Hluthafar Arion banka gætu tekið út tugi milljarða úr bankanum í ár

Áfram­hald­andi breytt fjár­mögnun, sam­dráttur í útlánum, stór­tæk upp­kaup á eigin bréfum og arð­greiðslur sem eru langt umfram hagnað eru allt leiðir sem er verið að full­nýta til að auka getu Arion banka til að greiða út eigið fé bank­ans í vasa hlut­hafa.

Eigið fé er í raun skuld bank­ans við eig­endur og er dýrasta fjár­mögnun bank­ans. Því skiptir miklu að hafa ekki meira eigin fé en þörf krefur. End­ur­kaupa­á­ætlun var hrint í fram­kvæmd síðla árs 2019 og arður greiddur út á árinu. Jafn­framt stendur til að leggja fyrir aðal­fund bank­ans í mars n.k. til­lögu um frek­ari útgreiðslu arðs. Lækkun eig­in­fjár er mik­il­vægur liður í að bank­inn nái mark­miðum sínum um 10% arð­semi eig­in­fjár enda eru vaxt­ar­tæki­færi sem bjóða ásætt­an­lega arð­semi tak­mörkuð í lækk­andi vaxtaum­hverfi.“

Þetta sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna birt­ingar á árs­reikn­ingi bank­ans fyrir árið 2019. Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­arð króna í fyrra og arð­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­sent. Samt sem áður var lögð til tíu millj­arða króna arð­greiðsla til hlut­hafa vegna síð­asta árs. Það stendur til að greiða út nífaldan hagnað í arð.

Ekkert í þessum áformum kemur á óvart. Það hefur legið fyrir frá aðdrag­anda skrán­ingar Arion banka á markað á fyrri hluta árs­ins 2018 að mark­mið ráð­andi hlut­hafa, sem eru að uppi­stöðu erlendir skamm­tíma­sjóðir, sé að greiða út eins mikið af eigin fé bank­ans og hægt er á sem skemmstum tíma. Þessir sjóðir eru stærstu eig­endur Kaup­þings ehf. og keyptu þorra þeirra hluta sem það félag seldu í Arion banka árið 2018 af sjálfum sér.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Kvika vann fyrir Kaupþing á þessum tíma kom fram að svig­rúm væri til að greiða út allt að 80 millj­arða króna, eða þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka, á til­tölu­lega skömmum tíma með ýmsum hætti. Það væri hægt að gera í gegnum breyt­ingu á fjár­mögnun bank­ans, með því að draga úr útlánum hans, með því að minnka kostnað í gegnum upp­sagnir á starfs­fólki, með því að hrinda í gang umfangs­mik­illi end­ur­kaupa­á­ætlun á hluta­bréfum í bank­anum og svo auð­vitað í gegnum arð­greiðslur.

Þá átti að selja und­ir­liggj­andi eignir sem væru ekki hluti af kjarna­starf­semi Arion banka. Var þar helst horft til greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Valitor og United Silicon, kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík sem bank­inn sat uppi með eftir að starf­semi hennar var stöðvuð og fyrri eig­andi fór í þrot.

Útlán dragast saman um tugi milljarða króna

Flest í ofan­greindri leik­á­ætlun hefur gengið eftir. Eigið fé Arion banka hefur lækkað úr 225,7 millj­örðum króna í 190 millj­arða króna frá lokum árs 2017 og fram til síð­ust ára­móta, eða um tæpa 36 millj­arða króna.

Til við­bótar telja grein­ing­ar­að­ilar að bank­inn geti búið þannig um hnút­anna að það losni um tugi millj­arða króna til útgreiðslu þegar árið 2020 er á enda.

Til að ná þessu mark­miði þarf Arion banki í fyrsta lagi að halda áfram að minnka útlán sín. Útlán Arion banka dróg­ust saman um 7,2 pró­sent í fyrra, eða um tæpa 60 millj­arða króna. Þar skipti mestu máli sala á 48 millj­arða króna íbúða­lána­safni til Íbúða­lána­sjóðs í októ­ber 2019 og ákvörðun bank­ans um að „auka áherslu á arð­semi útlána til fyr­ir­tækja“, sem þýðir að vextir lána voru hækk­aðir þar sem mögu­leiki var.

Afleið­ingin af þeim hækk­unum varð fyr­ir­sjá­an­lega sú að upp­greiðslur juk­ust. Við­skipta­vin­irnir sættu sig ekki við vaxta­hækk­un­ina og færðu lána­við­skipti sín annað. Í raun gat Arion banki ekki tapað á þess­ari ákvörðun. Annað hvort fékk bank­inn meiri vaxta­tekjur, sem er í sam­ræmi við mark­mið hans um að auka vaxta­mun, eða stórir við­skipta­vinir pökk­uðu saman og fóru annað, sem minnk­aði útlána­safn bank­ans, í sam­ræmi við annað mark­mið bank­ans.

Þessi þróun mun svo halda hratt áfram á þessu ári. Í nýlegri fjár­festa­kynn­ingu, sem aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka kynnti á mark­aðs­degi hans í London 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, kom fram að bank­inn ætli sér að minnka fyr­ir­tækja­út­lán sín um 20 pró­sent til við­bótar fyrir árs­lok 2020. Áhersla Arion banka verður þá á við­skipta­vini sem þurfa á bil­inu 500 til 10 millj­arða króna fjár­mögnun. Stærri kúnnum verði beint í skulda­bréfa­út­boð þar sem Arion banki hyggst verða milli­liður og taka þókn­anir fyrir, en lánin sjálf verða ekki hluti af efna­hags­reikn­ingi bank­ans.

Minnkandi útlán og lægri eiginfjárkrafa

Í afkomu­spá sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans vann um upp­gjör Arion banka í aðdrag­anda þess er því spáð að arð­geiðslu­bank­ans gæti orðið 50 millj­arðar króna á næstu tólf mán­uðum. Til þess að svo verði þarf ýmis­legt að ger­ast.

Gangi áform Arion banka um að draga úr fyr­ir­tækja­lánum um 20 pró­sent á árinu eftir mun slík minnkun á lána­bók til fyr­ir­tækja þýða að þau drag­ist saman um 80 millj­arða króna. Það ætti að losa um 15 millj­arða króna af eigin fé til að greiða út til hlut­hafa.

Benedikt Gíslason var ráðinn bankastjóri Arion banka í fyrra. Áður hafði hann setið í stjórn Kaupþings.
Benedikt Gíslason var ráð­inn banka­stjóri Arion banka í fyrra. Áður hafði hann setið í stjórn Kaup­þings.

Eig­in­fjár­krafa á Arion baka stendur nú í 21,2 pró­sentum, að teknu til­liti til nýlegrar hækk­unar á sveiflu­jöfn­unar- og stjórn­enda­auka. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans er nú 24 pró­sent og umfram eigið fé því vel á annan tug millj­arða króna.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans telur að frek­ari sala á íbúða­lánum Arion banka til Íbúða­lána­sjóðs geti losað um 3,5 millj­arða króna í eigið fé og frek­ari útgáfa af víkj­andi bréfum geti gefið um 22 millj­arða króna í arð­greiðslur, sam­kvæmt grein­ing­unni.

Í til­kynn­ingu vegna birt­ingu á árs­reikn­ingi Arion banka fyrir árið 2019 kom fram að bank­inn hefði að und­an­förnu „tekið mik­il­væg skref í átt að eðli­legri sam­setn­ingu eig­in­fjár og víkj­andi lán­töku í takt við stefnu bank­ans í þeim efnum“.

Arður og uppkaup á eigin bréfum

Í apríl 2019 var hlutafé Arion banka lækkað um 186 millj­ónir króna að nafn­virði með því að eyða eigin hlutum bank­ans. Hlutafé Arion banka er eftir lækk­un­ina 1.814 millj­ónir króna að nafn­virði.

Á árinu 2019 hækk­uðu víkj­andi lán í eig­in­fjár­þætti 2 um 13,5 millj­arða króna með útgáfu nýrra skulda­bréfa og arð­greiðslur og kaup á eigin bréfum námu sam­tals 12,4 millj­örðum króna á árinu.

Í sept­em­ber 2019 heim­il­aði stjórn Arion banka stjórn­endum hans að setja af stað end­ur­kaupa­á­ætlun á eigin hluta­bréfum í kaup­höllum á Íslandi og í Svíþjóð. Heim­ildin gaf leyfi til að kaupa 3,25 pró­sent af útgefnu hlutafé fyrir allt að 4,5 millj­arða króna. Frekari heim­ild var svo gefin í jan­úar 2020 til að kaupa eigin bréf fyrir allt að 3,5 millj­arða króna og er ætl­unin að Arion banki nýti hana alla fram að aðal­fundi í næsta mán­uði. Þá verður vænt­an­lega lögð fram ný áætlun um upp­kaup á eigin bréfum til að skila enn meiri pen­ingum til hlut­hafa bank­ans.

Líkt og áður sagði leggur Arion banki til að tíu millj­arðar króna verði greiddir út í arð vegna síð­asta árs, þrátt fyrir að hagn­aður bank­ans hafi ein­ungis verið 1,1 millj­arður króna í fyrra. Af þeirri arð­greiðslu fara tæpir 2,4 millj­arðar króna til stærsta eig­and­ans, fjár­fest­inga­sjóð­ar­ins Taconic Capital, og sjóður sem teng­ist Och Ziff Capital Mana­gement, getur átt von á því að fá tæpan millj­arð króna. Sjóð­ur­inn Landsdowne Partners fær 424 millj­ónir króna og sjóður í stýr­ingu hjá Goldman Sachs fær 372 millj­ónir króna. Ekkert liggur fyrir um hverjir eru end­an­legir eig­endur þess­arra erlendu skamm­tíma­sjóða sem voru áður á meðal kröfu­hafa Kaup­þings, en hafa frá árinu 2018 verið stærstu eig­endur Arion banka, eftir að hafa keypt bank­ann af sjálfum sér. Alls eiga slíkir sjóðir sam­an­lagt að minnsta kosti tæp­lega 44 pró­sent í Arion banka, sam­kvæmt lista yfir 20 stærstu hlut­hafa bank­ans.

Þeir inn­lendu aðilar sem fá hæstu arð­greiðsl­urnar eru Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem fær tæpar 900 millj­ónir króna, og stærsti einka­fjár­festir­inn í bank­anum, Stoðir (sem hét einu sinni FL Group), sem fá tæpan hálfan millj­arð króna í krafti 4,96 pró­sent eign­ar­hlutar síns í Arion banka. Við þessa tölu bæt­ast síðan áður­nefnd end­ur­kaup á bréfum fyrir allt að átta millj­arða króna frá sept­em­ber síð­ast­liðnum og fram að aðal­fundi Arion banka í mars næst­kom­andi.

Erfiðar eignir til sölu

Þá er ótalið að Arion banki er með nokkrar eignir sem eru skil­greindar til sölu. Þar er um að ræða Valitor, United Silicon og TravelCo, félags sem stofnað var um nokkrar ferða­skrif­stofur eftir gjald­þrot Primera Air. Virði þess­ara eigna hríð­féll í verði á síð­asta ári og erf­ið­lega hefur gengið að selja þær.

Bókfært virði stærstu eign­ar­innar, Valitor, lækk­aði úr 15,8 millj­örðum króna í 6,5 millj­arða króna í fyrra, eða um 9,3 millj­arða króna. Rekstr­ar­erf­ið­leikar Valitor hafa enda verið miklir og rekstr­ar­tap fyr­ir­tæk­is­ins á tveimur árum var 11,2 millj­arðar króna, þar af 9,9 millj­arðar króna í fyrra. Ráðist var í umfangs­miklar skipu­lags­breyt­ingar hjá félag­inu nýverið þar sem tugum starfs­manna var sagt upp og stjórn­endum fækkað umtals­vert.

United Silicon verk­smiðjan í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt frá því um haustið 2017 og áform Arion banka, sem tók yfir verk­smiðj­una í jan­úar 2018 sem helsti lán­ar­drott­inn fyrri rekstr­ar­að­ila, um að selja hana hafa gengið illa. Enn hefur ekki tek­ist að ganga frá helstu leyfum fyrir breyt­ingum á verk­smiðj­unni né sam­komu­lagi við Reykja­nesbæ um að breyta deiliskipu­lagi svo hægt verði að ráð­ast í þær. Auk þess hafa mark­aðir fyrir þá vöru sem verk­smiðjan á að fram­leiða, kís­il­málm, verið erf­iðir vegna lækk­andi verðs. Aðrir fram­leið­endur hafa verið að draga úr fram­leiðslu og loka verk­smiðjum. Því er afar ólík­legt að hægt sé að selja verk­smiðj­una í Helguvík, að minnsta kosti til skamms tíma. Verð­mið­inn á henni lækk­aði enda um 4,2 millj­arða króna á síð­ustu níu mán­uðum árs­ins 2019. Nú metur Arion banki hana á 2,7 millj­arða króna. Það er ansi lág tala í ljósi þess að áætlur kostn­aður við bygg­ingu hennar var um 22 millj­arðar króna.


TravelCo, sem rekur ferða­skrif­stofur á Norð­ur­löndum og á Íslandi, gekk heldur ekki vel í fyrra. Neikvæð rekstar­á­hrif vegna félags­ins á Arion banka námu einum millj­arði króna á árinu 2019. Í árs­lok var bók­fært virði TravelCo um 2,1 millj­arðar króna.

Takist Arion banka að selja allar ofan­greindar eignir, sem allar eru skil­greindar til sölu í bókum bank­ans, og fá fyrir þær bók­fært virði þá losnar um 11,3 millj­arða króna til við­bótar sem hægt yrði að greiða út til hlut­hafa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár