Grundvallarbreyting gerð á eigendastefnu ríkisins gagnvart Landsbankanum

Mála­miðlun virð­ist hafa náðst milli stjórn­ar­flokk­anna sem gerir það kleift að hægt verði að hefja sölu á Íslands­banka á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Í henni felst grund­vall­ar­breyt­ing á eig­enda­stefnu varð­andi Lands­bank­ann.

Í nýrri eig­enda­stefnu íslenska rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem birt var seint á föstu­dag, er búið að gera umtals­verðar breyt­ingar á þeim mark­miðum sem ríkið hefur varð­andi eign­ar­hald á Lands­bank­anum. Í eldri eig­enda­stefn­unni, sem var frá árinu 2017, sagði að stefnt yrði að því að ríkið ætti veru­legan eign­ar­hlut, 34 til 40 pró­sent, í bank­anum til lang­frama. Að öðru leyti yrðu eign­ar­hlutir rík­is­ins seldir „á næstu árum þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi“ sam­hliða því að hann yrði skráður á hluta­bréfa­markað.

Í nýju eig­enda­stefn­unni er búið að taka út það stærð­ar­mark sem æski­legt sé að ríkið eigi í Lands­bank­anum. Þess í stað segir að ríkið eigi að eiga „veru­legan hlut“ í bank­anum til lang­frama.

Búið er að taka út áform um að selja eign­ar­hlut­inn strax og hag­felld og æski­leg skil­yrði séu fyrir hendi og áform um að skrá hann á hluta­bréfa­markað. Þess í stað er búið að bæta því inn í eig­enda­stefn­una að ákvörðun um sölu Lands­bank­ans verði ekki tekin fyrr en að sölu­ferli Íslands­banka sé lokið.

Mark­miðið með eign­ar­haldi rík­is­ins á þessum stærsta banka lands­ins hefur líka breyst. Í gömlu eig­enda­stefn­unni sagði að ástæða þessa væri „til að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerf­inu og tryggja nauð­syn­lega inn­viði þess.“

Í nýju stefn­unni segir að mark­miðið með eign­ar­hald­inu sé að „stjórn­völd hafi ráð­andi ítök í a.m.k. einni fjár­mála­stofnun sem þjón­ustar almenn­ing og fyr­ir­tæki og hefur höf­uð­stöðvar hér á landi. Þannig tryggja stjórn­völd að almenn, vönduð og traust fjár­mála­þjón­usta standi öllum til boða óháð m.a. búsetu. Mark­miðið með eign­ar­hald­inu er enn­fremur að stuðla að stöð­ug­leika í fjár­mála­kerf­inu, ásamt því að tryggja nauð­syn­lega og áreið­an­lega inn­viði þess.“

Bjarni vill hefja söluferlið á kjörtímabilinu

Engin breyt­ing er hins vegar gerð á mark­miðum rík­is­ins hvað varðar eign­ar­hald á hinum bank­anum sem það á, Íslands­banka. Enn er stefnt að því að selja bank­ann „þegar hag­felld og æski­leg skil­yrði eru fyrir hendi.“

Það blasir við að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er mjög áfram um að hefja sölu­ferli á rík­is­bönk­unum. Eftir að Hvít­­­bók um fram­­­tíð­­­ar­­­sýn fyrir fjár­­­­­mála­­­kerfið, þar sem var fjallað ítar­­­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í þeim, var birt í lok árs 2018 hefur Bjarni ítrekað tjáð sig um það opin­ber­lega að hann vilji byrja að selja, að minnsta kosti hluta, af Íslands­banka áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur. Í jan­úar í fyrra ræddi hann einnig um mögu­lega sölu á stórum hlut í Lands­bank­anum, líkt og gert var ráð fyrir í þágild­andi eig­enda­stefnu og fjár­lögum.

Málið komst hins vegar ekki á almenni­legt skrið á þeim tíma, meðal ann­ars vegna þess að það var margt annað í efna­hags­líf­inu sem kall­aði á athygli ráða­manna, líkt og gjald­þrot WOW air, loðnu­brestur og erf­ið­leikar Icelandair vegna kyrr­setn­ingar á Boeing 737 Max vélum sem fyr­ir­tækið hafði fest kaup á. Því sköp­uð­ust ekki hag­felld né æski­leg skil­yrði til að hefja sölu­ferli.

Það verður heldur ekki gert nema að til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Stjórn­ar­for­maður hennar er Lárus Blöndal. Hann var líka for­maður þess hóps sem vann Hvít­bók­ina um fjár­mála­kerfið og hefur verið trún­aðar- og stuðn­ings­maður Bjarna Bene­dikts­sonar um ára­bil, enda skip­aður í störfin af honum.

Það er enda fjallað um eign­ar­hald rík­is­ins á bönkum í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og því fyr­ir­liggj­andi að þeir þrír ólíku flokkar sem mynda rík­is­stjórn­ina hafa rætt málið þegar hún var mynduð. Þar segir að eign­­ar­hald rík­­is­ins á fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum sé „það umfangs­­mesta í Evr­­ópu og vill rík­­is­­stjórnin leita leiða til að draga úr því.“ Meðvitað var hins vegar ekki farið í nán­ari skil­grein­ingar á hvernig það mark­mið ætti að nást.

Hreyfing á málið í fyrrahaust

Greint var frá því í Mark­aðn­­um, fylg­i­­riti Frétta­­blaðs­ins um efna­hags­­mál og við­­skipti, í byrjun sept­­em­ber­mán­aðar í fyrra að í nýlegu gerðu minn­is­­­­blaði Banka­­­­sýsl­unnar væri lagt til að annað hvort ætti að selja að minnsta kosti 25 pró­­­­­sent hlut í Íslands­­­­­­­­­banka í hluta­fjár­­­­­út­­­­­­­­­boði og skrá þau bréf tví­­­­­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­­­­­anum með upp­­­­­­­­­boðs­­­­­leið þar sem önnur fjár­­­­­­­­­mála­­­­­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­­­­­­­­­boð í hann.

Banka­­­sýslan hefur ekki lagt það minn­is­­­blað enn fram opin­ber­­­lega.

Á svip­uðum tíma tók Bjarni að tala aftur um sölu á rík­is­bönk­unum, og nú í sam­hengi við fjár­mögnun á sam­göngusátt­mála.

Á svip­uðum tíma tjáði Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sig um sölu á rík­is­bönk­unum í útvarps­þætt­inum Sprengisandi. Lilja situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins ásamt Bjarna og Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Fyr­ir­komu­lagið er um margt óvenju­legt, enda Lilja ekki for­maður síns flokks. Hún býr hins vegar yfir mik­illi reynslu af því að starfa við efna­hags­mál, bæði í Seðla­banka Íslands og á alþjóða­vett­vangi.

Lilja Alfreðsdóttir situr í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins.
Lilja Alfreðs­dóttir situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins.

Í þætt­inum sagði Lilja að það væri for­senda fyrir sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í bönk­unum að eig­enda­stefna rík­is­ins yrði upp­færð. Aðkoma og hlut­verk rík­is­ins þyrfti að liggja skýr fyrir. Þá sé for­senda að upp­færa eig­enda­stefnu rík­is­ins. „Við höfum talað um að Lands­bank­inn verði í eigu rík­is­sjóðs en í núver­andi eig­enda­stefnu er það ekki gefið til kynna[...]Allt sem við gerum með þetta þarf að vera gert í opnu og gagn­sæju ferli og mögu­legir kaup­endur, hvort sem það er almenn­ingar eða aðrir aðilar, það þarf að vera alveg skýrt hvert hlut­verk rík­is­sjóðs er á þessum mark­aði.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á svip­uðum tíma við RÚV: „Það hefur ekki verið mín sýn eða rík­is­stjórn­ar­innar að halda eign­ar­haldi yfir Íslands­banka, þar sem við höfum sagt er að það skipti miklu máli að Lands­bank­inn, að þar verði ríkið áfram leið­andi fjár­festir.”

Þær breyt­ingar sem nú hafa verið gerðar á eig­enda­stefn­unni eru að öllu leyti í takti við það sem Lilja kall­aði eftir í ofan­greindu við­tali og eru að miklu leyti í takti við það sem for­sæt­is­ráð­herra sagði um svipað leyti.

Eigendur með langtímasjónarmið að leiðarljósi

Lilja hefur einnig talað með þeim hætti í gegnum tíð­ina að það sé ekki ein­ungis mik­il­vægt að selja banka, heldur skipti máli hverjum sé selt, í ljósi þess hversu kerf­is­lega mik­il­vægir þrír stærstu bank­arnir eru hér­lendis. Það þurfi að horfa til þess að kaup­endur séu til staðar sem hafi þekk­ingu á rekstri fjár­mála­fyr­ir­tækja, eigi fjár­muni til að kaupa þau og séu með lang­tíma­mark­mið að leið­ar­ljósi í fjár­fest­ing­unni, ekki skamm­tíma hagn­að­ar­von. Þessi skoðun hennar var til að mynda mjög sýni­leg þegar umræða var um breyt­ingar á eign­ar­haldi á Arion banka á árinu 2017, þegar erlendir skamm­tíma­sjóðir, oft kall­aðir vog­un­ar­sjóðir, voru að ger­ast virkir eig­endur í bank­anum.

Sú afstaða Lilju er mjög í takt við umfjöll­unar Hvít­bók­ar­innar um eign­ar­hald á banka­kerf­inu. Þar sagði: „Heil­brigt eign­ar­hald er mik­il­væg for­senda þess að banka­kerfi hald­ist traust um langa fram­tíð. Í því felst að eig­endur banka séu traust­ir, hafi umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu á starf­semi banka og fjár­hags­lega burði til að standa á bak við bank­ann þegar á móti blæs. Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.“

Byrjað að undirbúa jarðveginn fyrir söluferli

Fyrir liggur þó að nú er upp­taktur í sölu­ferl­inu og upp­færða eig­enda­stefnan, sem breytir mark­miðum vegna eign­ar­halds á Lands­bank­anum í grund­vall­ar­at­riðum, er stórt skref í því.

Bjarni hafði opnað aftur á að það myndi fara að hefj­ast í við­tali við Morg­un­blaðið í byrjun febr­úar. Þar sagði hann að nú þegar að hag­­kerfið væri að kólna væri það kostur að losa um eign­­ar­hald rík­­is­ins í bönkum og nota fjár­­mun­ina sem fást út úr slíkri sölu í inn­­viða­fjár­­­fest­ing­­ar. Ólík­legt væri, miðað við verð­mat mark­að­ar­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum að fullt bók­fært verð, sem er um 180 millj­arðar króna, feng­ist fyrir hlut í Íslands­banka. Það væri engu að síður rétt að losa um eign­­ar­haldið í skrefum og 25 pró­­sent hlutur í bank­­anum væri tuga millj­­arða króna virði.

Í auka­blaði Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem bar nafnið „Á réttri leið“ og var dreift í aldreif­ingu með Morg­un­blað­inu skömmu síðar, sagði Bjarni að sala á 25 til 50 pró­sent hlut í Íslands­banka á næstu árum myndi opna á stór tæki­færi til fjár­fest­inga. „Á und­an­förnum árum hefur mikið verið rætt um gjald­töku til að fjár­magna sam­göngu­bætur og það er skilj­an­legt, vegna þess að við þurfum að hraða fram­kvæmd­um, en nær­tæk­ari leið er að losa um þessa verð­mætu eign og afmarka gjald­töku í fram­tíð­inni við stærri fram­kvæmdir á borð við Sunda­braut, Hval­fjarð­ar­göng og aðra ganga­gerð. Núna er góður tími til að huga að átaki í þessum efn­um, efna­hags­lífið er til­búið fyrir opin­berar fram­kvæmd­ir.“

Málamiðlun náðst milli stjórnarflokkanna

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í kjöl­farið í sam­tali við Kjarnann að það væri skyn­sam­legt að ráð­ast í sölu á hlut í Íslands­banka ef það væri tengt við það að nota ávinn­ing­inn í inn­viða­fjár­fest­ing­ar. Þannig væri hægt að losa um eignir rík­is­ins og nýta fjár­muni í þörf verk­efni. Hún stað­festi að vænt sölu­ferli Íslands­banka hefði þá þegar verið rætt á vett­vangi ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, en í henni sitja auk Katrínar þau Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Katrín sagð­ist leggja áherslu á að sölu­ferlið verði að vera opið og gagn­sætt. Það væri hins vegar ekki rík­is­ins að ákveða hverjir kaupi ef til dæmis 25 pró­sent hlutur í bank­anum yrði seldur í gegnum skrán­ingu á hluta­bréfa­mark­að. „Það skiptir máli að það sé jafn­ræði á milli þeirra sem hafa áhuga.“

Vert er þó að rifja upp að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur áður tjáð sig um að henni hugn­ist ekki að hluti af eign rík­is­ins í Lands­bank­anum verði seldur, líkt og fyrri eig­enda­stefna gerði ráð fyrir. Í fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í febr­úar 2016 spurði hún Bjarna út í slíkt áform og sagði þá að þau deildu „ekki endi­lega skoðun á því hvort æski­legt sé að selja hlut í Lands­bank­anum. Ég hef talað fyrir því að eðli­legt sé að við skoðum aðra hugsun inn í fjár­mála­kerfið. Ég hefði til dæmis viljað sjá miklu lengra gengið í end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins og að lokið yrði við aðskilnað við­skipta- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi á meðan við getum sagt að ríkið sé í þess­ari stöðu að halda utan um þá eign­ar­hluti sem ríkið heldur utan um núna.“

Mála­miðlun virð­ist hafa náðst um sölu­ferli bank­anna. Hún opin­ber­ast í nýju eig­enda­stefn­unni og ber þess merki að þeir þrír stjórn­mála­menn sem bera að uppi­stöðu ábyrgð á því að setja ferlið af stað, hafi allir gefið eitt­hvað eftir af afstöðu sinni. Sú mála­miðlun mun koma hreyf­ingu á málið.

Í sam­tali við mbl.is um liðna helgi, eftir að eig­enda­stefnan var birt, sagði Bjarni enda að hann vænti þess að rík­is­stjórnin gæti tekið „mik­il­væg skref“ til að losa um eign­ar­hluti í Íslands­banka á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár