Samkeppniseftirlitið varar við því að selja banka til skuldsettra eignarhaldsfélaga

Í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna fyr­ir­hug­aðrar sölu á hlut í Íslands­banka eru viðr­aðar marg­hátt­aðar sam­keppn­is­legar áhyggjur af því að líf­eyr­is­sjóðir eigi í öllum íslensku við­skipta­bönk­unum. Þeir séu bæði við­skipta­vinir og sam­keppn­is­að­ilar banka.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

Sam­keppn­is­eft­ir­litið leggur til að ríkið hafi það að leið­ar­ljósi við sölu Íslands­banka að fá sem fjöl­breytt­ast eign­ar­hald aðila sem lík­legir eru til að hafa lang­tíma­hags­muni af traustum banka­rekstri. Þá vill eft­ir­litið að kaup­endur að stórum hluta Íslands­banka eigi ekki jafn­framt hlut í keppi­nautum hans, að kaup­endur séu ekki mik­il­vægir keppi­nautar eða umsvifa­miklir við­skipta­vinir Íslands­banka.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið varar sér­stak­lega við því að selja eign­ar­hluti í bönkum til mikið skuld­settra eign­ar­halds­fé­laga í eigu einka­fjár­festa vegna þeirrar hættu sem slíkt eign­ar­hald getur skapað. Þar vísar eft­ir­litið til reynsl­unnar af banka­hrun­inu 2008 en bank­arnir voru á þeim tíma að veru­legu leyti í eigu og undir stjórn skuld­settra eign­ar­halds­fé­laga í eigu einka­fjár­festa sem gjarnan voru jafn­framt meðal stærstu við­skipta­vina bank­anna, ýmist beint eða óbeint.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um fyr­ir­hug­aða sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem það sendi til fjár­laga­nefndar í síð­ustu viku. Undir umsögn­ina skrifar meðal ann­ars Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Bankasala komin kyrfilega aftur á dagskrá

Síðar í dag mun Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, flytja munn­lega skýrslu um hina vænt­an­legu sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Sölu­ferlið var end­ur­vakið 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar Banka­sýsla rík­is­ins sendi til­lögu til Bjarna þess efnis. Sú til­laga var sam­þykkt fjórum dögum síðar, 21. des­em­ber.

[adspot]Samhliða var sent bréf og grein­ar­gerð til Alþingis og óskað eftir umsögn fjár­laga­nefndar og efna­hags- og við­skipta­nefndar um grein­ar­gerð­ina. Nefnd­ar­menn fengu til 20. jan­úar, eða einn mánuð, til að skila þeirri umsögn. Hún þarf því að liggja fyrir á mið­viku­dag en fyrsti þing­fundur árs­ins 2021 er síðar í dag.

Umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kemur til vegna þess að fjár­laga­nefnd bað stofn­un­ina um að „taka saman stutt minn­is­blað“ um málið þar sem fram kæmu þau sjón­ar­mið sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið álíti að nauð­syn­legt væri að nefndin hefði í huga við gerð umsagnar sinnar varð­andi áætl­aða sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka.

Vara við skuldsettum eignarhaldsfélögum

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir í umsögn sinni að það sé með­vitað um að núver­andi eign­ar­hald rík­is­ins á tveimur við­skipta­bank­anna þriggja sé ekki heppi­legt í sam­keppn­is­legu til­liti. Sú staða dragi hins vegar ekki úr mik­il­vægi þess að stjórn­völd und­ir­búi sölu á eign­ar­hlut sínum vel og meti áhrif hennar á sam­keppni.

Í umsögn­inni er mikil áhersla lögð á áhyggjur vegna væntrar aðkomu líf­eyr­is­sjóða að fjár­fest­ingu í Íslands­banka vegna allt um lykj­andi stöðu þeirra í íslensku atvinnu­lífi.

Þar segir að fyrir þann fjórð­ungs­hlut sem stjórn­völd stefna að því að selja að lág­marki í Íslands­banka til að byrja með myndu fást í mesta lagi um 45 millj­arðar króna miðað við eig­in­fjár­stöðu bank­ans, en senni­lega minna. Vandséð sé að hægt verði að selja fjórð­ungs­hlut rík­is­ins, og hvað þá allan hlut rík­is­ins, í Íslands­banka án aðkomu líf­eyr­is­sjóð­anna nema erlendir fjár­festar komi að útboð­inu. Það séu ein­fald­lega ekki aðrir inn­lendir fjár­festar með bol­magn til þess að kaupa svo stóra hluti og sér­stak­lega er varað við því að selja skuld­settum eign­ar­halds­fé­lögum. „Í því sam­bandi vís­ast til reynsl­unnar af banka­hrun­inu 2008 en bank­arnir voru á þeim tíma að veru­legu leyti í eigu og undir stjórn skuld­settra eign­ar­halds­fé­laga í eigu einka­fjár­festa sem gjarnan voru jafn­framt meðal stærstu við­skipta­vina bank­anna, ýmist beint eða óbeint.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið vekur líka athygli á því að sú sölu­til­högun sem boðuð hefur verið sé lík­leg til að draga enn frekar úr mögu­legum áhuga erlendra aðila. „Þannig verður að telj­ast mjög ólík­legt að erlendir aðilar (t.d. stofn­ana­fjár­festar) hefðu áhuga á þátt­töku þegar salan tekur aðeins til fjórð­ungs­hlutar í bank­anum og án skýrrar stefnu­mörk­unar um áfram­hald­andi sölu.“

Hafa áhyggjur af aðkomu lífeyrissjóða

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur til ýmis­legt til að und­ir­byggja skoðun sína um við­kvæma sam­keppn­is­lega stöðu líf­eyr­is­sjóða þegar kemur að banka­kaupum. Í fyrsta lagi liggi fyrir að sam­an­lagður eign­ar­hlutur þeirra líf­eyr­is­sjóða sem eiga yfir eitt pró­sent hlut hlut í Arion banka, öðrum aðal­keppi­naut Íslands­banka, nemi um 35 pró­sent af heild­ar­hlutafé bank­ans. Þar af eigi þrír stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir (Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi) tæpan 24 pró­sent eign­ar­hlut.

[links]Í öðru lagi verði að hafa í huga að líf­eyr­is­sjóð­irnir eigi í mörgum til­vikum hags­muna að gæta sem eig­endur helstu við­skipta­vina bank­anna, en leið­andi hlut­verk líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem vaxið hefur að umfangi um mörg þús­und millj­arða króna á fáum árum, í end­ur­reisn íslensks hluta­bréfa­mark­aðar eftir banka­hrunið hefur gert það að verkum að þeir eiga allt að helm­ing, beint og óbeint, allra hluta­bréfa í skráðum félögum. Þar er oft um að ræða félög í sam­keppni við hvort annað, til dæmis í fjar­skiptum, trygg­inga­starf­semi og fast­eigna­rekstri.

Í þriðja lagi lagi séu líf­eyr­is­sjóðir við­skipta­vinir bank­anna á ýmsum sviðum. Þeir taki því þátt í fjár­mögnun bank­anna, eru meðal ann­ars fjár­festar í verk­efnum banka og sjóða á þeirra vegum og þiggja marg­vís­lega ráð­gjöf frá bönk­unum.

Síðast en ekki síst verði að hafa í huga að líf­eyr­is­sjóð­irnir séu á sama tíma að nokkru leyti í sam­keppni við bank­ana á lána­mark­aði. „Líf­eyr­is­sjóð­irnir keppa við bank­ana á íbúða­lána­mark­aði en einnig veita þeir bönk­unum ákveðið aðhald á sviði fleiri teg­unda lána með því að fjár­festa í sjóðum sem stofn­aðir hafa verið til kaupa á skulda­bréfum fyr­ir­tækja. Eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóð­anna á bönk­unum virð­ist þannig geta haft til­tekna hags­muna­á­rekstra í för með sér fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina.“

Háttsemi sem geti verið skaðleg fyrir allan almenning

Eft­ir­litið bendir á að íslenskur fjár­mála­mark­aður beri sterk fákeppn­is­ein­kenni. Á honum starfi fáir keppi­nautar á litlum og ein­angr­uðum mark­aði. Sú ein­angrun sjá­ist meðal ann­ars á því að gengið sé út frá að áhugi erlendra kjöl­festu­fjár­festa á kaupum á íslenskum banka sé ekki til staðar.

Sér­stak­lega þurfi að gæta var­úðar í sam­keppn­is­legu til­liti á mörk­uðum sem ein­kenn­ast af fákeppni. „Á slíkum mörk­uðum draga ákvarð­anir keppi­nauta oft dám af því að þeir eru stra­tegískt inn­byrðis háðir því hvernig hinir hegða sér á mark­aði. Á fákeppn­is­mörk­uðum getur mynd­ast jarð­vegur fyrir þegj­andi sam­hæf­ingu (e. tacit collusion). Þannig geta fyr­ir­tækin séð sér hag í því að verða sam­stíga í mark­aðs­hegðun, t.d. geta þau tak­markað fram­boð á vöru eða þjón­ustu til þess að geta hækkað sölu­verð með það að leið­ar­ljósi að sam­ræmd mark­aðs­hegðun leiði til hámörk­unar sam­eig­in­legs hagn­aðar. Slík hátt­semi getur verið mjög skað­leg fyrir við­skipta­vini og allan almenn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár