosta­dóttir tók við sem formaður flokksins í gær. Hún var ein í framboði og hlaut 94,59 prósent greiddra atkvæða. Guðmundur Árni Stef­ánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnar­firði og fyrr­verandi vara­formaður Alþýðu­flokksins og ráðherra, var sjálf­kjörinn í embætti vara­formanns.

Ný forysta, nafn og merki

Guðmundur Ari Sigurjónsson, oddviti Samfylkingarinnar og óháðra á Seltjarnarnesi, var kjörinn nýr formaður framkvæmda­stjórnar Samfylkingarinnar. Hann hafði betur gegn Kjartani Valgarðs­syni, sitjandi formanni, með rúmlega 70 prósent greiddra atkvæða.

Jón Grétar Þórsson var kjörinn gjaldkeri flokksins. Hann hafði betur gegn Stein Olav Romslo með 49,64 prósent greiddra atkvæða. Anna Lára Jóns­dóttir, bæjar­stjóri á Ísafirði, er nýr ritari flokksins. Hún hlaut 59,77 prósent greiddra atkvæða. Auk hennar var Alexandra Ýr van Erven í framboði ritara.

Fleiri breytingar voru samþykktar á lands­fundi flokksins í morgun. Flokkurinn heitir nú Samfylkingin – jafnaðar­flokkur Íslands. Það er minni­háttar breyting á nafni flokksins sem var áður Samfylkingin – jafnaðar­manna­flokkur Íslands. Tillagan kom frá Arnóri Heiðari Benónýs­syni, forseta Ungs jafnaðar­fólks (UJ) og forvera hans, Rögnu Sigurðar­dóttur. Ungt jafnaðar­fólk breytti nafni sínu nýverið úr Ungum jafnaðar­mönnum. Aðrar tillögur að breytingu á nafni voru dregnar til baka þar sem sátt náðist um þessa tillögu. Áður höfðu Mörður Árnason og Kristján L. Möller, fyrr­verandi þingmenn Samfylkingarinnar, greint frá því að þeir ætluðu að leggja til að flokkurinn fengi nafnið Jafnaðar­flokkurinn.

Nafna­breyting flokksins var ekki það eina sem var samþykkt, merki flokksins hefur einnig verið breytt og er nú rós, alþjóðlegt merki jafnaðar­fólks, í stað rauðs hrings eða kúlu.

Grundvallarmál að endurreisa velferðarkerfið

„Breytingarnar, þær byrja strax í dag. Þær byrja hér og nú,“ sagði Kristrún í upphafi stefnu­ræðu sinnar í dag. Í ræðunni fór hún yfir hennar sýn fyrir flokkinn og fyrir landið, hverju flokkurinn ætlar að breyta og hvers vegna. „Hvernig við ætlum að vinna og hvernig við munum stjórna.“

Helsta verkefni flokksins er, að hennar mati, að endur­reisa velferðar­kerfið eftir áratug hnignunar. „Þetta er grund­vallarmál, sem vinnst ekki með dægur­þrasi í stjórn­málum. Fólk þyrstir í forystu í stjórn­málum sem treystir sér í þetta verkefni. Þessu kalli ber okkur að svara. Fólkið í landinu hefur beðið, það bíður enn og Samfylkingin verður að mæta til leiks, tilbúin í þetta mikilvæga verkefni í næstu kosningum,“ sagði Kristrún.

Logi breytti útför flokksins í upprisu og endurnýjun

Logi Einarsson hélt sína síðustu ræðu sem formaður Samfylkingarinnar í gær. Þar minntist hann á að hann hafi verið kallaður útfarar­stjóri flokksins á sínum tíma en að enginn spái flokknum dauða nú. „Þú breyttir útförinni í upprisu og endurnýjun,“ sagði Kristrún, sem þakkaði Loga fyrir að taka vel á móti henni þegar hún kom inn í flokkinn.

Samkvæmt skoðana­könnunum hefur Samfylkingin bætt við sig miklu fylgi þar sem af er kjör­tímabili. Flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent atkvæða í fyrra­haust en mælist nú með 14,4 pró­sent fylgi, samkvæmt nýrri könnun Maskínu, og þriðji stærsti flokk­ur­inn á þing­i. ­

„Ég vil að flokkurinn fái ánægju­fylgi, trausts­fylgi — því það er fylgið sem skilar sér alla leið á kjördag. Ekki bara tíma­bundið mótstöðu­fylgi sem tekur ekki tillit til þess hvort fólk treystir okkur til að stjórna eða ekki,“ sagði Kristrún.

Óásættanleg staða í landsmálunum

Staðan í lands­málunum er ekki ásættanleg að mati Kristrúnar og voru síðustu kosningar vonbrigði. „Samfylkingin hefur núna tapað fernum kosningum til Alþingis í röð. Við höfum eftir­látið Sjálfstæðis­flokknum áratug til að stjórna þessu landi, óslitinn. Með alvarlegum afleiðingum sem eru að koma betur og betur í ljósi,“ sagði Kristrún, sem telur flokks­menn svíkja sjálfa sig, jafnaðar­stefnuna og fólkið í landinu með því að halda áfram á sömu braut eins og ekkert sé.

„Þess vegna segi ég: Nú er kominn tími til að taka það alvarlega að vinna; að vinna traust. Sem þýðir að við verðum að ráðast í breytingar — okkur ber beinlínis skylda til þess. Og það er það sem við erum að gera núna.“

Ofuráhersla á kjarnamál jafnaðarmanna

Breytingarnar sem Kristrún talaði um snúast um að fara aftur í kjarnann með því að leggja ofuráherslu á kjarnamál jafnaðar­manna, það er húsnæðismál, heilbrigðismál, samgöngur, góða atvinnu og kjör fólks.

Trúverðug­leiki flokksins byggir líka á trúverðugri efnahags­stefnu og Kristrún vill að efnahags­stefna Samfylkingarinnar taki mið af hagsmunum heildarinnar. „Skilningi á því hvernig velferðar­kerfið verður best rekið og fjár­magnað. Að skammtíma­lausnir skila sér oftar en ekki í meiri kostnaði síðar meir — að skuldir finnast víðar en í bókhaldi ríkis­sjóðs. Stórtækar framfarir á Íslandi velta á því að hér komist til valda stjórn­málaflokkur sem sér þessa stóru mynd — getur veitt landinu forystu með fast land undir fótum og samfellu í hugsun — ekki bara tilviljana­kenndum fjár­útlátum og stefnu­lausu aðhaldi sem engum árangri skilar,“ sagði formaðurinn.

Evrópusambandsaðild ekki forgangsmál nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum

Samfylkingin mun ekki reyna að selja fólki Evrópu­sambandið sem töfra­lausn undir forystu Kristrúnar. „Enda er það ekki töfra­lausn. Það hefur kosti og galla. Og það er mikilvægt að Samfylkingin sýni ólíkum sjónar­miðum og áhyggjum fólks virðingu. Það er vel hægt að vera jafnaðar­maður og hluti af Samfylkingunni án þess að vera alveg sann­færður um ágæti aðildar Íslands að Evrópu­sambandinu,“ sagði Kristrún, sem er sjálf mikill Evrópu­sinni og eindregið fylgjandi aðild Íslands að Evrópu­sambandinu.

En það er löngu kominn tími til, að hennar mati, að uppfæra og endurnýja umræðuna um kosti og galla aðildar að Evrópu­sambandinu, það gangi ekki að þylja upp tveggja áratuga gömul rök sem byggja á kynningu sem flokkurinn stóð fyrir skömmu eftir aldamót.

„Og þess vegna segi ég það hér: Samfylkingin mun ekki setja fulla aðild að Evrópu­sambandinu fram sem forgangsmál nema að undan­gengnu víðtæku samtali og uppfærðri yfirferð og rannsókn á kostum og göllum aðildar.“

Kristrún sagði einnig að það verði að vera stór flokkur með breitt umboð sem leiðir mikilvæga umræðu eins og Evrópu­sambands­aðild. „Þetta er ekki smáflokkamál. Þetta segi ég sem Evrópu­sinni. Ég er einfald­lega sannfærð um að þetta sé árangurs­ríkasta leiðin til að koma málinu áfram, að sameinast um að fara aftur í kjarna jafnaðar­mennskunnar og styrkja okkur þar, breikka umboðið og vera svo leiðandi í umræðunni um alþjóðamál og Evrópu­sambandið — þegar tækifærið gefst.“

Það sama á við um stjórnar­skrána. Kristrún sagði kröfuna um allt eða ekki neitt í stjórnar­skrár­málum ekki hafa skilað árangri. Breyta þurfi um nálgun og viðurkenna að breytingar á stjórnar­skrá munu kalla á mála­miðlanir og breitt samstarf flokka á þingi. „Nú hefur málið verið algjör­lega stopp í tíu ár. Hvernig getum við komist eitthvað áfram? Við étum ekki fílinn í einum bita — það ætti að vera orðið ljóst að það er ekki raunhæft.“

Vill opna flokkinn

Megin­verkefni flokksins á næstunni verður að opna flokkinn. „Að halda áfram að eiga umfangs­mikið samtal við fólk um land allt. Við munum boða til efnislegrar umræðu um þá mála­flokka sem við setjum í forgang fyrir næstu ár, halda opna fundi og málþing — kalla til sérfræðinga, fólkið á gólfinu, fólk sem er hokið af reynslu og ungt fólk sem vill móta eigin framtíð hér á landi.“

Endur­reisn velferðar­kerfisins er meðal stórra áskorana sem eru fram undan að mati Kristrúnar, áskorun sem kallar á „kaldan haus og heitt hjarta; kraft­mikla forystu fyrir Ísland undir merkjum klassískrar jafnaðar­stefnu“.

„Við höfum eftir­látið íhalds­öflunum óslitinn áratug við völd. Og það má ekki líða annar áratugur undir sama stjórnar­fari. Það er einfald­lega alltof mikið í húfi. Fyrir vinnandi fólk. Fyrir velferðar­kerfið okkar. Fyrir fram­tíðina í þessu landi.“

„Dæs Framsóknarflokksins og uppgjöf VG“

Kristrún sagði vonleysið hafa sigrað í síðustu Alþingis­kosningum. „Dæs Framsóknar­flokksins og uppgjöf VG. Er ekki bara best að yppta öxlum, geispa og gefast upp? Þetta var boðskapur Fram­sóknar,“ sagði Kristrún og landsfundar­gestir hlógu. „Skiptir máli hvernig þú stjórnar? Nei, það skiptir bara máli hver situr í stólnum og hittir fræga fólkið í útlöndum. Þetta er stefna VG.“

Sjálfstæðis­flokkurinn ræður ferðinni í ríkis­stjórninni að mati Kristrúnar með því að reka „harða og úrelta stefnu úr fjármála­ráðuneytinu“.

„Þau er þreytt. Vonleysið hefur unnið á þeirra vakt. En fólkið í landinu veit að þetta þarf ekki að vera svona. Við höfum hlustað og höldum því áfram.“

Vill koma inn af krafti en er ekki byltingarsinni

Kristrún sagðist ekki vera þekkt fyrir að fara of hægt í sakirnar eða stíga of varlega til jarðar. „Enda vil ég koma inn af krafti og gefa allt sem ég á. En ég vil að það sé alveg skýrt engu að síður að ég er ekki og hef aldrei verið byltingar­sinni. Og ég trúi ekki á töfra­lausnir.“

Fram­tíðarsýn Samfylkingarinnar fyrir Ísland er skýr að sögn nýs formanns flokksins og hún lofar að flokkurinn muni breyta pólitíkinni og stunda öðruvísi stjórnmál. „Við ætlum að stunda skýra og heiðar­lega pólitík. Sem fólk getur treyst. Það sem við segjum verður það sem við meinum og það sem gerum — en ekki bara það sem hver og einn vill heyra hverju sinni. Það er svo sem sagt að vika sé langur tími í pólitík. Og maður veit auðvitað aldrei, en það er hætta á að það séu heil þrjú ár í næstu kosningar.“

Kristrún lofaði að hrista rækilega upp í ástandinu sem nú ríkir í íslenskum stjórn­málum.

„Þessu ástandi vonleysis og uppgjafar. Þetta gengur ekki lengur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár