Corbyn telur að Bretar eigi að velja forsætisráðherrann

Formaður Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi segir að Boris Johnson hafi ekki unnið sér inn stuðn­ing landa sinna og að Bretar eigi að kjósa um hver verði for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Jeremy Corbyn
Jeremy Corbyn Mynd: EPA

Jeremy Corbyn, for­maður Verka­manna­flokks­ins, hefur bugð­ist við fréttum dags­ins en í morgun var greint frá því að Boris Johnson tæki við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í Bret­landi.

Corbyn segir í Twitter-færslu að Johnson hafi ekki unnið sér inn stuðn­ing landa sinna. „Boris Johnson hefur fengið stuðn­ing færri en 100.000 með­lima Íhalds­flokks­ins með því að lofa lækkun skatta fyrir hina ríku, með því að gefa sig út fyrir að vera vinur banka­manns­ins og ýta á eftir eyði­leggj­andi No Deal Brexit,“ skrifar hann.

Hann telur að No Deal Brexit muni þýða fækkun starfa, hækkun vöru­verðs og auka líkur á að heil­brigð­is­þjón­usta muni vera seld til banda­rískra fyr­ir­tækja með hjart­fólgnum samn­ingi við for­seta Banda­ríkj­anna, Donald Trump.

Corbyn segir jafn­framt að fólkið í Bret­landi eigi að ákveða hver verði for­sæt­is­ráð­herra lands­ins í almennum kosn­ingum.

Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jer­emy 46.656 atkvæð­i. ­Boris þakk­aði Ther­esu May fyrir starf sig og Jer­emy Hunt fyrir góða kosn­inga­bar­áttu. Hann sagði almenn­ing jafn­framt hafa trú á sér og Íhalds­flokknum að sam­eina land­ið, halda Brexit til streitu og sigra Jer­emy Cor­byn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár