Bjarni ákveður að hefja sölumeðferð á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka

Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að ýta sölu á allt að 35 prósent hlut í Íslands­banka úr vör. Takmörk verða sett á hvað hver bjóðandi getur keypt stóran hlut.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur ákveðið að hefja sölu­meðferð á hlut íslenska ríkisins í Íslands­banka. Þetta kemur fram í bréfi sem hann sendi til Banka­sýslu ríksins í dag.

Í bréfinu kemur fram að að Banka­sýslunni verði falið að tryggja að útfærslur á útboðs- og úthlutunar­skilmálum verði í samræmi við ábendingar sem fram koma í umsögnum meirihluta efnahags- og viðskipta­nefnda og fjár­laganefndar um málið.

Í þeim ábendingum er lagt til að seldur verði að lágmarki 25 prósent hlutur í bankanum en að hámarki 35 prósent hlutur í hlutafjár­útboði. Tryggt verður að tilboðs­gjafar í hluti undir ákveðinni krónutölu, sem verður að minnsta kosti ein milljón króna að markaðs­virði, verði ekki fyrir skerðingu ef umfram­eftirspurn verður eftir bréfum í útboðinu. Þá er lagt til að sett verði hámark á hlut hvers tilboðs­gjafa þannig að enginn einn geti keypt stærri hlut en til dæmis 2,5 til 3,0 prósent af heildar­hlutafé bankans.

Einnig verður Banka­sýslunni falið að skoða hvort það samræmist markmiðum ríkisins við söluna að Íslands­banki greiði út arð áður en útboðið fari fram umfram þrjá til fjóra milljarða króna.

Markmið sölunnar er að stuðla að aukinni samkeppni á fjármála­markaði og að leggja grunn að dreifðu eignar­haldi og fjöl­breytileika í eigenda­hópi Íslands­banka.

Ferlið endurvakið í desember

Þann 17. desember síðastliðinn sendi Banka­sýsla ríkisins tillögu til Bjarna Benedikts­sonar um að selja hlut í Íslands­banka í gegnum skráningu á íslenskan markað. Megin­rökin sem voru sett fram fyrir þessu í minnis­blaði sem fylgdi með voru þau að hutabréfamarkaðir hefðu hækkað í kórónu­veiru­faraldrinum og að Icelandair Group, sem stóð frammi fyrir gjald­þroti, hefði tekist að verða sér úti um 30 milljarða króna í nýtt hlutafé til að lifa áfram. Eignar­hald íslenska ríkisins á fjármála­fyrirtækjum væri líka hlutfalls­lega það hæsta í Evrópu.

Afkoma Íslands­banka hefði líka verið í lagi, en bankinn hefur ekki fært niður nema lítinn hluta þeirra lána til fyrir­tækja sem eru í frystingu sem stendur. Í lok september síðastliðins voru það 20 prósent fyrirtækja­lánabókar bankans til fyrir­tækja, alls 120,3 milljarðar króna, og 17,5 milljarðar króna af lánum til einstaklinga. Samtals var því um að ræða tæplega 138 milljarða króna.

Fjórum dögum síðar sendi Bjarni, ásamt ráðuneytis­stjóra sínum, bréf til Banka­sýslunnar og samþykkti tillöguna. Samhliða var send greinar­gerð til Alþingis og nefndar­mönnum í fjár­laganefnd og efnahags- og viðskipta­nefnd gefin mánuður til að skila inn umsögn um málið. Hún átti að berast 20. janúar, eða tveimur dögum eftir að fyrsti þing­fundur eftir jólafrí fór fram.

Greinar­gerðin opinberaði það að ekki átti lengur að freista þess að finna erlenda aðila til að kaupa í Íslands­banka. Það þætti ekki líklegt til árangurs. Svokallað samhliða söluferli var því aflagt og ákveðið að skrá Íslands­banka einungis á markað á Íslandi, ekki tvískrá líka erlendis eins og upp var lagt með til að byrja með. 

Kaupendur af þessu kerfis­lega mikilvæga fyrirtæki, sem átti við síðasta uppgjör eigið fé upp á 182,6 milljarða króna, eiga því að vera íslenskir fjár­festar. Og hann verður skráður í íslenska kauphöll einvörðungu. 

Samhljóma niðurstaða

Þær tvær nefndir Alþingis sem þurftu að skila umsögn um greinar­gerð fjármála- og efnahags­ráðherra vegna banka­sölunnar, fjár­laganefnd og efnahags- og viðskipta­nefnd, gerðu það í síðustu viku. Meirihluti í báðum nefndum var skipaður einvörðungu stjórnar­þingmönnum og þeir komust að samhljóma niður­stöðu. Selja ætti 25 til 35 prósent hlut í bankanum ef rétt verð fengist fyrir og hámarka ætti hlut hvers kaupanda við 2,5 til 3,0 prósent.

Skoða ætti að greiða út arð úr Íslands­banka áður en hlutur í bankanum yrði seldur en eigið fé hans umfram 17 prósent kröfu Fjármála­eftirlitsins var tæplega 58 milljarðar króna í lok september síðastliðins. Ekki liggur alveg skýrt fyrir hversu mikið af því er útgreiðanlegt sem stendur og það þarf að meta. Stjórnar­andstöðu­flokkarnir voru ósammála nálgun ríkis­stjórnarinnar og sá eini þeirra sem var skýrt á þeirri skoðun að selja ætti hlut í Íslands­banka nú var Viðreisn, en fulltrúi flokksins í nefndunum vildi að einhverju leyti aðra aðferðar­fræði við söluna.

Í hinu formlega ferli, sem nú mun hefjast, felst að bankinn verður verð­metinn og ef allt gengur sem skyldi mun hlutafjár­útboð fara fram í maí eða júní þar sem hluti hans verður seldur, fáist viðunandi verð fyrir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár