Píratar og Samfylkingin hafa samanlagt bætt við sig tíu prósentustigum á kjörtímabilinu

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað fylgi frá því að síð­ast var kosið, í sept­em­ber 2021. Staðan er verst hjá Vinstri grænum, sem eru nú sjötti stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður að öllum líkindum formaður Samfylkingarinnar í lok þessa mánaðar.
Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, verður að öllum lík­indum for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í lok þessa mán­aðar. Mynd: Eyþór Árnason

Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar bæta við sig tveimur pró­sentu­stigum af fylgi hvor milli mán­aða sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 22,8 pró­sent og er enn undir þeim 24,4 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum fyrir rúmu ári síðan. Píratar mæl­ast hins vegar með 14,3 pró­sent fylgi og langt yfir þeim 8,6 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í fyrra.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Mest hefur kvarn­ast úr stuðn­ingi við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, Vinstri grænna, en ein­ungis 7,7 pró­sent aðspurðra í könnun Maskínu sögð­ust myndu kjósa flokk­inn í dag. Það er 4,9 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ingum. Ef kosið yrði í dag myndu fimm flokkar fá meira fylgi en Vinstri græn.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur sömu­leiðis verið að dala og mælist nú með 15 pró­sent fylgi, eða 2,3 pró­sentu­stigum minna en þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir þrír því tapað 8,9 pró­sentu­stigum á rúmu ári og mæl­ast saman með 45,5 pró­sent fylgi.

Tveir bætt við sig samanlagt tíu prósentustigum

Auk Pírata hefur Sam­fylk­ingin bætt miklu fylgi við sig það sem af er kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent atkvæða í fyrra­haust en mælist nú með 14,4 pró­sent fylgi og þriðji stærsti flokk­ur­inn á þingi. Saman nemur fylg­is­aukn­ing þess­ara tveggja flokka, sem eru nálægt hvorum öðrum í flestum stefnu­málum

[adspot]Viðreisn hefur líka tekið aðeins við sér und­an­farið og mælist með 9,5 pró­sent fylgi, eða 1,2 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra.

Sam­an­lagt hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 11,4 pró­sentu­stigum á rúmu einu ári og eru með 38,2 pró­sent stuðn­ing.

Fylgi Flokks fólksins næstum helmingast

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 6,5 pró­sent fylgi og leiðir þá deild íslenskra stjórn­mála þar sem fylgið mælist oft í námunda við fimm pró­sentin. Flokk­ur­inn hefur bætt við sig 2,4 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu og er sá eini slíkra flokka sem það hefur gert.

Flokkur fólks­ins náði í 8,8 pró­sent atkvæða í sept­em­ber í fyrra en fylgið hefur nán­ast helm­ing­ast síðan þá og mælist nú 4,6 pró­sent. Óvíst er hvort það myndi duga Flokki fólks­ins inn á þing, en hann mælist nú með minnst fylgi allra þeirra sem nefndir voru í könnun Maskínu.

Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar siglir lygnan sjó með fimm pró­sent fylgi. Það er svipað og hann hefur verið að mæl­ast með allt kjör­tíma­bilið og 0,4 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í sept­em­ber í fyrra.

Könnunin fór fram dag­ana 30. sept­em­ber til 17. októ­ber 2022 og voru 1.638 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár