Barist var um ráðherrastólinn á milli tveggja frambjóðenda, Boris Johnson og Jeremy Hunt. Boris Johnson hlaut kjörið og verður nýr forsætisráðherra Bretlands. Jeremy Hunt er núverandi utanríkisráðherra Bretlands og Boris Johnson er forveri hans. Tilkynnt var um kjörið á vef BBC. Fyrir úrslitin var Boris Johnson talinn líklegri til að hreppa hnossið og verða forsætisráðherra.
Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jeremy 46.656 atkvæði, alls kusu 87,4 prósent meðlima Íhaldsflokksins. Boris þakkaði Theresu May fyrir starf sitt og Jeremy Hunt fyrir góða kosningabaráttu. Hann sagði almenning jafnframt hafa trú á sér og Íhaldsflokknum að geta sameina landið, halda Brexit til streitu og sigra Jeremy Corbyn.
[adspot]Í dag er síðasti dagur Theresu May sem forsætisráðherra og mun hún leita til drottningar Bretlands til að biðjast lausnar frá ráðherraembætti sínu ásamt því að tilnefna hinn nýkjörna forsætisráðherra. Theresa óskaði Boris til hamingju með sigurinn í færslu á Twitter. Hún sagði einnig að nú þurfi að vinna að því að halda Jeremy Corbyn frá ríkisstjórn.
Þingmenn og ráðherrar segja af sér
Anne Hamilton, mennatmálaráðherra Bretlands og þingmaður Íhaldsflokksins, sagði af sér í dag, stuttu fyrir tilnefningu nýs forsætisráðherra. Alan Duncan sagði af sér sem aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands í gær en hann hefur gagnrýnt stefnu Borisar harðlega.

Philip Hammond og David Gauke, þingmenn Íhaldsflokksins, hafa sagt munu segja af sér verði Boris Johnson kjörinn forsætisráðherra þar sem þeir segjast ekki fylgjandi harðlínustefnu Borisar í Brexit.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir