Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tíu staðreyndir um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka

Til stendur að selja allt að 35 pró­sent hlut í rík­is­banka í sumar. Upphaf þessa fer­ils má rekja til banka­hruns­ins. Hér er allt sem þú þarft að vita um ætl­aða banka­sölu, álita­mál henni tengt og þá sögu sem leiddi til þeirrar stöðu sem nú er uppi.

1. Svona eignaðist ríkið stærstan hlut fjármálakerfisins

Íslenska ríkið setti á fót þrjá nýja banka eftir banka­hrunið utan um, aðal­lega, inn­lendar eignir og skuldir. Arion banki Íslands­banki urðu síðan að mestu eign kröfu­hafa þeirra á meðan að Lands­bank­inn hélst í opin­berri eigu, en við gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna fór Íslands­banki aftur til rík­is­ins.

Heimild hefur verið fyrir því að selja hluti rík­is­ins í bönkum í fjár­lögum frá árinu 2014. Fyrst var um að ræða þann litla hlut sem það átti í Arion banka og Íslands­banka og allt að 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum. Þessi heim­ild hefur svo tekið breyt­ingum eftir því sem eign­ar­hald rík­is­ins hefur þró­ast. Það á enda ekk­ert lengur í Arion banka, sú 13 pró­sent hlutur var seldur í febr­úar 2018 fyrir 23,4 millj­arða króna til helstu kröfu­hafa Kaup­þings.

2. Samið um að selja í stjórnarsáttmála

Sú rík­is­stjórn sem mynduð var undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur í nóv­em­ber­lok 2017 hefur haft það mark­mið, stað­fest í stjórn­ar­sátt­mála, að leita leiða til að draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Til að vinna að þessu mark­mið var skip­aður hópur til að skrifa Hvítbók um fjár­mála­kerfið. Hann skil­aði skýrslu sinni í des­em­ber 2018. Tvær helstu nið­ur­stöður hennar eru að fjár­mála­kerfið sé sam­fé­lags­lega mik­il­vægt og að traust sé und­ir­staða þess að það virki sem skyldi. Það sé síðan hlut­verk rík­is­ins að tryggja umgjörð sem stuðli að verð­skuld­uðu trausti.

Þar er líka sagt að heil­brigt eign­ar­hald sé „mik­il­væg for­senda þess að banka­kerfi hald­ist traust um langa fram­tíð. Í því felst að eig­endur banka séu traust­ir, hafi umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu á starf­semi banka og fjár­hags­lega burði til að standa á bak við bank­ann þegar á móti blæs. Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.“

Á grunni þess­arar nið­ur­stöðu hófu stjórn­völd nán­ast sam­stundis að reyna að selja eign­ar­hluti í rík­is­bönk­unum tveimur.

3. Söluferli sett af stað

Rúmum mán­uði eftir að Hvít­bókin var birt sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að hann vildi að ríkið myndi selja 60-65 pró­sent hlut í Lands­bank­anum og allt hlutafé í Íslands­banka. Heimild var fyrir báðum þeim sölum í fjár­lögum á þessum tíma.

Katrín var sjálf með aðeins aðra nálgun. Hún sagði það ekki sína sýn að halda Íslands­banka en það sem skipti máli væri að ríkið yrði áfram leið­andi fjár­festir í Lands­bank­anum.

Í sept­em­ber 2019 lagði Banka­sýsla rík­is­ins til að fjórð­ungs­hlutur í Íslands­banka yrði seldur. Málið var komið á rek­spöl.

4. Málamiðlun í eigendastefnu

Bjarni sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun febr­úar 2020 að sölu­ferlið myndi hefj­ast innan nokk­urra vikna. Nokkuð ljóst var á við­brögðum hinna stjórn­ar­leið­tog­anna að ein­hvers­konar sam­komu­lag lá fyrir um mála­miðlun í banka­sölu­á­formum.

Sú mála­miðlun birt­ist í breyttri eig­enda­stefnu nokkrum vikum síðar. Í stað þess að stefnt yrði að því að ríkið ætti 34-40 pró­sent í Lands­bank­anum átti það að eiga „veru­legan hlut“ í bank­anum til lang­frama og ákvörðun um að selja eitt­hvað í honum yrði ekki tekin fyrr en Íslands­banki yrði að öllu leyti seldur. Allt var í far­vegi til að hefja sölu­ferli Íslands­banka. Til stóð að selja hlut­inn í svoköll­uðu sam­hliða sölu­ferli, þar sem leitað yrði að erlendum eig­enda að hlut í bank­anum sam­hliða skrán­ingu hans á markað á Íslandi og í erlendri kaup­höll.

Svo kom kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

5. Hætt við en skyndilega byrjað aftur

Um miðjan mars 2020 aft­ur­kall­aði Banka­sýsla rík­is­ins til­lögu um að hefja sölu­ferlið. Sala banka væri ekki raun­hæf vegna efna­hags­legra aðstæðna á Íslandi og alþjóða­vett­vangi. Málið var saltað.

Þar til að það var skyndi­lega end­ur­vakið 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn, degi áður en að Alþingi fór í jóla­frí. Það gerð­ist þannig að Banka­sýsla rík­is­ins – stjórn hennar og for­stjóri – sendu til­lögu til Bjarna Bene­dikts­sonar um að selja hlut í Íslands­banka í gegnum skrán­ingu á íslenskan markað. Meg­in­rökin sem voru sett fram fyrir þessu í minn­is­blaði sem fylgdi með voru þau að huta­bréfa­mark­aðir hefðu hækkað í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og að Icelandair Group, sem stóð frammi fyrir gjald­þroti, hefði tek­ist að verða sér úti um 30 millj­arða króna í nýtt hlutafé til að lifa áfram. Eign­ar­hald íslenska rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum væri líka hlut­falls­lega það hæsta í Evrópu.

Afkoma Íslands­banka hefði líka verið í lagi, en bank­inn hefur ekki fært niður nema lít­inn hluta þeirra lána til fyr­ir­tækja sem eru í fryst­ingu sem stendur. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru það 20 pró­sent fyr­ir­tækja­lána­bókar bank­ans til fyr­ir­tækja, alls 120,3 millj­arðar króna, og 17,5 millj­arðar króna af lánum til ein­stak­linga. Samtals var því um að ræða tæp­lega 138 millj­arða króna.

Fjórum dögum síðar, þegar þing­menn voru komnir í jóla­frí, sendi Bjarni, ásamt ráðu­neyt­is­stjóra sínum, bréf til Banka­sýsl­unnar og sam­þykkti til­lög­una. Samhliða var send grein­ar­gerð til Alþingis og nefnd­ar­mönnum í fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd gefin mán­uður til að skila inn umsögn um málið. Hún átti að ber­ast 20. jan­úar, eða tveimur dögum eftir að fyrsti þing­fundur eftir jóla­frí fór fram.

6. Hætt við að finna erlenda kaupendur

Grein­ar­gerðin opin­ber­aði það að ekki átti lengur að freista þess að finna erlenda aðila til að kaupa í Íslands­banka. Það þætti ekki lík­legt til árang­urs. Svo­kallað sam­hliða sölu­ferli var því aflagt og ákveðið að skrá Íslands­banka ein­ungis á markað á Íslandi, ekki tví­skrá líka erlendis eins og upp var lagt með til að byrja með.

Til stendur að selja allt að 35 prósent hlut í Íslandsbanka.
Til stendur að selja allt að 35 pró­sent hlut í Íslands­banka.

Kaup­endur af þessu kerf­is­lega mik­il­væga fyr­ir­tæki, sem átti við síð­asta upp­gjör eigið fé upp á 182,6 millj­arða króna, eiga því að vera íslenskir fjár­festar. Og hann verður skráður í íslenska kaup­höll ein­vörð­ungu.

7. Gegn hugmyndafræði um eignarhald á banka

Til við­bótar við þau nýju rök sem týnd voru til í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar hafa tals­menn sölu dustað rykið af fyrri rök­semd­ar­færslum. Að banka­rekstur sé mikil áhættu­rekstur. Að ríkið þyrfti að verða sér úti um fjár­muni til að standa undir kostn­aði vegna COVID-19 aðgerða með sölu eigna. Að framundan væri svo mikil breyt­ing á banka­starf­semi vegna þró­unar í fjár­tækni að það þyrfti að flýta sér að selja nú svo að bank­arnir yrðu ekki bara verð­lausir. Og heið­ar­leg­ustu rökin: að það sam­ræm­ist ein­fald­lega ekki hug­mynda­fræði áhuga­manna um banka­sölu innan rík­is­stjórn­ar­innar að ríki eigi banka.

8. Samkeppniseftirlitið hefur áhyggjur af samkeppnislegum áhrifum

Ýmis­konar umsagnir hafa borist vegna fyr­ir­hug­aðrar sölu. Það kom fæstum á óvart að bæði Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð voru mjög fylgj­andi sölu og því ferli sem hefur verið sett fram en að Alþýðu­sam­band Íslands var mót­fallið fyr­ir­ætl­un­inni. Seðla­bank­inn skil­aði líka umsögn þar sem fátt mark­tækt kom fram.

Sú umsögn sem vakti mesta athygli kom frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Það lagði til að ríkið hefði það að leið­ar­ljósi við sölu Íslands­banka að fá sem fjöl­breytt­ast eign­ar­hald aðila sem lík­legir eru til að hafa lang­tíma­hags­muni af traustum banka­rekstri. Þá vildi eft­ir­litið að kaup­endur að stórum hluta Íslands­banka ættu ekki jafn­framt hlut í keppi­nautum hans, að kaup­endur séu ekki mik­il­vægir keppi­nautar eða umsvifa­miklir við­skipta­vinir Íslands­banka. Sú gagn­rýni beind­ist aðal­lega að líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem eiga saman stóran hlut í tveimur öðrum skráðum bönkum, Arion banka og Kviku, og allt að helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í Kauphöll, en þau félög eru stórir við­skipta­vinir íslenskra banka. Þá eru líf­eyr­is­sjóðir sam­keppn­is­að­ilar við­skipta­banka á hús­næð­is­lána­mark­aði.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið var­aði líka sér­stak­lega við því að selja eign­ar­hluti í bönkum til mikið skuld­settra eign­ar­halds­fé­laga í eigu einka­fjár­festa vegna þeirrar hættu sem slíkt eign­ar­hald getur skap­að. Þar vísar eft­ir­litið til reynsl­unnar af banka­hrun­inu 2008 en bank­arnir voru á þeim tíma að veru­legu leyti í eigu og undir stjórn skuld­settra eign­ar­halds­fé­laga í eigu einka­fjár­festa sem gjarnan voru jafn­framt meðal stærstu við­skipta­vina bank­anna, ýmist beint eða óbeint.

9. Meirihlutinn vill selja allt að 35 prósent hlut

Þær tvær nefndir Alþingis sem þurftu að skila umsögn um grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna banka­söl­unnar, fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd, gerðu það í síð­ustu viku. Meiri­hluti í báðum nefndum var skip­aður ein­vörð­ungu stjórn­ar­þing­mönnum og þeir komust að sam­hljóma nið­ur­stöðu. Selja ætti 25 til 35 pró­sent hlut í bank­anum ef rétt verð feng­ist fyrir og hámarka ætti hlut hvers kaup­anda við 2,5 til 3,0 pró­sent. Skoða ætti að greiða út arð úr Íslands­banka áður en hlutur í bank­anum yrði seldur en eigið fé hans umfram 17 pró­sent kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var tæp­lega 58 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Ekki liggur alveg skýrt fyrir hversu mikið af því er útgreið­an­legt sem stendur og það þarf að meta. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir voru ósam­mála nálgun rík­is­stjórn­ar­innar og sá eini þeirra sem var skýrt á þeirri skoðun að selja ætti hlut í Íslands­banka nú var Viðreisn, en full­trúi flokks­ins í nefnd­unum vildi að ein­hverju leyti aðra aðferð­ar­fræði við söl­una.

Í ljósi þessa mun nú hefj­ast hið form­lega ferli. Bankinn verður verð­met­inn og ef allt gengur sem skyldi mun hluta­fjár­út­boð fara fram í maí eða júní þar sem hluti hans verður seldur.

10. Kannanir sýna skýra andstöðu almennings

Ein helsta nið­ur­staða Hvít­bókar um fram­tíð­ar­sýn fjár­mála­kerf­is­ins er að traust þurfi til svo það virki sem skyldi. Í könnun sem gerð var við gerð Hvít­bók­ar­innar kom fram að 61,2 pró­sent lands­manna væri jákvæður gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­skipta­banka. Ein­ungis 13,5 pró­sent þeirra voru nei­kvæðir gagn­vart því og 25,2 pró­sent höfðu ekki sér­staka skoðun á því.

Landsmenn hafa áhyggjur af spillingu og græðgi í fjármálakerfinu.
Lands­menn hafa áhyggjur af spill­ingu og græðgi í fjár­mála­kerf­inu.

Í nið­ur­stöðum hennar kom líka fram að þau þrjú orð sem flestum Íslend­ingum datt í hug til að lýsa banka­­kerf­inu á Íslandi voru háir vext­ir/­­dýrt/ok­­ur, glæp­a­­starf­­sem­i/­­spill­ing og græðgi. Þar á eftir komu orð eins og van­­traust, hrun og há laun/­­bón­us­­ar/eig­in­hags­muna­­semi. Í könnun sem Gallup birti í febr­úar í fyrra kom í ljós að 23 pró­sent lands­manna treystu Alþingi, þeirri stofnun sem á að fara með sölu Íslands­banka. Í könnun sem hóp­ur­inn Skilta­karl­arnir létu MMR gera fyrir sig nýverið kom fram að tveir af hverjum þremur aðspurðum sögð­ust ekki treysa Bjarna Bene­dikts­syni til að selja Íslands­banka. Í könnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðu­sam­band Íslands, og var birt á föstu­dag, kom fram að tæp 56 pró­sent lands­manna leggj­ast gegn því að ríkið selji hlut sinn í Íslands­banka á næstu mán­uð­um. Alls 23,5 pró­sent sögð­ust vera fylgj­andi sölu og 20,8 pró­sent sögð­ust ekki hafa skoðun á mál­inu, hvorki með né á móti.

Mjög mis­mun­andi afstaða birt­ist hjá stuðn­ings­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna til áfor­manna. Hjá þeim sem ætla að kjósa Vinstri græn er and­staðan mikil (65 pró­sent eru á móti en 23 pró­sent er hlynnt, hinum er alveg sama). Í raun njóta áformin ein­ungis afger­andi stuðn­ings hjá stuðn­ings­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks (56 pró­sent þeirra eru fylgj­andi sölu en ein­ungis 21 pró­sent á móti, og 23 pró­sent hafa ekki skoðun á mál­inu).

Tekið skal fram að í spurn­ing­unni sem Gallup lagði fyrir svar­endur var ekki til­greint hversu stóran hluta ríkið ætl­aði sér að selja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár