Ólíklegt að erlendur banki hafi áhuga á að kaupa íslenskan banka

Hætt hefur verið við svo­kallað sam­hliða sölu­ferli á Íslands­banka vegna þess að ekki er talið að erlendir bankar hafi áhuga á að eign­ast hlut í honum „í núver­andi umhverfi“. Þess í stað verður Íslands­banki að óbreyttu skráður á íslenskan hluta­bréfa­markað.

Grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka var rædd í tveimur nefndum Alþingis í dag. Til stendur að ótil­greindur hlutur í bank­anum verði seldur í maí.

Tillagan að sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka nú er frá­brugðin því sem Banka­sýsla rík­is­ins lagði til í byrjun mars í fyrra á tvennan hátt. I fyrsta lagi er ekki lagt upp með svo­kallað sam­hliða sölu­ferli. Í slíku ferli er aðal­lega stefnt að skrán­ingu eign­ar­hlut­ans á hluta­bréfa­markað í gegnum útboð en líka beinni sölu á hluta eða öllum eign­ar­hlut rík­is­ins í gegnum upp­boð.

Ekki reiknað með áhuga erlends banka

Það að falla frá sam­hliða sölu­ferli er rök­stutt í til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins með því að ólík­legt sé „að erlendur banki muni sýna því áhuga að eign­ast hlut í inn­lendum banka í núver­andi umhverfi, enda fá dæmi á þessu ári um beina sölu á bönkum í Evrópu til fjár­festa eða ann­arra banka fyrir utan sam­runa banka innan sama lands“.

Í öðru lagi er nú ein­ungis stefnt að skrán­ingu Íslands­banka á hluta­bréfa­markað á Íslandi, en í til­lögu Banka­sýsl­unnar frá 4. mars 2020 var gert ráð fyrir tví­hliða skrán­ingu í erlendri kaup­höll. Tvö félög í íslensku kaup­höll­inni eru líka skráð á markað erlendis, Arion banki og Marel. Í grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vegna sölu hluta í Íslands­banka segir að afar lágt hlut­fall við­skipta með hluti í félög­unum tveimur sé í erlendri kaup­höll. Því til stuðn­ings er bent á að frá byrjun árs 2020 og til 27. nóv­em­ber sama ár var hlut­fall inn­lendrar veltu í kaup­höll sem hlut­fall að sam­eig­in­legri veltu með hluta­bréf í Arion banka sam­tals 87,5 pró­sent og í til­felli Marel 91 pró­sent.

Hversu mikið verður selt?

Rík­is­stjórnin hefur ekki gefið upp hversu mikið hún vill selja á þess­ari stundu. Þó er það þannig að þegar frumút­boð á sér stað á skipu­legan verð­bréfa­markað miða kaup­hallir almennt við að hlutur almennra fjár­festa í skráðu félagið verði að lág­marki að vera 25 pró­sent eftir skrán­ingu. Það þýðir á manna­máli að miðað við hefð­bundin við­mið þarf ríkið að selja að minnsta kosti fjórð­ung.

Í grein­ar­gerð ráðu­neyt­is­ins segir að mögu­legt gæti verið að fá und­an­þágu á þess­ari reglu í ljósi stærðar Íslands­banka, en hann yrði lík­lega þriðja verð­mætasta skráða félag lands­ins á eftir Marel og Arion banka ef af skrán­ingu verður. Þar segir líka að upp­lýs­ingar um það magn sem selt verður, og verð­bilið sem það verður selt á, muni ekki verða birt fyrr en að skrán­ing­ar­lýs­ing verður birt. Samkvæmt áætlun er stefnt að því að það verði í lok apríl eða byrjun maí.

Hvenær var þetta ákveðið?

Tillaga Banka­sýslu rík­is­ins um sölu á eign­ar­hlut í Íslands­banka var send til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn, eða degi áður en að Alþingi fór í jóla­frí.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­mála­ráðu­neyt­inu, sendu bréf til baka á Banka­sýsl­una 21. des­em­ber þar sem til­laga hennar um að hefja sölu­með­ferð á Íslands­banka var sam­þykkt.

Bjarni Benediktsson mun taka ákvörðun um hvort hlutur í Íslandsbanka verði seldur.
Bjarni Bene­dikts­son mun taka ákvörðun um hvort hlutur í Íslands­banka verði seldur.

Samhliða sendu þeir bréf og grein­ar­gerð til Alþingis og ósk­uðu eftir umsögn fjár­laga­nefndar og efna­hags- og við­skipta­nefndar um grein­ar­gerð­ina. Þeir gáfu nefnd­ar­mönnum til 20. jan­úar, eða einn mánuð, til að skila umsögn um grein­ar­gerð­ina. Samkvæmt starfs­á­ætlun Alþingis hófst form­legt starf þess aftur 12. jan­úar, eða í dag, með nefnd­ar­fundum. Fyrsti þing­fundur árs­ins verður svo næst­kom­andi mánu­dag, 18. jan­úar.

Þingmenn sem Kjarninn hefur rætt við hafa kvartað mjög yfir þessum tímara­mma og tor­tryggt hann. Hluti við­mæl­enda telja að verið sé að nýta sér það að jóla­frí sé til staðar til að forð­ast frek­ari umræðu um hið end­ur­vakta sölu­ferli.

Þegar umsagnir nefnda og Seðla­banka Íslands liggja fyrir verður tekin end­an­lega ákvörðun, af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um hvort sölu­með­ferðin verði hafin, og er búist við því að sú ákvörðun verði skýrt að halda áfram með ferlið.

Tekur um fimm mánuði að selja hlut í banka

Hið form­lega sölu­ferli mun þá hefj­ast fyrir lok jan­ú­ar­mán­aðar og taka um fimm mán­uði frá því að ákvörðun ráð­herra liggur fyrir. Þetta er styttri tíma­lína en áætlað var í fyrri til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins.

Því mun hlutur í Íslands­banka verða seldur í maí gangi áformin eftir. Loka­hnykk­ur­inn í því ferli, eftir að til­boð í boðna eign­ar­hluti liggja fyrir, verður sá að Banka­sýsla rík­is­ins mun skila Bjarna Bene­dikts­syni rök­studdu mati á þeim til­boðum. Í grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins segir að ráð­herr­ann muni í kjöl­farið taka „end­an­lega ákvörðun um hvort til­boð skuli sam­þykkt eða þeim hafnað og und­ir­ritar samn­inga fyrir hönd rík­is­ins um sölu eign­ar­hlut­ar­ins.“

Helstu rök rík­is­stjórn­ar­innar fyrir því að selja hlut í Íslands­banka nú er að nauð­syn­legt sé að fjár­magna halla­rekstur rík­is­sjóðs. Það stefnir enda í að hann verði rek­inn með um 600 millj­arða króna halla á árunum 2020 og 2021. Þá þykir þróun á hluta­bréfa­mörk­uðum und­an­farið, þar sem hluta­bréf hafa hækkað um tugi pró­senta á skömmum tíma, gefa til kynna að góður tími sé til að selja.

Ýmsir slá varnagla

Þótt rík­is­stjórnin virð­ist sam­stíga í stefnu sinni um að selja hlut í Íslands­banka, sem er í sam­ræmi við það mark­mið í stjórn­ar­sátt­mála hennar að minnka umsvif rík­is­ins á fjár­mála­mark­aði og ferli í þá átt var langt komið þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, þá hafa ýmsir gagn­rýnt áformin.

Hluti þeirrar gagn­rýni byggir á sömu rökum og áður, en hluti snýr að tíma­setn­ing­unni. Þ.e. að selja hlut í banka í miðjum heims­far­aldri þegar til dæmis hefur verið losað hefur verið um bind­ingu á umtals­verðu af eigin fé banka.

Einn þeirra er Gylfi Magn­ús­son, for­seti við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­herra og for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands.

Í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook í gær deilir hann fimm ára gam­alli grein sem birt­ist á Kjarn­anum þar sem hann fjall­aði um fyr­ir­hug­aða einka­væð­ingu rík­is­banka. Í nið­ur­lagi þeirrar greinar sagði meðal ann­ars að versta hugs­an­lega útkoman úr einka­væð­ingu rík­is­banka væri ein­hvers­konar end­ur­tekn­ing á því sem gerð­ist þegar Lands­banki Íslands og Bún­að­ar­bank­inn voru einka­væddir 2002 og 2003. „Við fengjum nýjar útgáfur af skuld­settum við­skipta­blokkum með­ ­sterk póli­tísk tengsl sem skipta á milli sín banka­kerf­inu og merg­sjúga það uns eftir eru rústir ein­ar. Það tók innan við sex ár síð­ast.“

Í stöðu­upp­færsl­unni segir Gylfi að mest, ef ekki allt, í fyrri gagn­rýni hans eigi enn við. „Þó hefur auð­vitað eitt­hvað breyst. M.a. skiptir máli að vextir á skuldum rík­is­ins hafa haldið áfram að lækka. Ávinn­ing­ur­inn af því að selja banka og greiða upp skuld­irnar er því enn minni en áður. Raunar gætu arð­greiðslur sem ríkið verður af vegna sölu verið hærri en vextir sem ríkið þarf ekki að greiða ef það notar sölu­and­virðið til að grynnka á skuldum. Áhætta rík­is­ins minnkar þó líka við sölu og það er ávinn­ingur í því frá sjón­ar­hóli rík­is­sjóðs.“

Skiptir miklu máli hverjir kaupa

Gylfi segir auknar skuldir rík­is­sjóðs vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins lítið breyta þeirri mynd sem blasi við og raunar sé ávöxt­un­ar­krafan á rík­is­skuldum nú lægri en í aðdrag­anda far­ald­urs­ins. „Það þarf því ein­hver önnur rök en þann halla­rekstur fyrir því að selja banka núna. Við ákvörðun um sölu ætti þó fyrst og fremst að horfa til áhrif­anna á hag­kerfið í heild, ekki bara á fjár­hag rík­is­ins, þótt auð­vitað skipti hann máli. Fyrir áhrifin á hag­kerfið í heild skiptir miklu hverjir kaupa og hvaða hug­myndir þeir hafa um rekstur bank­ans. Það væri t.d. alls ekki heppi­legt að kaup­end­urnir stefndu að því leynt eða ljóst að greiða sem mest eigið fé út til hlut­hafa í náinni fram­tíð.“

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði og sér­fræð­ingur hjá Eflingu, skrif­aði grein í Kjarnann í gær þar sem hann sagði að nú væri rétti tím­inn til að eiga bank­ana áfram. Þannig væri hægt að láta arð­greiðslur úr bönk­unum greiða niður hinar aukni skuldir rík­is­ins vegna kór­ónu­veiru­krepp­unnar.

Með því mætti forð­ast skatta­hækk­anir og nið­ur­skurð í vel­ferð­ar­málum og inn­við­fram­kvæmdum á næsta ára­tug. „Það hljóta allir að sjá skyn­sem­ina í þessu – nema auð­vitað þeir sem vilja sjálfir hirða þennan arð úr bönk­unum í eigin vasa.“

Eigið fé ríkisbankans 182,5 milljarðar

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 var hagn­aður Íslands­banka af áfram­hald­andi starf­semi 3,5 millj­arðar króna. Hagnaður bank­ans hefur auk­ist þegar liðið hefur á árið, eftir að nauð­syn­legar nið­ur­færslur vegna COVID-19 höfðu verið teknar inn í reikn­ing hans, og var hagn­aður Íslands­banka á þriðja árs­fjórð­ungi til að mynda 3,1 millj­arður króna, eða einum millj­arði króna meiri en hann var á sama tíma árið 2019.

Íslands­banki á mikið eigið fé. Í lok sept­em­ber var það 182,5 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið þá var 22,2 pró­sent, sem er vel yfir kröfum Seðla­banka Íslands um 17 pró­sent eigið fé. Umfram eigið féð hleypur því á tugum millj­arða króna. Hluta þess væri hægt að greiða út til nýrra hlut­hafa þegar þeir taka við bank­anum, og aðstæður til arð­greiðslna skap­ast að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið undanfarið ár