Bankasöluævintýri endurræst í miðjum heimsfaraldri

Rík­is­stjórnin stefnir að því að selja hlut í öðrum rík­is­bank­anum, Íslands­banka, fyrir lok maí 2021. Tillaga þess efnis var send frá Banka­sýslu rík­is­ins til Bjarna Bene­dikts­sonar degi áður en Alþingi fór í jóla­frí, og sam­þykkt fjórum dögum síðar.

Í byrjun febr­úar 2020 fór Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í við­tal við Morg­un­blaðið. Þar sagði hann að bráð­lega ætti að hefja sölu­ferli á fjórð­ungs­hlut í Íslands­banka og að það ætti að kom­ast í almenni­legan far­veg á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Hlut­ur­inn væri tug millj­arða króna virði og um þá eign ætti að losa.

Hann bætti um betur í auka­blaði Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem bar nafnið „Á réttri leið“ og var dreift í aldreif­ingu með Morg­un­blað­inu nokkrum dögum síðar. Þar sagði Bjarni að sala á 25 til 50 pró­sent hlut í Íslands­banka á næstu árum myndi opna á stór tæki­færi til fjár­fest­inga.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, sagði í sam­tali við Kjarnann skömmu síðar að það væri skyn­sam­legt að ráð­ast í sölu á hlut í Íslands­banka ef það er tengt við það að nota ávinn­ing­inn í inn­viða­fjár­fest­ing­ar. Þannig væri hægt að losa um eignir rík­is­ins og nýta það í þörf verk­efni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, var svo síð­astur á vagn­inn af for­mönnum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þegar hann sagð­ist í sam­tali við Frétta­blaðið að hann teldi skyn­sam­legt að setja Íslands­banka í sölu­ferli. Hann setti söl­una í sama sam­hengi og hinir for­menn­irnir, að það væri hægt að nota fjár­mun­ina sem bundnir væru í eign­inni í inn­viða­upp­bygg­ingu.

Málamiðlun náðist milli stjórnarflokka

Í lok febr­úar 2020 var málið greini­lega komið á rek­spöl. Mála­miðlun hafði náðst milli stjórn­ar­flokk­anna sem gerði það kleift að hefja sölu­ferlið á Íslands­banka í nán­ustu fram­tíð. Í henni fólst að gerð var grund­vall­ar­breyti á eig­enda­stefnu varð­andi Lands­bank­ann.

Í eldri eig­enda­stefn­unni, sem var frá árinu 2017, sagði að stefnt yrði að því að ríkið ætti veru­legan eign­ar­hlut, 34 til 40 pró­sent, í bank­anum til lang­frama. Að öðru leyti yrðu eign­ar­hlutir rík­is­ins seldir „á næstu árum þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi“ sam­hliða því að hann yrði skráður á hluta­bréfa­markað.

Í nýju eig­enda­stefn­unni var búið að taka út það stærð­ar­mark sem æski­legt sé að ríkið ætti í Lands­bank­anum. Þess í stað segir að ríkið eigi að eiga „veru­legan hlut“ í bank­anum til lang­frama.

Búið var að taka út áform um að selja eign­ar­hlut­inn strax og hag­felld og æski­leg skil­yrði yrðu fyrir hendi og áform um að skrá hann á hluta­bréfa­markað. Þess í stað var búið að bæta því inn í eig­enda­stefn­una að ákvörðun um sölu Lands­bank­ans yrði ekki tekin fyrr en að sölu­ferli Íslands­banka sé lokið.

Mark­miðið með eign­ar­haldi rík­is­ins á þessum stærsta banka lands­ins hafði líka breyst. Í gömlu eig­enda­stefn­unni sagði að ástæða þessa væri „til að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerf­inu og tryggja nauð­syn­lega inn­viði þess.“

Engin breyt­ing var hins vegar gerð á mark­miðum rík­is­ins hvað varðar eign­ar­hald á hinum bank­anum sem ríkið á, Íslands­banka. Enn er stefnt að því að selja bank­ann „þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi.“

Banki ekki seldur í faraldri...eða hvað?

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn virt­ist ætla að leiða til þess að þessi áform yrðu fyrir bí. Það efna­hags­á­stand sem skap­að­ist vegna hans gerði það að verkum að bankar áttu að verða gerðir að lyk­il­breytu í áformum stjórn­valda hér­lendis til að takast á við aðstæð­urnar og koma fjár­munum til heim­ila og fyr­ir­tækja.

Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Kópavogi.
Höf­uð­stöðvar Íslands­banka í Kópavogi.

Á skömmum tíma var bindi­skylda lækkuð niður í núll og sveiflu­jöfn­un­ar­auki sem lagð­ist á eigið fé bank­anna afnumin. Aflétt­ing kröfu um ­sveiflu­jöfn­un­ar­auka átti að auð­velda banka­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­örðum króna.

Þá voru sam­þykkt lög sem áttu að gera Seðla­banka Íslands kleift að veita ábyrgðir fyrir lánum til fyr­ir­tækja upp á tugi millj­arða króna.

Þá var, að minnsta kosti um tíma, fyr­ir­liggj­andi að stjórn­völd og Seðla­banki Íslands höfðu sent skýr skila­boð til við­skipta­banka sem hafa nú veru­lega aukið svig­rúm til að ráð­stafa eigin fé sínu að það svig­rúm ætti ekki undir neinum kring­um­stæðum að not­ast til að greiða út arð eða kaupa upp eigin bréf banka.

Þvert á móti átti nýta eig­in­fjár­stuðn­ing­inn sem stafar af aðgerðum stjórn­valda til að fjár­magna fyr­ir­tæki og heim­ili, ekki í þágu hlut­hafa bank­anna.

Þegar allt þetta var sam­an­dregið, og að fyr­ir­liggj­andi er versta kreppa sem Ísland og lík­ast til heim­ur­inn hefur staðið frammi fyrir blasti við átti að vera ljóst að banki yrði ekki seldur úr rík­i­s­eigu á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Bankarnir lána ekki atvinnulífinu heldur fyllast af peningum

Svo fóru hlut­irnir öðru­vísi en til stóð. Bank­arnir lán­uðu vissu­lega út tölu­vert af fé, en aðal­lega í hús­næð­is­lán til þeirra sem voru þegar vel settir og áttu eignir. Lán til atvinnu­fyr­ir­tækja námu nettó alls 809 millj­ónum króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins. Til sam­an­burðar lán­uðu bank­arnir tæp­lega 209 millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja, eða 258falt það sem þeir hafa lánað það sem af er ári.

Fyrir vikið eru við­skipta­bank­arnir allir troð­fullir af pen­ingum sem þeir segj­ast vera í erf­ið­leikum með að ávaxta. Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, sagði til að mynda í til­kynn­ingu vegna upp­gjörs þriðja árs­fjórð­ungs beint út að bank­inn væri með of mikið eigið fé.

Þann 17. des­em­ber birti svo Banka­sýsla rík­is­ins minn­is­blað sem inni­hélt til­lögu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um sölu á hluta rík­is­ins í Íslands­banka.

Skyndi­lega, degi áður en að þingi var slitið, var einka­væð­ing rík­is­banka á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili komin aftur á dag­skrá.

Tillaga um söluferli samþykkt á meðan að Alþingi er í fríi

Í minn­is­blað­inu segir að ekki sé talið rétt að ákveða á þessum tíma­punkti hversu stóran hlut í bank­anum eigi að bjóða til sölu í útboð­inu, „þar sem áætluð eft­ir­spurn fjár­festa eftir hlutum í Íslands­banka, bæði varð­andi fjölda hluta og verð á hlut, muni ein­ungis liggja fyrir eftir fjár­festa­kynn­ingar undir lok sölu­ferl­is.“ Nú fól til­lagan ekki lengur í sér að hluti eign­ar­hluta rík­is­ins verði seldur hæst­bjóð­anda í beinni sölu, heldur er ein­ungis lagt til af hálfu banka­sýsl­unar að stefna að skrán­ingu eign­ar­hluta á verð­bréfa­markað hér­lendis í kjöl­far almenns útboðs.

Lagt var til að sölu­ferli bank­ans hefj­ist í jan­úar og gert er ráð fyrir því að því gæti lokið í maí.

Bjarni, og Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­mála­ráðu­neyt­inu, sendu bréf til baka á Banka­sýsl­una 21. des­em­ber þar sem til­laga hennar um að hefja sölu­með­ferð á Íslands­banka var sam­þykkt.

Bjarni sagði við Morg­un­blaðið fyrr í þessum mán­uði að gera mætti ráð fyrir að virði eign­ar­hlutar rík­is­ins í Íslands­banka væri 130 til 140 millj­arðar króna.

Það þýðir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra reiknar með því að fá minna en eina krónu fyrir hverja krónu sem Íslands­banki á í eigið fé.

Eigið fé ríkisbankans 182,5 milljarðar

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 var hagn­aður Íslands­banka af áfram­hald­andi starf­semi 3,5 millj­arðar króna. Hagnaður bank­ans hefur auk­ist þegar liðið hefur á árið, eftir að nauð­syn­legar nið­ur­færslur vegna COVID-19 höfðu verið teknar inn í reikn­ing hans, og var hagn­aður Íslands­banka á þriðja árs­fjórð­ungi til að mynda 3,1 millj­arður króna, eða einum millj­arði króna meiri en hann var á sama tíma í fyrra.

Íslands­banki á mikið eigið fé. Í lok sept­em­ber var það 182,5 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið þá var 22,2 pró­sent, sem er vel yfir kröfum Seðla­banka Íslands um 17 pró­sent eigið fé. Umfram eigið féð hleypur því á tugum millj­arða króna. Hluta þess væri hægt að greiða út til nýrra hlut­hafa þegar þeir taka við bank­anum, og aðstæður til arð­greiðslna skap­ast að nýju. Það gæti orðið strax á árinu 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár