Vilja selja allt að 35 prósent hlut í Íslandsbanka

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar vill selja rúm­lega þriðj­ung í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði í sumar. Hann vill setja þak á þann hlut sem hver fjár­festir getur keypt. Stjórn­ar­and­staðan er sundruð í afstöðu sinni.

Óli Björn Kárason er formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar leggur til að allt að 35 pró­sent hlutur í Íslands­banka verði seldur í fyr­ir­hug­uðu hluta­fjár­út­boði og skrán­ingu bank­ans á markað. Að lág­marki eigi að selja 25 pró­sent. Þá leggur meiri­hlut­inn til að hámark verði sett á hlut hvers til­boðs­gjafa, til dæmis 2,5 til 3,0 pró­sent, af heild­ar­hlutafé Íslands­banka.

Þetta kemur fram í umsögn sem nefndin hefur sent til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og vegna grein­ar­gerðar hans um sölu­ferlið og er dag­sett í gær, 20. jan­úar.

Meiri­hlut­inn sam­anstendur af Óla Birni Kárasyni, for­manni nefnd­ar­innar, og félögum hans í Sjálf­stæð­is­flokknum þeim Brynjari Níels­syni og Bryndísi Har­alds­dóttur. Aðrir stjórn­ar­þing­menn í nefnd­inni, þeir Willum Þór Þórsson úr Fram­sókn­ar­flokki og Ólafur Þór Gunn­ars­son úr Vinstri grænum, eru líka hluti af meiri­hlut­anum. Hinir fjórir nefnd­ar­menn­irnir, sem koma úr stjórn­ar­and­stöðu­flokkum, skila allir sér­stökum athuga­semdum hver og einn.

Í athuga­semdum meiri­hluta nefnd­ar­innar segir að ekki verði annað séð enn að til­laga Banka­sýslu rík­is­ins um sölu á hluta eignar Íslands­banka sé „var­færin og sett fram við aðstæður sem ætla m á að séu hag­stæðar til að taka fyrsta skref í að draga úr áhættu rík­is­ins af stórum eign­ar­hlutum í fjár­mála­kerf­inu.“

Skyn­sam­legt kunni að vera að stefna að skrán­ingu Íslands­banka á erlenda mark­aði í náinni fram­tíð sam­hliða frek­ari sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins. „Nauð­syn­legt er að auka áhuga erlendra fjár­festa á hluta­bréfum íslenskra fyr­ir­tækja með skrán­ingu í öðrum löndum.“

Viðreisn vill selja minna og Samfylkingin skilur ekki tímasetninguna

Í athuga­semdum Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar, þing­manns Við­reisnar, er lagt til að ein­ungis verði seldur 25 pró­sent hlutur og að 2,5 pró­senta þak verði sett á það sem hver og einn til­boðs­gjafi megi kaupa. Ekki verði tekin nein ákvörðun um frek­ari sölu hluta í bank­anum fyrr en að loknu mati á frumút­boð­inu og í fram­haldi af því nýrri til­lögu frá Banka­sýslu rík­is­ins.

[adspot]Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í athuga­semdum sínum að því hafi ekki verið svarað hvers vegna hefja á sölu á banka­hlutum á sama tíma og mikil óvissa sé í heims­far­aldri. „Afleið­ingar efna­hags­þreng­ing­anna eru enn mjög óljósar og því óábyrgt að ekki sé metið hvaða áhrif sala á bönkum við slíkar aðstæður geti haft á sölu­verð, fyr­ir­tæki í við­skiptum við bank­ann eða hvaða áhrif inn­lend fjár­fest­ing í bönkum hafi á hag­kerfið í heild.“

Ekkert land sé að selja rík­is­eignir um þessar mundir þó að staða á mörk­uðum sé víða góð og skuldir ríkja um allan heim hafi auk­ist gríð­ar­lega. Oddný segir að ef íslensk stjórn­völd telji að hag­kvæmt sé að selja vel stæðan banka sem skilað hafi góðum arði í rík­is­sjóð, til að greiða niður skuldir á nei­kvæðum raun­vöxtum, hafi þau ekki reiknað dæmið til enda. „Við und­ir­bún­ing á sölu Íslands­banka þarf að taka til­lit til stöðu efna­hags- og atvinnu­mála. Það hefur ekki verið gert. Slakur und­ir­bún­ingur og mikil pressa að hálfu stjórn­valda á sölu hluta rík­is­ins í Íslands­banka við óvissu og for­dæma­lausar sam­fé­lags­legar og efna­hags­legar aðstæður er ekki traust­vekj­andi.“

Ekki sannfærandi rök fyrir ábata og athugasemdir við ráðstöfun söluandvirðis

Smári McCarthy, full­trúi Pírata í nefnd­inni, segir í athuga­semdum sínum að þar sem hvorki fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, meiri­hluti nefnd­ar­innar, né í raun nokkur annar hafi fært sann­fær­andi rök fyrir því að ábat­inn af sölu Íslands­banka nú sé mik­ill sé eðli­legt að bíða með sölu­ferli en nýta þess í stað vorið til að meta hvaða skil­yrði þurfi að vera fyrir hendi til að ábati af slíkri aðgerð verði mik­ill.

[links]Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, myndar fjórða minni­hluta í nefnd­inni. Hann gerir fyrst og fremst athuga­semd við að Íslands­banki sé einka­væddur án þess að leit­ast hafi verið við að nýta það ein­staka tæki­færi sem sé til stað­ari til að koma á heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi á Íslandi. „Auk þess hlýtur það að vekja spurn­ingar að ráð­ast í banka­sölu í núver­andi efna­hags­á­standi. Með því er fyrst og fremst vísað til þeirrar óvissu sem er ríkj­andi.“

Sig­mundur Davíð segir að verði sala nú til þess að líf­eyr­is­sjóðir eign­ist áhrifa­mik­inn hlut í Íslands­banka verði þeir mjög umsvifa­miklir á íslenskum fjár­mála­mark­aði sem við­skipta­vinir bank­anna, keppi­nautar þeirra og áhrifa­miklir eig­endur tveggja stórra banka. „Ljóst er að fjár­fest­inga­þörf líf­eyr­is­sjóð­anna er mikil en sam­keppn­is­mál eru eitt þeirra meg­in­at­riða sem huga þarf að við upp­bygg­ingu íslenska fjár­mála­kerf­is­ins.“

Hann gerir einnig að umtals­efni hvernig farið verður með það fjár­magn sem mun fást fyrir Íslands­banka. „Það á ekki hvað síst við í ljósi þess að fyrir skömmu lagði rík­is­stjórnin fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þar sem opnað var á þann mögu­leika að nýta afrakstur af sölu Íslands­banka í fram­kvæmdir við svo kall­aða Borg­ar­línu (auk sam­göngu­fram­kvæmda sem óvissa ríkir um). Þessi áform fara illa saman við þau rök að selja þurfi bank­ann nú til að létta á skulda­stöðu rík­is­sjóðs auk þess sem lána­kjör íslenska rík­is­ins eru nú með allra besta móti. Stöð­ug­leika­fram­lögin voru hugsuð til að styðja við íslenskt efna­hags­líf og tryggja heil­brigt fjár­mála­kerfi, ekki sem pen­ingar sem eyða mætti í óhag­kvæm gælu­verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár