Corbyn og May takast á á síðasta degi May

Theresa May segir Jeremy Corbyn mega skamm­ast sín fyrir að hafa kosið gegn frum­varpi hennar um Brexit. Jafn­framt ætti hann að segja af sér.

Theresa May svar­aði í síð­asta skipti fyr­ir­spurnum frá þing­mönnum sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í dag. Til harðra orða­skipta kom á milli May og Jeremy Corbyn, for­manns Verka­manna­flokks­ins. May sagði að Corbyn ætti að skamm­ast sín fyrir að hafa kosið gegn Brexit samn­ingi hennar og að hann ætti að segja af sér. „Sem ein­hver sem veit hvenær sé hennar tími til að gef­ast upp, sting ég upp á að Corbyn átti sig á því að nú sé hans tími til að hætta runn­inn upp,“ sagði May.

Corbyn þakk­aði May fyrir þjón­ustu hennar fyrir almenn­ing. Síðan sótti hann hart að May og spurði hvort hún harm­aði ástand almenn­ings í Bret­landi, þar sem barna­fá­tækt hefði auk­ist, glæpum fjölgað sem og heim­il­is­lausum. May svar­aði að nú væru börn í betri skólum, meiri atvinnu­þátt­taka væri í Bret­landi auk þess sem aðstæður almenn­ings hefðu batnað.

Corbyn vill að kosið verði á þing að nýju svo breskur almenn­ingur geti kosið sinn eig­inn for­sæt­is­ráð­herra, ekki að keflið um for­sætið fari ein­ungis á milli leið­toga Íhalds­flokks­ins.

Boris nýr forsætisráðherra

Í gær réð­ust úrslitin um nýjan for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Barist var um ráð­herra­stól­inn á milli tveggja fram­bjóð­enda, Boris John­son og Jer­emy Hunt. Til­kynnt var um kjörið á vef BBC. Fyrir úrslitin var Boris John­son tal­inn lík­legri til að hreppa hnossið og verða for­sæt­is­ráð­herra.

Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jer­emy 46.656 atkvæði, alls kusu 87,4 pró­sent með­lima Íhalds­flokks­ins. ­Boris þakk­aði Ther­esu May fyrir starf sitt og Jer­emy Hunt fyrir góða kosn­inga­bar­áttu. Hann sagði almenn­ing jafn­framt hafa trú á sér og Íhalds­flokknum að geta sam­eina land­ið, halda Brexit til streitu og sigra Jer­emy Cor­byn.

Í dag mun Boris Johnson taka við kefl­inu og mynda nýja rík­is­stjórn og Theresa May mun fara á fund drottn­ingar í dag og biðj­ast lausnar frá emb­ætti sínu. Theresa May seg­ist munu áfram verða þing­maður og að hún sé ánægð að ein­hver sem hafi verið í hennar rík­is­stjórn muni taka við kefl­inu. 

Halda þurfi Corbyn frá ríkisstjórn

Ther­esa óskaði Boris til ham­ingju með sig­ur­inn í færslu á Twitt­er. Hún sagði einnig að nú þurfi að vinna að því að halda Jer­emy Cor­byn, frá rík­is­stjórn.

Cor­byn segir í Twitt­er-­færslu að John­son hafi ekki unnið sér inn stuðn­ing landa sinna. „Boris John­son hefur fengið stuðn­ing færri en 100.000 með­lima Íhalds­flokks­ins með því að lofa lækkun skatta fyrir hina ríku, með því að gefa sig út fyrir að vera vinur banka­manns­ins og ýta á eftir eyði­leggj­andi No Deal Brex­it,“ skrifar hann.

Hann telur að No Deal Brexit muni þýða fækkun starfa, hækkun vöru­verðs og auka líkur á að heil­brigð­is­þjón­usta muni vera seld til banda­rískra fyr­ir­tækja með hjart­fólgnum samn­ingi við for­seta Banda­ríkj­anna, Don­ald Trump. Cor­byn segir jafn­framt að fólkið í Bret­landi eigi að ákveða hver verði for­sæt­is­ráð­herra lands­ins í almennum kosn­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár