Vilja breyta nafni Samfylkingar í Jafnaðarflokkinn

Tveir fyrr­verandi þingmenn Samfylk­ing­ar­innar munu leggja það til á lands­fundi flokksins í haust að flokkurinn fái nýtt nafn, Jafnaðar­flokkurinn.

Samfylkingin var formlega stofnuð árið 2000, með samruna afla á vinstri kantinum í íslenskum stjórnmálum.
Sam­fylk­ingin var form­lega stofnuð árið 2000, með sam­runa afla á vinstri kant­inum í íslenskum stjórn­málum. Mynd: Bára Huld Beck

Tveir fyrr­verandi þingmenn Samfylkingarinnar, þeir Mörður Árnason og Kristján L. Möller, ætla að leggja fram tillögu á lands­fundi flokksins um að flokkurinn fái nafnið Jafnaðar­flokkurinn. Frá þessu var sagt í hádegis­fréttum Ríkis­útvarpsins.

Í frétt RÚV er haft eftir Merði að mörgum innan Samfylkingarinnar hafi fundist að það ætti að breyta nafni flokksins, þannig að það vísi með beinni hætti til stefnu hans.

Nafnið hafi á sínum tíma ekki verið ákveðið, heldur hafi það fremur orðið til út frá aðferðinni sem beitt var við stofnun flokksins um aldamótin.

„Við erum ekki að þessu, ekki út af fyrir sig, til þess að ná í eitthvert nýtt fylgi, heldur erum við að þessu til að líða betur í flokknum, til að flokkurinn verði samkvæmari sjálfum sér hvað nafn og ásýnd varðar,“ sagði Mörður við RÚV.

Varð Samfylkingin – Jafnaðarmannaflokkur Íslands árið 2013

Fyrstu þrettán árin frá stofnun hét Samfylkingin einfald­lega Samfylkingin. Nafninu var hins vegar breytt á lands­fundi flokksins árið 2013 og síðan þá hefur flokkurinn heitið Samfylkingin – Jafnaðar­manna­flokkur Íslands.

Jó­hanna Sig­urðardótt­ir þáverandi for­sæt­is­ráðherra og Mar­grét S. Björns­dótt­ir, fyrr­ver­andi formaður fram­kvæmda­stjórn­ar flokks­ins, báru þá til­lögu fram.

Uppfært: Tillaga Marðar og Kristjáns felur í sér að nafn flokksins verði Jafnaðar­flokkurinn, ekki Jafnaðar­flokkur Íslands, eins og áður sagði í fyrirsögn, undir­fyrirsögn og meginmáli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár