Ný könnun: Næstum tveir af hverjum þremur treysta ekki Bjarna til að selja Íslandsbanka

Tekju­lægri van­treysta fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mun frekar til að einka­væða annan rík­is­bank­ann en þeir sem eru með hærri tekjur.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Alls segj­ast 63 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun MMR treysta Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mjög eða frekar illa til að leiða einka­væð­ingu Íslands­banka. Könnunin, sem gerð var dag­anna 13-18. jan­úar, var fram­kvæmd fyrir þrýsti­hóp­inn Skilta­karl­anna. Fyrst var greint frá henni á vef Frétta­blaðs­ins.

Á móti segj­ast 23 pró­sent lands­manna treysta Bjarna frekar eða mjög vel til að leiða sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum. 14 pró­sent svar­enda sagð­ist ekki hafa afger­andi skoðun á því hvort þeir treystu for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins til verks­ins eða ekki.

Um net­könnun var að ræða og var fjöldi svar­enda 915.

[adspot]Í könn­un­inni kemur fram að því hærri sem tekjur svar­enda eru því lík­legri eru þeir til að treysta Bjarna til að leiða sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum. Þannig segj­ast 30 pró­sent þeirra sem eru með yfir eina milljón króna í heim­il­is­tekjur treysta honum í verkið en 52 pró­sent van­treysta honum í það. Hjá þeim sem eru með 400 þús­und krónur eða minna í heim­il­is­tekjur treysta ein­ungis 14 pró­sent svar­enda Bjarna en 76 pró­sent treysta honum mjög eða frekar illa.

[links]Sölu­ferlið á Íslands­banka var sett á ís í mars í fyrra en skyndi­lega end­ur­vakið 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar Banka­sýsla rík­is­ins sendi til­lögu til Bjarna þess efn­is. Sú til­laga var sam­þykkt fjórum dögum síð­ar, 21. des­em­ber.

Samhliða var sent bréf og grein­ar­gerð til Alþingis og óskað eftir umsögn fjár­laga­nefndar og efna­hags- og við­skipta­nefndar um grein­ar­gerð­ina. Nefnd­ar­menn fengu til 20. jan­ú­ar, eða einn mán­uð, til að skila þeirri umsögn. Hún þarf því að liggja fyrir á mið­viku­dag en fyrsti þing­fundur árs­ins 2021 var í dag.

Þar flutti Bjarni munn­lega skýrslu um hina vænt­an­legu sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og í kjöl­farið hófust umræður um málið. Þær standa enn yfir þetta er skrifað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár