Í byrjun árs 2018 var íslenskur bankamarkaður enn í sama móti og hann hafði verið þorra þess tíma sem liðinn var frá því að nýir bankar voru búnir til úr hræjunum af þeim sem féllu með látum í hruninu haustið 2008. Stóru breytingarnar á landslaginu sem átt höfðu sér stað voru annars vegar þær að eignarhald á Íslandsbanka færðist frá kröfuhöfum sem gátu ekkert gert með bankann vegna skilyrði stjórnvalda og til íslenska ríkisins. Hins vegar hafði Kvika banki orðið til sem lítill einkabanki með röð sameininga smærri fjármálafyrirtækja.
Enginn banki var hins vegar skráður á markað á þessum tíma og einu einkafjárfestarnir sem áttu hluti í stórum viðskiptabanka voru fyrrverandi kröfuhafar Kaupþings, sem áttu 87 prósent í Arion banka, bæði beint og óbeint, á móti 13 prósent hlut íslenska ríkisins.
Þetta breyttist allt í fyrra. Og þær breytingar hafa leitt af sér mikla uppstokkun það sem af er þessu ári.
Reynt við lífeyrissjóði
Í byrjun síðasta árs var nokkrum lífeyrissjóðum boðið upp að kaupa allt að fimm prósent hlut í Arion banka. Tilboðið gerði Kvika banki sem hafði verið ráðinn sem ráðgjafi helsta eiganda bankans, Kaupþings, og hafði það hlutverk að reyna að hrinda af stað eigendabreytingum.
Í kynningu Kviku banka á Arion banka kom fram að allt of mikið af peningum væru inni í honum. Kvika banki mat stöðuna þannig að svigrúm væri til að greiða yfir 80 milljarða króna út úr bankanum m.a. með arðgreiðslum, lækkun á hlutafé og útgáfu á víkjandi skuldabréfum. Þetta var um þriðjungur alls eigin fjár Arion banka.
Í einföldu máli var hægt að „tappa af“ eigin fénu gríðarlega fjármuni og greiða þá út til hluthafa.
Lífeyrissjóðirnir sögðu þrátt fyrir þessi gylliboð, hver á fætur öðrum, nei við tilboðinu sem sett var fyrir framan þá.
Síðdegis þann 13. febrúar 2018 ákvað Kaupþing þess í stað að virkja kauprétt sem félagið átti á 13 prósent hlut ríkisins á 23,4 milljarða króna. Um þann kauprétt hafði verið samið í uppgjöri milli íslenska ríkisins og kröfuhafa föllnu bankanna á sínum tíma.
Ein helsta ástæða þess að vogunarsjóðirnir sem áttu, og eiga, Kaupþing, vildu kaupa hlut ríkisins var, samkvæmt heimildum Kjarnans, að losna við fulltrúa Bankasýslu ríkisins, Kirstínu Þ. Flygering, úr stjórn Arion banka áður en að ráðist yrði í skráningu bankans á markað og frekari breytingar. Þær breytingar sem fyrirhugaðar voru snéru bæði að eignarhaldi, umfangi og fjármögnun bankans.
Breytingar á eignarhaldi
Á þessum tíma áttu fjórir aðilar: vogunarsjóðirnir Taconic Capital, Och-Ziff Capital Management, Attestor Capital og fjárfestingabankinn Goldman Sachs samtals 29,18 prósent hlut í Arion banka sem þeir höfðu keypt af Kaupþingi á 48,8 milljarða króna í mars 2017. Þessir fjórir aðilar áttu á þeim tíma ⅔ af öllu hlutafé í Kaupþingi og því voru þeir í raun að kaupa hlutinn af sjálfum sér.
Attestor Capital og Goldman Sachs bættu síðan við sig 2,8 prósenta hlut í febrúar 2018 auk þess sem 2,54 prósent hlutur var seldur til 20 sjóða í stýringu fjögurra af stærstu sjóðsstýringarfyrirtækjum Íslands: Stefnis, Íslandssjóða, Landsbréfa og Júpíter.
15. febrúar var samþykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 prósent hlut í sjálfum sér af Kaupþingi, stærsta eiganda bankans. Um var að kaup á eigin bréfum í samræmi við ákvörðun hluthafafundar. Til viðbótar var greidd arðgreiðsla upp á 7,9 milljarða króna.
Á mjög stuttum tíma – nokkrum vikum – höfðu átt sér stað mestu breytingar í eigendahópi bankans frá því að hann var stofnaður.
Fyrstur á markað
Um miðjan maí 2018 var tilkynnt að Arion banki yrði fyrsti íslenski bankinn sem yrði skráður á markað frá bankahruni. Um tvískráningu yrði að ræða, á Íslandi og í Svíþjóð. Samhliða hófst vinna við útboð á hlut af því sem Kaupþing átti í bankanum.
Í tilkynningunni kom fram að markmið Arion banka yrði að vera með arðsemi eigin fjár sem væri yfir tíu prósent, en hún hafði verið einungis 3,6 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins 2018. Þessu markmiði átti að ná með því að breyta fjármögnun bankans þannig að umtalsvert eigið fé yrði greitt út og að víkjandi lán yrðu sótt. Auk þess átti að minnka rekstrarkostnað, meðal annars með því að fækka starfsfólki, og að endingu var stefnt að hóflegum útlánavexti.

Arion banki var svo skráður á markað í júní 2018. Lítið var um vendingar það sem eftir lifði þess árs. Eignarhaldið var áfram að mestu hjá Kaupþingi, sem átti enn um þriðjung af öllu hlutafé um síðustu áramót, og hjá vogunarsjóðunum sem stýra Kaupþingi, sem áttu tæplega fjórðung beint.
Vert er að taka fram að ekkert liggur fyrir um hverjir eru endanlegir eigendur þessarra sjóða. Engar upplýsingar hafa verið gefnar um hvort t.d. einhverjir íslenskir fjárfestar eru á meðal þeirra sem hafa fjárfest í þeim.
Miklar breytingar á örfáum vikum
Það sem af er þessu ári, 2019, hefur allt síðan verið á fleygiferð innan Arion banka. Uppgjör bankans vegna síðasta árs olli miklum vonbrigðum. Arðsemin var einungis 3,7 prósent og hagnaður ársins 7,8 milljarðar króna. Það var 6,6 milljörðum krónum minna en árið áður.
Stór ástæða þessa var sú að þrír stórir viðskiptavinir bankans lentu í verulegum vandræðum, eða fóru beinlínis á hausinn með tilheyrandi útlánatöpum og afskriftum á kröfum.
Þar var um að ræða United Silicon, Primera Air og loks WOW air.
Frá marsbyrjun hefur orðið kúvending hjá Arion banka. Ein stærsta eign bankans er Stefnir, stærsta sjóðstýringarfyrirtæki landsins. Sem slíkt er Stefnir mjög áhrifamikill leikandi í íslensku viðskiptalífi, enda fyrirtækið með um 340 milljarða króna í stýringu. Þann 8. mars var tilkynnt að Flóki Halldórsson, sem hafði verið framkvæmdastjóri Stefnis í áratug, myndi láta af störfum.
Tólf dögum síðar fór fram aðalfundur Arion banka. Þar lét hin sænska Eva Cederbalk af störfum sem stjórnarformaður Arion banka og Brynjólfur Bjarnason kjörinn í hennar stað. 23 dögum eftir aðalfundinn, 12. apríl, var greint frá því að bankastjóraskipti væru fyrir dyrum hjá Arion banka. Höskuldur H. Ólafsson, sem hafði gegnt starfinu í níu ár, væri að hætta. Höskuldur hefur síðan neitað því ítrekað að hann hafi verið rekinn eða að þrýst hafi verið á hann um að hætta. Þrálátur orðrómur hafði þó verið í gangi undanfarna mánuði um að hann yrði ekki mikið lengur í starfinu.
Hvað sem veldur þá gerðist það á rétt rúmum mánuði að ákveðið var að skipta um framkvæmdastjóra sjóðstýringarfyrirtækis Arion banka, stjórnarformann bankans og bankastjóra hans.
Arður og lækkun á hlutafé
Eigið fé bankans var 200,9 milljarðar króna um síðustu áramót. Í samræmi við þá stefnu sem kynnt var í aðdraganda skráningu hafði bankinn þegar byrjað að sækja víkjandi lán. Það var gert bæði í nóvember í fyrra og í febrúar síðastliðnum.
Á síðasta aðalfundi var einnig ákveðið að greiða út tíu milljarða króna í arð til hluthafa og lækka hlutafé bankans um þann 9,3 prósent hlut sem Arion banki átti í sjálfum sér. Markaðsvirði þess hlutar var um 14 milljarðar króna þegar aðgerðin var framkvæmd um miðjan apríl. Við það jókst eignarhlutur annarra hluthafa og stór skref hafa verið stigin við að lækka eigið fé Arion banka, líkt og stefnt var að. Alls hafa 24 milljarðar króna verið færðir frá bankanum til hluthafa hans með þessum aðgerðum það sem af er árinu 2019.
Á þessum síðustu vikum hafa líka orðið miklar breytingar á hluthafahópi Arion banka.
Í vikunni áður en Höskuldur tilkynnti um afsögn sína ákvað Kaupþing, stærsti eigandi bankans, að selja tíu prósent hlut í honum í lokuðu útboði. Stoðir, sem einu sinni hétu FL Group, keyptu stóran hluta af því hlutafé auk þess sem Íslandsbanki keypti umtalsverðan hlut fyrir viðskiptavini sína í framvirkum samningum.
Til viðbótar við þessi tíu prósent seldi Kaupþing ehf., félag utan um eftirstandandi eignir þrotabús bankans sem féll með látum í október 2008, einnig fimm prósent hlut til vogunarsjóðsins Taconic Capital á 6,5 milljarða króna.
Næstu skref
Mikið er rætt um hvað sé framundan í Arion banka. Margir viðmælenda Kjarnans, bæði innan fjármálakerfisins og innan stjórnsýslunnar, telja að í bígerð séu tilraunir til að sameina Kviku banka við Arion banka. Þær hugrenningar eru rökstuddar með því að stutt sé á milli margra hluthafa í bönkunum tveimur.
Ef af því yrði myndi slíkur samruni minna um margt á það þegar Kaupþing og Búnaðarbanki Íslands sameinuðust skömmu eftir að ríkið seldi sig út úr þeim síðarnefnda. Þá tók í raun minni bankinn yfir þann stærri og allir helstu stjórnendur Kaupþings settust við stjórnartaumananna í nýja bankanum.
Hjá Kviku í eru margir stjórnendur sem áður störfuðu innan Kaupþings. Bankastjórinn er til að mynda Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander. Á meðal annarra má nefna Marinó Örn Tryggvason, sem er aðstoðarforstjóri Kviku, og starfaði í eignastýringu Kaupþings fyrir bankahrunið. Framkvæmdastjóri eignarstýringar Kviku er Hannes Frímann Hrólfsson, sem var á árum áður aðstoðarframkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta hjá Kaupþingi. Og svo er Frosti Reyr Rúnarsson sérfræðingur í eignastýringu hjá Kviku.
Ýmsir nefndir í bankastjórastólinn
Ef Kviku verður ekki skeytt saman við Arion banka, og stjórnendateymi hans sett yfir stærri bankann, þarf að ráða nýjan bankastjóra. Stefán Pétursson, næstráðandi Höskuldar síðustu ár, mun sinna bankastjórastarfinu tímabundið á meðan að eftirmanns verður leitað.

Samkvæmt heimildum Kjarnans eru aðallega þrjú nöfn nefnd í því samhengi. Ofarlega á blaðið er Benedikt Gíslason, sem unnið hefur mikið fyrir Kaupþing og stærstu eigendur þess félags á undanförnum árum, í kjölfar þess að hann færði sig þangað eftir að hana unnið fyrir stjórnvöld við að semja við kröfuhafa. Hann situr í stjórn Arion banka og nýtur trausts erlendu sjóðanna sem eiga þar enn stóran hlut.
Annað nafn sem er mikið nefnt er Sigurður Viðarsson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar (TM), sérstaklega í ljósi þess að stórir hluthafar í því félagi, og félagið sjálft, er nú farið að gera sig verulega gildandi í eigendahópi Arion banka í gegnum Stoðir.
Þriðja nafnið sem þykir koma til greina er Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir