Bankarnir lána fyrirtækjum landsins nánast ekkert í miðjum heimsfaraldri

Íslenskir bankar eru fullir af pen­ingum. Þeir pen­ingar eru ekki lán­aðir út til fyr­ir­tækja. Bank­arnir segja að það sé ein­fald­lega ekki eft­ir­spurn eftir lán­unum.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Íslenska banka­kerfið lán­aði atvinnu­fyr­ir­tækjum lands­ins alls 809 millj­ónir króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins í nýjum útlánum, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum.

Til sam­an­burðar lán­uðu bank­arnir tæp­lega 209 millj­arða króna til atvinnu­fyr­ir­tækja árið 2018, eða 258falt það sem þeir hafa lánað það sem af er ári.

Í októ­ber­mán­uði voru upp­greiðslur og umfram­greiðslur atvinnu­fyr­ir­tækja 16 millj­örðum krónum umfram þá upp­hæð sem bank­arnir lán­uðu út í ný útlán og í síð­asta mán­uði voru ný útlán 19 millj­ónum krónum umfram það sem var greitt upp.

Á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins lán­uðu bank­arnir sem ein­hverju nemur til atvinnu­fyr­ir­tækja í þremur þeirra. Í mars voru 16,2 millj­arðar króna lán­aðir út nettó, í ágúst 12,5 millj­arðar króna og í sept­em­ber átta millj­arðar króna. Hina mán­uði árs­ins hafa ný útlán annað hvort verið nei­kvæð eða hverf­andi.

Bankar með of mikið eigið fé

Skortur á nýjum útlánum er ekki til­kom­inn vegna þess að bank­arnir séu ekki með fé til­tækt til að lána. Í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Arion banka fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins og kom til að mynda fram, í til­kynn­ingu frá banka­stjóra sem fylgdi með, að bank­inn væri með of mikið eigið fé. Ómögu­legt væri að ávaxta það í takt við mark­mið Arion banka.

[adspot]Á upp­gjörs­fundi með blaða­mönnum sagði banka­stjór­inn, Benedikt Gíslason, að lítil eft­ir­spurn væri eftir útlánum til fyr­ir­tækja þar sem mik­ill sam­dráttur hafi orðið í fjár­fest­ingu einka­geirans. Jafn­framt sagði Bene­dikt bank­ann vinna með öðrum aðil­um, einkum stofn­ana­fjár­fest­um, þegar kæmi að fjár­mögnun fyr­ir­tækja enda væru þeir oft betur til þess fallnir að fjár­magna stærri fyr­ir­tæki.

Hratt upp en enn hraðar niður

Mik­ill vöxtur var í útlánum inn­láns­stofn­ana lands­ins á upp­gangs­tímum síð­ustu ára. Um er að ræða, að uppi­stöðu, útlán sem Lands­bank­inn, Íslands­banki, Arion banki og Kvika banki veita.

Árið 2013 voru ný veitt útlán til atvinnu­fyr­ir­tækja 79,2 millj­arðar króna. Ári síðar voru þeir 30 pró­sent meiri og á árinu 2015 juk­ust þau um 52 pró­sent. Ári síðar var heild­ar­um­fang nýrra útlána komið í 196,5 millj­arða króna og hélst á því róli út árið 2018, þegar það topp­aði í 208,7 millj­örðum króna.

Síðan þá hefur verið umtals­verður sam­dráttur í nýjum útlán­um. Í fyrra voru þau 107,8 millj­arðar króna og nán­ast helm­ing­uð­ust á milli ára.

Í ár hefur síðan orðið eðl­is­breyt­ing og bank­arnir greini­lega haldið að sér höndum í útlánum í þeirri heimskreppu sem nú gengur yfir.

Aðgerðir Seðlabankans skila litlu til fyrirtækja

Seðla­banki Íslands hefur gripið til ýmissa aðgerða vegna yfir­stand­andi ástands sem ætti að nýt­ast bönkum og við­skipta­vinum þeirra. Sveiflu­jöfn­un­ar­auki, við­bót­ar­kröfur á eigið fé fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram lög­bundnar eig­in­fjár­kröfur, var afnumin sem losar veru­lega um það eigið fé sem bank­arnir þurfa að halda á og stýri­vextir voru lækk­aðir úr 4,5 pró­sentum niður í 0,75 pró­sent, sem átti að skila miklu betri kjörum fyrir við­skipta­vini banka.

Seðla­bank­inn sagði í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu sem kom út í júní að vaxta­lækk­un­ar­ferlið hafi hins vegar „ekki skilað sér alveg eins vel á inn­láns- og útláns­vexti KMB [kerf­is­lega mik­il­vægir bankar] og sér­stak­lega hafa vextir nýrra útlána til fyr­ir­tækja lítið lækk­að.“

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans ákvað að halda sveiflu­jöfn­un­ar­auk­anum á fjár­mála­fyr­ir­tæki í núll næstu þrjá mán­uði með ákvörðun sem var birt um miðjan des­em­ber. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­getu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna.

Hættan á virð­is­rýrnun og gjald­þrotum fer vax­andi

Fjallað var áfram um þessa þróun í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands, sem kom út í lok sept­em­ber­mán­að­ar. Þar segir að sam­dráttur í inn­lendum skuldum fyr­ir­tækja bendi til þess að aðgengi fyr­ir­tækja að fjár­magni sé hugs­an­lega tor­veld­ara en áður, fyrst og fremst vegna auk­innar áhættu sem end­ur­spegl­ast í hækk­andi vaxta­á­lagi fyr­ir­tækja­út­lána bank­anna. „Efna­hags­sam­drátt­ur­inn og aukin óvissa vegna far­sótt­ar­innar hefur einnig dregið veru­lega úr eft­ir­spurn eftir lánum þar sem sam­hliða dregur bæði úr áhættu­sækni fyr­ir­tækja og fram­boði á arð­bærum fjár­fest­ing­ar­tæki­fær­um.“

[links]Seðla­bank­inn sagði þar að hann teldi að skuldir fyr­ir­tækja sem nýta sér lána­úr­ræði stjórn­valda og fjár­mála­fyr­ir­tækja muni vaxa næstu mán­uði. „Mörg fyr­ir­tæki hafa orðið fyrir miklum tekju­sam­drætti og munu fara skuld­sett­ari inn í þann efna­hags­bata sem vænta má þegar far­sóttin verður um garð geng­in. Áhætta fyr­ir­tækja vegna vaxta­breyt­inga og/eða tekju­falls eykst með auk­inni skuld­setn­ingu. Lágt vaxta­stig styður þó við skuld­sett fyr­ir­tæki að öðru óbreyttu og eykur sjálf­bærni skuld­setn­ing­ar.“

Versn­andi útlána­gæði lána­stofn­ana end­ur­spegl­ist hins vegar í breyttu áhættu­mati og vax­andi virð­is­rýrnun á öðrum árs­fjórð­ungi. Enn sem komið er hafi aðeins lít­ill hluti útlána kerf­is­lega mik­il­vægra banka til fyr­ir­tækja verið færður á stig 3 sam­kvæmt IFRS-9-­reikn­ings­skila­staðl­in­um, en við­búið sé að það breyt­ist næstu miss­eri enda hafi orðið tvö­földun á kröfu­virði útlána á stigi 2 og virð­is­rýrnun þeirra fimm­fald­ast. „Hættan á enn frek­ari virð­is­rýrnun og fjölgun gjald­þrota fer vax­and­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár