Trump segir Boris munu verða frábæran forsætisráðherra

Forseti Banda­ríkj­anna óskaði Boris Johnson til ham­ingju með kjörið sem næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Trump og Johnson hafa lengi átt í vina­legum sam­skiptum.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, óskaði Boris Johnson til ham­ingju með kjörið sem næsti for­sæt­is­rá­herra Bret­lands í færslu sinni á Twitter. Trump sagði hann jafn­framt munu verða frá­bæran.

Barist var um ráð­herra­stól­inn á milli tveggja fram­bjóð­enda, Boris John­son og Jer­emy Hunt. Boris John­son hlaut kjörið og verður nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jer­emy 46.656 atkvæði, alls kusu 87,4 pró­sent með­lima Íhalds­flokks­ins.

[adspot]Samband Trump og Johnson hefur lengi verið vina­legt. Donald Trump sagði í við­tali fyrr í mán­uð­inum að hann Theresa May hafi eyði­lagt Brexit en að Boris yrði frá­bær for­sæt­is­ráð­herra og að hann hefði það sem þyrfti í starfið. Hann sagði jafn­framt að May hafi „drepið“ allar líkur á því að koma á frí­versl­un­ar­samn­ingi við Banda­ríkin.

Johnson sagði umdeild ummæli Donalds Trump um að fjórar banda­rískar þing­konur sem eru dökkar á hör­und ættu að „fara aftur til síns heima­lands“ vera algjör­lega óvið­eig­andi. Hann sagði þó að ummælin væru ekki rasísk.

Ummælin lét Trump falla um Alex­andriu Ocasio-Cortez, Rashidu Tlaib og Ayanna Pressley sem allar eru fæddar í Banda­ríkj­unum, auk þess sem orð Trump áttu við Ilhan Omar sem kom til Banda­ríkj­anna sem flótta­maður frá Sómalíu þegar hún var ein­ungis tólf ára.

Síðasti dagur May sem forsætisráðherra

Í dag er síð­asti dagur Ther­esu May sem for­sæt­is­ráð­herra og mun hún leita til drottn­ingar Bret­lands til að biðj­ast lausnar frá ráð­herra­emb­ætti sínu ásamt því að til­nefna hinn nýkjörna for­sæt­is­ráð­herra.

­Boris þakk­aði Ther­esu May fyrir starf sitt og Jer­emy Hunt fyrir góða kosn­inga­bar­áttu. Hann sagði almenn­ing jafn­framt hafa trú á sér og Íhalds­flokknum að geta sam­eina land­ið, halda Brexit til streitu og sigra Jer­emy Cor­byn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár