Kristrún Frostadóttir orðin formaður Samfylkingarinnar

Kristrún Frosta­dóttir er tekin við sem formaður Samfylk­ing­ar­innar. Hún var ein í framboði og hlaut 94,59 prósent greiddra atkvæða.

Kristrún Frostadóttir, nýr formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Baldur Kristjánsson

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur verið kosin næsti for­maður flokks­ins með 94,59 prósent greiddra atkvæða. Kristrún var eini fram­bjóð­and­inn sem skil­aði inn fram­boði og því lá ljóst fyrir í lok síðustu viku að hún myndi verða nýr formaður.

„Við ætlum að leiða breytingar, við ætlum að breyta pólitíkinni og við ætlum að breyta samfélaginu,“ sagði Kristrún eftir að niður­stöður kjörsins voru kynntar á lands­fundi Samfylkingarinnar sem hófst í dag á Grand hótel og lýkur á morgun. Kristrún þakkaði fyrir traust umboð í ræðu sinni og sagðist skynja von í lofti.

Logi Ein­ars­son, núver­andi for­mað­ur, greindi frá því í sumar að hann ætl­aði að stíga til hliðar á kom­andi lands­fundi. Í við­tali við Frétta­blaðið í júní sagði hann: „Ég er að hætta sem for­­­maður af því að ég er sann­­­færður um að aðrir geti gert betur en ég.“

Kristrún, sem var kjör­inn á þing í fyrra­haust, til­kynnti um fram­boð sitt 19. ágúst síð­ast­lið­inn. Í ræðu sinni af því til­efni sagð­ist hún ætla að leggja áherslu á kjarna­­málin í jafn­­að­­ar­­manna­­stefn­unni. Þau séu hús­næð­is­­mál, heil­brigð­is­­mál, sam­­göng­­ur, góð atvinna og kjör fólks. Það væri lyk­ill­inn að breið­ari og stærri flokki og trú­verð­ug­leika. „Við eigum enga ann­­arra kost á völ að mínu mati, því vand­inn sem við stöndum frammi fyrir er þessi: Kann­­anir hafa sýnt að kjós­­endur eiga erfitt með að festa hönd á það fyrir hvað Sam­­fylk­ingin stend­­ur. Ég vil að það sé alveg á hreinu fyrir hvað flokk­­ur­inn stendur og af hverju hann á erindi við fólkið í land­in­u.“

Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar 16,3 pró­sent, sem er umtals­vert meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021, þegar 9,9 pró­sent kjós­enda kaus hann. Sam­kvæmt könn­un­inni yrði Sam­fylk­ingin næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag.

Kjarn­inn tók ítar­legt við­tal við Kristrúnu í síð­asta mán­uði um hvernig hún sér fyrir sér Sam­fylk­ing­una undir sinni for­mennsku. Það má lesa hér.

Einn sem stendur í framboði til varaformanns

Ljóst er að fleiri svipt­ingar verða í for­ystu­sveit Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Guð­­mundur Árni Stef­áns­­son, odd­viti Sam­­fylk­ing­­ar­innar í Hafn­­ar­­firði, til­kynnti fyrr í þessum mánuði að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér sem vara­­for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­ar. Enginn annar hefur stigið fram á móti honum enn sem komið er en framboðsfrekstur rann út klukkan 18:30 í kvöld. Opnað verður fyrir kosningu til vara­formanns klukkan 20 í kvöld.

Skömmu áður en Guð­­mundur Árni til­kynnti um framboð sitt birti Heiða Björg Hilm­­is­dótt­ir, núver­andi vara­­for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, færslu á Face­book þar sem hún til­­kynnti að hún myndi ekki sækj­­ast eftir end­­ur­­kjöri eftir tæp­­lega sex ára setu. Í ágúst hafði Heiða sagt við mbl.is að hún vildi halda áfram sem vara­­for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar.

Kjöri vara­formanns verður lýst klukkan 22 í kvöld.

Slagur um formennsku í framkvæmdastjórn

Einnig verður kosið um ritara, gjaldkera og formann framkvæmda­stjórnar Samfylkingarinnar um helgina. Framboðs­frestur til þeirra embætta rennur út klukkan 22 í kvöld. Tvær konur hafa þegar til­kynnt um fram­boð til rit­ara Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Alex­andra Ýr van Erven, sem hefur gegnt emb­ætt­inu frá 2020, hefur gefið út að hún sæk­ist eftir end­ur­kjöri. Auk hennar hefur Arna Lára Jóns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri á Ísa­firði, boðað fram­boð til rit­ara. Þeir Jón Grétar Þórsson og Stein Olav Romslo sækjast svo eftir því að verða næsti gjaldkeri, en Hákon Óli Guðmundsson, sitjandi gjaldkeri, sækist ekki eftir endur­kjöri.

Að endingu verður slagur um hver verður formaður framkvæmda­stjórnar, en sá sem gegnir því embætti í dag, Kjartan Valgarðsson, sækist eftir endur­kjöri. Hann mun etja kappi við Guðmund Ara Sigurjónsson, oddvita Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.

Kosning ritara, gjaldkera og formanns framkvæmda­stjórnar fer fram á morgun, laugardag. Þá verður líka kosið í hin ýmsu ráð, nefndir og stjórnir. Formlegum landsfundar­störfum lýkur með stefnu­ræðu nýs formanns, Kristrúnar Frosta­dóttur, sem hefst klukkan 16:30 á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár